Bæjarins besta - 06.01.1993, Page 3
BÆJARINS BESIA • Miðvikudagur 6. janúar 1993
3
ísafjarðardjúp:
Rækjuveiðin
gekk vel
-þrátt fyrir otið 1 desember
RÆKJUVEIÐIN við ísa-
fjarðardjúp gekk vel á
síðasta ári. Alls veiddust 906
tonn af rækju sem er þó mun
minna en árið á undan.
Rækjukvótinn í Djúpinu er
2500 tonn og eru því tæp 1600
tonn enn eftir sem veidd
verða á vorvertíð.
A sama tíma 1991 höfðu
komið á land 990 tonn af rækju
sem er 84 tonnum meira en nú.
Astæðan fyrir þessum mun er
talin vera mikil ótíð nú í
desember sem varð til þess að
lítið var hægt að róa. Horfur á
þessu ári eru taldar góðar enn
sem komið er og hefst vorver-
tíð einhverja næstu daga.
Aflahæstu bátamir á haust-
vertíðinni voru með milli 40
og 50 tonn. A bátunum er þrí-
skiptur kvóti 68,74 og 80 tonn.
Aflahæstu bátamir á þessari
haustvertíð eiga því ekki
mikið eftir af sínum kvóta.
-ma.
• Hjálmar Björnsson var sigursælastur í A- jólamóts
Studio Dan í skvassi.
ísafjörður:
Byrjendur
komu skemmti-
lega á óvart
- greinilega mikill skvassáhugi hjá fólki
JÓLAMÓT Studio Dan í
skvassi var haldið fyrir
skömmu og var keppt í
þremur riðlum í karlaflokki
en einum í kvennaflokki.
Þátttakendur voru átta í
hverjum riðli og að sögn
Stefáns í Studio Dan var
keppnin mjög skemmtileg og
margir komu skemmtilega á
óvart.
í A-riðli karla var Hjálmar
Björnsson í fyrsta sæti og Jón
Rósman frá Reykjavík í öðru.
í B-riðli var Sigurður
Samúelsson sigurstrangleg-
astur en öðru sæti deildu þrír
kappar. Það voru þeir Níels
Sveinsson, Halldór Antonsson
og Pétur Guðmundsson.
C-riðill var mjög skemmti-
legur að því leytinu til að
flestir þátttakendur í honum
höfðu aldrei keppt áður og
var því gaman að fylgjast með
aðferðum manna þar. I
þessum riðli lenti Sveinn Guð-
jónsson í fyrsta sæti en Hálfdán
Kristjánsson í öðru.
I kvennariðli var Cataryn
Lennon skiptinemi frá Astralíu
í fyrsta sæti en hún er ekki
óvön því hlutskipti. Margrét
Geirsdóttir sem lenti í öðru
sæti vakti athygli fyrir að hafa
aldrei keppt áður en þó náð
svona langt.
Keppnirnar tókust í alla
staði mjög vel og verður
gaman að fylgjast með
skvassfólki nýju og gömlu á
næstunni.
-ma.
• Rækjubátar í Sundahöfn á ísafirði.
MIOAPRENTUN HF.
HÖFÐABAKKA 3 - 112 REYKJAVIK
SÍMI: 91-676450 - TELEFAX: 676459
ið prentum
Allar geröir límmiða
- Tölvugataða
- Lakkaða
- Frostþolna
- Strikamerkta
og
KVIK
mm
ímmiðinn
Umboðsaðili
á Vestfjörðum:
er andlit vörunnar. Snyrtilega merkt
vara ber framleiðslunni gott vitni.
Komdu til okkar og við aðstoðum þig
við hönnun og uppsetningu míðans
eða útfærum þínar eigin hugmyndir.
H-PRENT HF.
Sólgötu 9, ísafirði
Sími 4560 & 4570, fax 4564.