Bæjarins besta - 06.01.1993, Page 2
2
BÆJARINS BESTA • Mióvikudagur 6. janúar 1993
• í dag var formlega gengið frá kaupum Þorfinns hf. á togaranum Gylli ÍS og var hann um leið afhentur nýjum
eigendum á Flateyri.
Gyllir ÍS-261 afhentur nýjum eigendum í dag:
Kaupverð skipsins er 378 milljónir
• Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði.
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði:
101 fæðing á árinu
-32 börnum fleira nú en í fyrra
FÆÐINGUM á
Fjórðungssjúkrahúsinu á
ísafirði hefur fjölgað mjög
frá fyrra ári en þá voru
þær einungis 69.
Fæðingarmetið síðan
1988 var þó ekki siegið en
jafnað. Drengirnir eru í
meirihluta nú eða 59 en
stúlkurnar eru 42. Síðast
birtum við tölur frá 13.
nóvember en þá hafði 91
barn litið dagsins ljós. 10
börn hafa bæst í hópinn
síðan þá og hér koma þau:
19. nóvember. Drengur,
3750 g. 53 cm. Foreldrar:
Fríða Dóra Magnúsdóttirog
Ari Birkisson, Lyngmóum
10, Garóabæ
21. nóvember. Drengur,
4150 g. 54 cm. Foreldrar:
Hugrún Kristinsdóttir og
Gunnar Gaukur Magnússon,
Móholti 9, ísafirði.
26. nóvember. Stúlka,
3300 g. 52 cm. Foreldrar;
Jóna Lind Karlsdóttir og
Guðmundur Rafn Kristjáns-
son, Arvöllum 2, Hnífsdal.
30. nóvember. Stúlka,
3960 g. 52 cm. Foreldrar:
Sigríður Björgmundsdóttir
og Sigmundur Þorkelsson,
Holtabrún 10, Bolungarvík.
5. desember. Drcngur,
4080 g. 53 cm. Foreldrar:
Sigríður Helena Smáradóttir
og Hermann Oskarsson,
Sundstræti 24, ísafirði.
6. desember. Drengur,
2985 g. 49 cm. Foreldrar:
Margrét Osk Jónsdóttir og
Sæ var Óskarsson, Skipagötu
4, ísafirði.
12. desember. Stúlka, 3520
g. 52 cm. Foreldrar: Sigrún
Sigvaldadóttir og Kristján
Jóakimsson, Urðavegi 51,
ísafirði.
13. desember. Drengur,
3750 g. 53 cm. Foreldrar:
Harpa Stefánsdóttir og Diego
Garcia, Urðavegi 62, Isa-
firði.
14. desember. Drengur,
4420 g. 56 cm. Foreldrar:
Kristrún Einarsdóttir og
Hermann Bjömsson, Múla-
landi 12, ísafirði.
20. desember. Stúlka, 3160
g. 49 cm. Foreldrar: Sólveig
Sigríður Guðmundsdóttir
og Gunnlaugur Hólm Torfa-
son, Aðalgötu 2, Súðavík
. -ma.
SÍÐDEGIS í gær,
þriðjudag, skrifuðu
stjórnarmenn Þorfinns hf. og
Hjálms hf. á Flateyri undir
staðfestingarskjal vegna
kaupa fyrrnefnda fyrir-
tækisins á skuttogaranum
Gyllir ÍS-261. Formleg undir-
skrift kaupsamnings og af-
hending skipsins fór síðan
fram á Flateyri um hádegis-
bilið í dag og er þar með
TVÖ ný skip hafa bæst í
flota ísfirðinga að undan-
förnu. Útgerðarfélagið
Iðunn hf. sem er í eigu Eiríks
Böðvarssonar og eiginkonu
hans festi fyrir stuttu kaup á
vélbátnum Auðni frá Kefla-
vík og nú hefur Asberg
Pétursson einn aðaleigandi
fiskvinnslunnar Leiti hf. í
Hnífsdal fest kaup á Jöfri KE
17.
Ekki tókst að ná sambandi
við Asberg áður en blaðið
fór í prentun en Eiríkur
Böðvarsson eigandi m/b
Auðuns sagði í sagði í sam-
tali við blaðió að skip hans
óvissuþætti um afdrif
togarans lokið.
Að sögn Þorleifs Pálssonar
stjórnarformanns Þorfinns hf.
og Ishúsfélags Isfirðinga hf.
en þar mun togarinn landa afla
sínum framvegis, var kaup-
verð skipsins 378 milljónir
króna og var í kaupverðinu
reiknað með 1.145 þorskígilda
kvóta. Óvíst er hvenær skipið
heldur á veiðar en að sögn
væri í í Noregi þar sem unnið
væri að því að setja
beitningarvélar í skipið.
Aætlaði hann að þeirri vinnu
yrði lokið um næstu mánaðar-
mót og myndi skipið þá þegar
halda á línuveiðar og yrði
aflinn selduráfiskmarkaðiauk
þess sem um beinan útflutning
yrði að ræða.
Hann sagði ennfremur að
yfir sumartímann myndi
Auðunn stunda úthafsrækju-
veiðar og yrði aflinn lagður
upp hjá Básafelli hf. en þar er
Eiríkur meðal annars einn
eigenda.
