Bæjarins besta - 17.03.1993, Síða 7
BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 17. mars 1993
7
Lesendur:
Skíðakennsla á Hólmavík:
Ibúð óskast
>
Oska eftir að taka á leigu 3ja herb. íbúð
eða stærri frá 15. maí.
Upplýsingar gefur Haraldur á BB
í símum 4560 eða 4570 á daginn.
Guðmann Guðmundsson á heimili sínu, 25 árum eftir
björgunina frægu.
ísafirði 17. mars 1993:
Lífsbjörgin nœg
laun fyrir mig
Ungi drengurinn sem
fann Harry Eddom í Seyð-
isfirði í Isafjarðardjúpi
þcnnan afdrifaríka feb-
rúarmorgun árið 1968 er
Guðmann Guðmundsson,
skipstjóri á Isafirði. Guð-
mann var 14 ára þegar
hann fann Harry Eddom.
Hann lýsir atburðinum á
eftirfarandi hátt:
„Eg var að reka kindurnar
þarna í fjörunni og er ég kem
á móts við sumarbústaðinn
sem þar er verð ég var við
spor. 1 sömu andrá taka
hundarnir á rás og hlaupa
upp að bústaðnum og virð-
ist sem að Harry Eddom hafi
orðið þeirra var og kallað.
Þá sneri ég við og hélt upp
að bústaðnum og fann hann
þar. Hann varð mjög
ánægður að sjá mig en gat
lítið gert vegna líkams-
ástands síns. Hann var
blautur og hrakinn. Hann var
í klofstígvélum og þau voru
full af sjó. Eg hjálpaði
honum síðan heim og var
kominn upp á tún er pabbi
kom á móti mér og hjálpaði
til. Harry gat gengið við
stuðning en ekki meir.
Þegar inn kom háttuðum
við hann, settum hann í þurr
föt og gáfum honum kaffi og
mat. Hann sofnaði síðan og
svaf í um tværklukkustundir.
Þá voru skipverjar á Svan-
inum komnir til okkar en þeir
voru við leit í Djúpinu. Þá
var hann orðinn þokkalega
hress og hann fór með þcim
til Isafjarðar.”
-Nú var hann enskur.
Gátuð þið talað við hann?
„Nei, nei vió gátum ekk-
ert talað við hann en við
vissum strax að hann væri
af togaranum sem hafði
farist. Við vissum bæði um
Heiðrúnina og Ross Cleve-
land.”
-Þú fórst ekki meó út á
ísafjörð í allt fjölmiðla-
fárið. Hittir þú Harry Eddom
aldrei aftur?
„Ekki fyrr en ég var
orðinn 18 ára. Þá hitti ég
hann á Isafirði. Hann var þá
kominn aftur tii Isafjárðar
sem stýrimaður á öðrum
breskum togara. Eg fékk boð
þess efnis að hann væri
kominn og vildi hitta mig.
Eg fór og hitti hann heima
hjá Ulfi Gunnarssyni lækni.
Það var ágætt að hitta hann
aftur. Hann var hress og
talaði mikið. Þetta var á-
nægjuleg stund. Hann bauð-
st til að launa mér lífs-
björgina en ég þáði það ekki,
að hafa getað hjálpað hon-
um voru næg laun fyrir mig.”
-I ár eru liðin 25 ár frá
þessum atburði. Hafið þið
haft samband síðan?
„Nei, ég hef ekki hitt hann
síðan þarna á Isafirði 1972.
Eg vissi að hann var skip-
stjóri hér við land í þorska-
stríðinu og fyrir rúmum
tveimur árum var hann á
einhverjum flutninga-
pramma í Norðursjó. Síðar
frétti ég að hann hefði verið
orðinn atvinnulaus. Það er
öll mín vitneskja um mann-
inn.”
-Nú vakti þessi atburður
mikla athygli á sínum tíma.
Reyndu fjölmiðlamenn mik-
ið að ná tali af þér?
„Jú, jú en það var bara
allt símasambandslaust vik-
una eftir óveðrið. Þeir komu
þó inn eftir til mín til að
taka viðtal. Það voru tveir
enskir blaðamenn og
Magnús Aspelund sem var
túlkur þeirra. Það birtust
viðtöl við mig, bæði í
Morgunblaðinu og í enskum
blöðum og á ég nokkrar úr-
klippur ennþá til” sagði
Guðmann Guðmundsson í
samtali við blaðið á mánu-
dag er við slógum á þráðinn
til hans þar sem hann var
viö veiðar á rækjubát sínum
á Isafjarðardjúpi.
Hólmvískir skíöamenn við skíðalyftuna sem sett var
upp i Kálfanesi við Hólmavík fyrir stuttu.
Ljósmynd: Kristján Jóhannsson.
