Kópavogsblaðið - 09.05.2015, Blaðsíða 14
Kópavogsblaðið14
Kynning
TónLiST
KópavogSKirKja
Nýjar felgur undir bílinn geta gjörbreytt útliti hans og aukið verðmæti. Hjá
Dekkjahúsinu við Dalbrekku í
Kópavogi er nú hægt að mæta
koma með bílinn og máta á hann
nýja felgu, eigandanum að kost-
naðarlausu. Eiður Örn Ármanns-
son hjá Dekkjahúsinu segir að
15“ til 20“ felgur frá framleiðend-
unum Viper, 4RATIS og Forzza
séu vinsælar. „Glænýjar felgur,
hvort sem þær eru svartar, dök-
kgráar eða í öðrum lit gefa alg-
jörlega nýtt útlit á bílinn, hvort
sem er um smábíl eða jeppa að
ræða. Þetta er eitthvað sem hefur
verið ófáanlegt hér á landi hing-
að til og er gaman að bjóða,“
segir Eiður og bætir því við að
það hafi allir áhuga á að hressa
upp á útlit bílsins á heimilinu
með litlum tilkostnaði. „Að setja
fallegar felgur á bílinn er ódýr
og góð leið til að bæta útlit og
verðmæti hans. Oft þarf ekki
mikið meira til,“ segir Eiður.
Dekkjahúsið býður einnig
hágæða dekk sem heita Aurora,
sem þykja mikil gæðadekkj.
Einnig má nefna Gripmax
dekkin. „Gripmax er okkar
nýjasta lína í dekkjum fyrir
jeppa og jepplinga. Þau dekk eru
framleidd í Kína undir ströng-
ustu gæðakröfum frá byrgjum
í Evrópu og þykja í senn ódýr
og góð,“ segir Eiður og bætir
því við að Gripmax sé öflugur
framleiðandi með gæðavöru á
góðu verði. Hægt er að velja á
milli fimm tegunda á dekkjum
með mismunandi gripi, allt eftir
því við hvaða aðstæður oftast
er ekið. „Gripmax hefur gefist
gríðarlega vel og er hagstæður
kostur þegar kemur í vali á
góðum og öruggum dekkjum á
viðráðanlegu verði.“
Starfsári Samkórs Kópavogs fer nú senn að ljúka. Mikil gróska er í starfi Samkórsins og hefur
félögum fjölgað og eru nú um 60
talsins. Friðrik S. Kristinsson tók
við söngstjórastarfi kórsins haustið
2013. Hann hefur náð góðum
árangri í að bæta hljóm kórsins
og hafa kórfélagar tekið tilsögn
hans vel enda ríkir metnaður og
góður andi í kórnum. Samkórinn
undirbýr nú afmælisár sitt en á
næsta ári verður kórinn 50 ára.
Hann var stofnaður af söngglöðum
Kópavogsbúum 18. október árið
1966. Á afmælisárinu er meðal
annars fyrirhugað ferðalag á
Íslendingaslóðir í Kanada.
Nú í vor efnir Samkórinn til
tveggja tónleika sem bera yfir-
skriftina: Vorgyðjan kemur. Tón-
leikarnir verða haldnir í
Digraneskirkju, þeir fyrri laugar-
daginn 9.maí kl. 17.00 og þeir
seinni á 60 ára afmælisdegi
Kópavogsbæjar þann 11.maí
kl. 20.00. Efnisskrá tónleikanna er
fjölbreytt og við allra hæfi. Ein-
söngvari á tónleikunum verður
sópransöngkonan María Konráðs-
dóttir en hún hefur hlotið mikið lof
Mátaðu nýja
felgu á bílinn hjá
Dekkjahúsinu
Vorgyðjan kemur
Dagur aldraðra
í Þjóðkirkjunni
Guðsþjónusta verður á degi aldraðra í Þjóðkirk-junni á Uppstigningar-
María Konráðsdóttir syngur með
Samkór Kópavogs 9. og 11. maí
Uppstigningardagur
í Kópavogskirkju
fyrir sönghæfni sína. María hefur
búið í Berlín síðan 2010 en hún
kemur sérstaklega til landsins til
að syngja á tónleikunum. Í Berlín
stundar hún framhaldsnám í söng
við listaháskólann í Berlín (Uni-
versität der Künste) þar sem hún
mun ljúka Bachelornámi nú í vor.
María á sterkar rætur í Kópavogi
en níu ára gömul fetaði hún í fót-
spor föður síns Konráðs Konráðs-
sonar og hóf nám í klarinettuleik
í Skólahljómsveit Kópavogs undir
handleiðslu Össurar Geirssonar og
Margrétar Birnu Sigurbjörnsdóttur.
Hún lauk burtfararprófi í klari-
nettuleik frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík og fór í framhaldi af því
í söngnám við sama skóla. Söng-
kennari hennar þar var Dr. Þórunn
Guðmundsdóttir. María kenndi
klarinettuleik í Skólahljómsveit
Kópavogs á árunum 2005 til 2010
áður en hún hélt til náms til Ber-
línar. Það er sannarlega gleðilegt
fyrir Kópavogsbúa að fá tækifæri
til að hlýða á söng Maríu í þessari
heimsókn hennar í heimabæ sinn.
Orgel-og píanóleikari á tónleik-
unum verður Lenka Mátéová
en Lenka starfar sem organisti í
Kópavogskirkju og er þetta í annað
skipti sem hún sér um hljóðfæra-
leik á tónleikum Samkórsins.
Stjórnandi kórsins er eins og fram
hefur komið Friðrik S. Kristinsson.
Samkórinn býður alla bæjarbúa
sem og aðra hjartanlega velkomna
á tónleikana. Miðaverð er kr. 3.000
en miðar eru í boði í forsölu hjá
kórfélögum á kr. 2.500. Einnig má
panta miða með því að senda póst
á: samkor@samkor.is Heimasíða
kórsins er www.samkor.is
Samkór Kópavogs óskar öllum
Kópavogsbúum til hamingju með 60
ára afmælið!
Birna Birgisdóttir formaður.
degi 14. maí. Sr. Sveinn Valgeirs-
son, prestur í Dómkirkjunni og
fyrrum Kópavogsbúi, prédikar
og þjónar fyrir altari ásamt sr.
Sigurði Arnarsyni, sóknarpresti
Kópavogskirkju. Kór Mosfellsbæjar
syngur undir stjórn Julian Hewitt.
organista og kvennakór undir
stjórn Kristínar Ragnhildar Sig-
urðardóttur syngur einnig. Á eftir
guðsþjónustu býður sóknarnefnd
Kárssnessóknar upp á meðlæti og
kaffi í safnaðarheimilinu Borgum.
Áðurnefndir kórar munu þá einnig
syngja. Kársnessöfnður býður
íbúum á hjúrkunarheimilinu
Sunnuhlíð upp á akstur til og frá
kirkju. Allir hjartanlega velkomnir.
Dómkór frá Lundúnum
Fimmtudaginn 28. maí klukkan
20 heldur kór Soutwark dóm-
kirkjunnar í Lundúnum tónleika
í safnaðarheimilinu Borgum.
Enginn aðgangseyrir og allir
velkomnir á meðan húsrúm
leyfir.