-s.
ísafjörður:
Tvö ný skip
í flotann
Ðylgjan á ísafirði:
Skammt stórra
1 •• / •!!•
hogga a milli
VIÐ SÖGÐUM frá því í
síðasta tölublaði að út-
sendingar útvarps-
stöðvarinnar Bylgjunnar
sem auglýstar höfðu verið
á Stöð 2 á útsendinga-
tíðninni 93,7 yrðu áfram
eftir áramót og þá á sömu
útsendingartíðni og verið
hefur undanfarna mánuði
eða á 97.9.
Það sem gerst hefur síðan
þá er einfaldlega það að
ekkert hefur heyrst í stöóinni
og hafa þeir aðilar sem stóðu
að útsendingunum á ísafirði
hætt starfsemi og bendir því
allt til þess að Isfirðingar
muni ekkert heyra t stöðinni í
bráð.
Sigurður Ingólfsson tækni-
maður hjá íslenska Útvarps-
félaginu, eiganda Bylgjunnar
sagði t samtali við blaðið í
gæraóþeiraðilarsem staðið
höfðu að þessum út-
sendingum hefðu guggnað á
verkefninu vegna þesS hversu
dýrar ú tsendi ngamar rey ndust
þeim og tók hann þar sérstak-
lega til leigu á þeim búnaði
sem til þurfti og kom frá Pósti
og stma.
Hann sagði ennfremur að
eins og staðan væri í dag þá
benti ekkert til annars en að
ísfirðingar yrðu án
Bylgjunnar þar til ljós-
leiðarakerfið hjá Pósti og
síma yrði komið í gagnið og
allt benti til þess aó það yrði
með haustinu. ,,Eg get ekkert
fullyrt um þaó á þessari
stundu hvortíslenskaútvarps-
félagið sé tilbúið til að koma
upp sendi áísafirði, fyrst verð
ég að ræða það við mína
menn sem ég skal gera og ég
vonast til þess að geta veitt
þér nánari fréttir fljótlega”
sagði Sigurður.
Á meðan svo er verða Is-
firðingar að láta sér nægja
að hlusta á hió ríkisstyrkta
útvarpsfélag hvort sem er Rás
1 eða Rás 2. -s.
Þorleifs verður reynt að koma
því á veiðar við fyrsta
hentugleika og ekki er vitað
hvort skipið kemur til Isa-
fjarðar strax eða hvort það
heldur á veiðar frá Flateyri.
Skipið mun allavega koma til
ísafjarðar til að landa eftir
sína fyrstu veiðiferð hjá nýjum
eigendum.
Meirihluti áhafnar skipsins
verður sá sami og var fyrir
kaupin og verður Grétar
Kristjánsson áfram skipstjóri.
Aðspurður um hvort fleiri
skipakaup væru á döfinni hjá
fyrirtækinu sagði Þorleifursvo
ekki vera, kaupin á Gylli væru
nógu stór biti að glíma við en
það er keypt að stórum hluta
með yfirtöku lána. Skilyrði
fyrir kaupunum var að Lands-
bankinn myndi samþykkja þau
og hefur hann gefið jáyrði sitt.
• Jöfur KE-17 hefur nú verið keyptur til ísafjarðar.
Kaupandinn er Ásberg Pétursson, einn aðaleigandi
fiskivinnslunnar Leiti hf. í Hnífsdal.
ísafjörður:
Brunaútköllum
fer fækkandi
SAMKVÆMT upp-
lýsingum frá slökkviliðs-
stjóra á ísafirði fer brunaút-
köllum þar fækkandi. Tölur
frá sl. þremur árum sína það
glöggt. í sjúkraflutningum
hefur cinnig orðið töluverð
fækkun á milli ára, allt að
30% fækkun.
Árið 1990 voru 19 brunaút-
köll á ísafirði. Árið 1991 voru
þau 14 en 7 á síðastliðnu ári.
Ástæðunafyrirþessari fækkun
telur slökkviliðsstjóri vera
fyrirbyggjandi starf á sviði
eldvarnaeftirlits sem unnið er
að slökkviliðinu.
Mesta tjón á síðasta ári varð
þegar Dröfn ÍS sökk við Máfa-
garð. I öðrum tilfellum var
yfirleittum litlarskemmdirað
ræða og í einu þcirra kom
slökkviliðið í veg fyrir stór-
tjón með snarræði sínu.
Sjúkraflutningar voru 203 á
síðasta ári. Árið þar á undan
voru þeir 212 en 243 árið 1990.
Þarna er einnig um töluverða
lækkun að ræða og er það
góðs viti. Að meðaltali eru 2
flutningar á mánuði. Ábcrandi
fæst slys hafa orðið í
septembermánuói sl. þrjú ár
en að öðru leyti stendur
enginn mánuður upp úr sem
sérstakur slysamánuóur.
Útköllum innanbæjar hefur
fækkað á sl. þremur árum úr
196 í 151 á sl. ári. Á Flateyri
hefursjúkraflutningum fjölgað
úr 15 1990 í 22 1992. Það er
athyglisvert að á Þingeyri og í
Bolungarvík er einungis um
eitt útkall að ræða áárinu en á
öðrum stöðum eru ekki
áberandi breytingar.
-ma.