Bæjarins besta


Bæjarins besta - 28.07.1993, Side 2

Bæjarins besta - 28.07.1993, Side 2
2 BÆJARINS BESTA • Miðvikudagur 28. júlí 1993 Bolvíkingar hafna sameiningu sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum: Bolungarvíkurkaupstaður uppfyllir öll markmið sveitarfélaganefiidar sem sjálfstætt sveitarfélag - segir m.a. í ályktun Kristins H. Gunnarssonar sem samþykkt var með fimm samhljóða atkvæðum á fundi bæjarstjórnar BÆJARSTJÓRN Bolungarvíkur samþykkti með fimm sam- hljóða atkvæðum á fundi sínum sem haldinn var 22. júlí síðastliðinn að hafna tillögu umdæmisnefndar Vestfjarða um sameiningu allra sveitarfélaga á norðanverðum Vest- fjörðum í eitt. Bæjarstjórnin ræddi tillöguna á tveimur fundum og koms't að þeirri niðurstöðu að Bolungarvíkur- kaupstaður uppfyllti öll markmið sveitarfélagsnefndar um sjálfstæð sveitarfélög og Bolungarvík þurfi því ekki að sameinast öðrum sveitarfélögum á Vestfjörðum. Bæjarstjóm Bolungarvíkur hefur sent Guðmundi H. Ing- ólfssyni formanni umdæmis- nefndar Vestfjarða eftirfarandi ályktun Kristins H. Gunnars- sonar um málið sem samþykkt var á fundinum: „Bæjarstjóm Bolungarvíkur hefur á tveimur fundum rætt um sameiningu sveitarfélaga í tilefni af loka- skýrslu sveitarfélaga, laga- setningu um sameiningu sveit- arfélaga og skýrslu starfshóps stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga, auk þess að halda sérstakan fund með um- dæmanefnd Vestfjarða. Bæjarstjómin lýsir sig sam- mála því meginmarkmiði að treysta byggð í landinu. Arang- ursríkasta leiðin til þess er að skapa sjávarútveginum heil- brigðan rekstrargrundvöll og gæta þess að sjávarplássin njóti nálægðarinnar við þá auðlind, fiskimiðin, sem er forsenda tilveru þeirra. Sé þess gætt og dregið úr ofstýringar- tilhneigingu miðstjórnarvalds- ins er engin þörf á að skipa nefndir og gefa út skýrslur um vanda landsbyggðarinnar. Ibúar þar eru fyllilega færir um að bjarga sér og bera ábyrgð á sínum atvinnurekstri við eðlilegt ástand í atvinnu- lífinu. Bæjarstjómin bendir á að tillögur sveitarfélagsnefndar eru í meginatriðum fjórþættar. Jafnhliða sameiningu sveitar- félaga verði tekið til endur- skoðunar umdæmamörk og verkefni umboðsvalds ríkis í héraði, reglum um Jöfnunar- sjóð sveitarfélaga verói breytt og aukið fé lagt til sjóðsins og loks er áréttað að greiðar sam- Bolungarvík. Bæjarstjóm Bolungarvíkur samþykkti á fundi sínum á fimmtudag í síðustu viku með fimm samhljóða atkvaeðum að hafna sameiningarhugmyndum byggðarlaga á norðanverðum Vestfjörðum. göngur eru forsenda stækkun sveitarfélaga. Meta þarf öll þessi atriði í heild sinni þegar rætt er um sameiningu sveitar- félaga. Ekkert liggur fyrir að BaWarinn SIMI 4770 » FAX 5065 hálfu ríkisvaldsins um endur- skoðun stjórnsýslu ríkisins m.a. um flutning ríkisstofnana út á land, endar tillögur eða ákvarðanir liggja fyrir um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og samgöngur á norðanverðum Vestfjörðum komast ekki í viðunandi horf fyrr en 1996, eða tveimur árum eftir að fyrirhugað er að sameining sveitarfélaga verði. Þá liggur ekkert fyrir um hvort eða hvenær verður af verkefnatil- færslu frá ríki til sveitarfélaga og þá hvaða verkefni það verða og ennfremur hvaða tekjustofna sveitarfélögum eru ætluð. Bæjarstjórnin telur að skýra verði rækilega fyrirætlan stjómvalda