300 metra skíða-
lyfta tekin í notkun
Kristján Jóhannsson, BB Hólmavík:
SKÍÐAKENNSLA hófst á
Hólmavík síðastliðinn föstu-
dag og stendur yfir í tvær
vikur. Mjög góð þátttaka er í
kennslunni, en um 60
nemendur frá fimm ára aldri
mættu til leiks.
Kennari er Vilhelmína Geirs-
dóttir frá Neskaupstað en hún
hefur áður verið við kennslu
í Ámeshreppi og á Drangsnesi.
300 metra skíðalyfta var sett
upp í Kálfanesi, sem er rétt
fyrir ofan Hólmavík og er þetta
í fyrsta skipti á þessum vetri
sem hún er notuð á þessum
vetri.Erþaðvon Hólmvíkinga
að aðstaða eigi eftir að batna
á svæðinu svo hægt verði að
lengja Iyftubrautina en þágetur
allur veturinn nýst til skíða-
iðkunar. Til þess að svo megi
vera, verður að flytja til jarð-
veg með jarðýtu og vonast
heimamenn til að það verk
verði unnið í sumar.
Það er Ungmennafélagið
Geisli á Hólmavík sem á og
rekur skíðalyftuna. Þá hefur
félagið séð um þjálfaramál og
hefur m.a. fengið Þröst
Jóhannesson frá Isafirði til
þess að sjá um gönguæfingar
dagana 19.-22. mars nk.
til þess að stöðva skemmd-
imar, sem að öðrum kosti gætu
haft þær afleiðingar að mér
verði ekki fært að halda
akstrinum áfram með svo
dýrum bíl.
Ef allir Ieggjast á eitt til þess
að koma í veg fyrir ósómann
er málið auðleyst. Oryggis-
tæki (öryggishamrar) voru
teknir úr bílnum. Þá eða þann
sem þar var að verki bið ég
að skila tækjunum og mun ég
ekki frekarminnastáþettamál
og láta gleymt og grafið.
Einnig vil ég biðja foreldra
um að áminna börnin um það
að þessar gerðir eru bæði
rangar og þeim sjálfum verstar,
sem gera.
Asgeir Sigurðsson.
Stúlkur
-konur
athugið!
Tek að mér alla
almenna förðun.
Upplýsingar í
síma 4535
POINT BREAK
Nýliði í FBI, sem er fyrrum
íþróttamaður er fenginn til
að smygia sér inn í hóp
grunaðra manna sem halda
sig á ströndinni og stunda
brimreið af miklum ntóð.
Þeir sækjast eftir spennu og
hættum og leggja mikið á
sig til að svala þeim þorsta.
En uppgjör er
óumflýjanlegt þegar FBI-
maðurinn uppgötvar hvaó
hópurinn fæst raunverulega
við og lokaslagurinn hefst.
S'A'H
TO SAVE A CHILD
Stella og Garth Larson eru
nýgift, hún ólétt og þau
flytjast til Mangala-dalsins
þar sem bíður hans
læknisstarf. Ekki er allt sem
sýnist í bænum og á bak
við öll brosin og vingjarn-
leg andlitin leynast Ijót og
djöfulleg leyndarmál og
það er ekki fyrr en Stellu er
tjáð að barn hennar hafi
fæðst andvana, að hún
áttar sig á því hvað er að
gerast í kringum hana.
JR-VÍDEO
MÁNAGÖTU6
3 4299
Gcstakekkar
Sigurvin Gunnarsson
matreiðslumeistari
Föstudagskvöld:
Austurlenskir réttir
Laugardagskvöld:
„Milli fjalls og jjöru “
Hefðbundið íslenskt hráefni
notað á nýstárlegan
og spennandi hátt
Pantið borð
Verið velkomin
4i*u 4t 1 /
Athugasemd
til skólabarna
- frá Asgeiri
Sigurðssyni
UNDANFARIN ár hefi ég
átt því láni að fagna að um-
gengni skólabarnanna við
bíla mína hefur verið til
slíkrar fyrirmyndar að tekið
hefur verið eftir og mun trú-
lega vera um einsdæmi að
ræða hér á landi.
Þessvegna þykir mér miður
að nú nýverið urðu þar á
snögg umskipti og verulegt tjón
hefur verið unnið á einum bíla
minna. Eg er ekki í nokkrum
vafa um aó hér er um að ræða
einstakling eða fáa einstakl-
inga. Hér er um að ræða nýjan
bíl, eða rétt rúmlega árs-
gamlan. Það hefur verið
skoðun mín að hreinn og fal-
legur bíll höfðaði til barnanna
og hefur svo verið að mínu
mati til þessa.
Þar sem hér er um að ræða
einstaklingsverk en ekki hóps,
það er mér að fullu ljóst, er
það von mín að samvinna við
börnin, sem enga sök eiga á
þessum atvikum, geti orðið
NYJAR
MYNDIR
VIKULEGA -