í þessum málum og tryggja efndir áður en hægt er að taka ákvörðun um sam- einingu á þessum forsendum og minnir á aó óhjákvæmilegt er að bæta samgöngur um Ós- hlíð mun meir en ráðgert er í gildandi vegaáætlun. I ljósi reynslunnar af samskiptum sveitarfélaga við ríkisvaldið á undanförnum árum-telur bæjarstjóm Bolungarvíkur ó- ráðlegt að binda vonir við ávinning á þessum sviðum og miða ákvörðun um sam- einingu sveitarfélaga nú við þær vonir. Afstaða til sameiningar sveitarfélaga og tillögu starfs- hóps stjórnar Fjórðungssam- bands Vestfirðinga um að sameina öll sveitarfélög á noróanverðum Vestfjörðum í eitt, verður því að miðast eingöngu við þau markmið um stærð og gerð sveitar- félaga sem lögð eru í loka- skýrslu sveitarfélaganefndar á bls. 28. Eitt sveitarfélag á norðan- verðum Vestfjörðum upp- fyllir ekki það markmið að 90% íbúanna séu innan 30 mínútna akstursvegalengdar frá aðalþjónustukjarna og þaó getur ekki myndað heilstætt samfélag né heilstætt atvinnu- svæði með tilliti til vinnu- sóknar. Af þeim sökum að forsendur eru ekki uppfylltar, er óraunhæft með öllu að ætla að norðanveróir Vestfirðir geti með góðu móti orðið eitt sveitarfélag. Auk þess er lega Bolungarvíkur þannig sem endastöð að slík sameining verður enn síður fýsilegur kostur. Loks má benda á að Bolungarvíkurkaupstaður upp- fyllir öll markmið sveitar- félaganefndar sem sjálfstætt sveitarfélag, þar með talið skilyrði um Iágmarksfjölda íbúa og þar af leiðandi engin þörf á breytingu af þeim sökum. Það er því niðurstaða bæjarstjórnar Bolungarvíkur að hafna tillögu starfshóps stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga um sameiningu sveitarfélaga á norðanverðum Vestfjörðum.” Ofangreind ályktun var sam- þykkt með fimm samhljóða atkvæðum, einn bæjarfulltrúi tók ekki afstöðu og einn greiddi ályktuninni mótat- kvæði. Það var Ólafur Krist- jánsson, bæjarstjóri sem gerði eftirfarandi grein fyrir atkvæði sínu: „Undirritaður tekur undir þau varnarorð sem fram komu í fyrri hluta ályktunar Kristins H. Gunnarssonar. Bæjarstjórn Bolungarvíkur hefur átt þess kost að koma sjónarmiðum sínum á framfæri á fundi með umdæmisnefnd Vestfjarða hinn 9. júlí 1993,þarsem ítar- lega var rætt um kosti og galla sameiningar sveitarfélaga. Með tilliti til þeirrar um- ræöu s?m þar fór fram og veikrar stöðu byggðar á norð- anverðum Vestfjörðum tel ég ekki rétt aó taka jafn afdráttar- lausa afstöðu til synjunar nefndrar tillögu starfshóps Fjórðungssambands Vest- firðinga um sameiningu sveit- arfélaga á norðanverðum Vestfjörðum og fram kemur í ályktun K.H.G. Því greiði ég atkvæði á móti ályktuninni.” „Mín skoðun er sú að við eigum ekki að álykta svona sterkt á móti þessum sam- einingarhugmyndum og ég tel að það veiki Bolungarvík og veiki byggó á Vestfjörðum ef við reynum ekki að standa saman um að sameinast þessi 6.400-6.500 manns sem búa á svæðinu frá Þingeyri og norð- ur að Djúpi. Eg er al veg harður sameiningarmaður og hef alla tíð verið,” sagði Ólafur Kristjánsson, bæjarstjóri í sam- tali við blaðið. Afmæli: PETUR Pétursson, skíðafrömuður með fleiru á Grænagarði í Skutulsfirði er 90 ára í dag, miðvikudaginn 28. júlí. Pétur mun taka á móti gestum í Húsamæðraskól- anum á ísafirði eftir kl. 20 í kvöld og eru allir vel- komnir.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.