Bæjarins besta - 23.03.1994, Side 7
REJARINS BESTA • Miðvikudagur 23. mars 1994
7
Sigurjón Samúelsson bóndi að Hrafnabjörgum:
OlíUegtað
Sighvatur hafni
jaln góðum kosti
- segir Sigurjon um umsókn sína um stöðu Seðtabankastjóra
í SÍÐUSTU viku var kunngert hverjir sóttu um þær tvær bankastjórastöður í Seðla-
bankanum sem auglýstar voru lausar eigi alls fyrir löngu. Rúmlega þrjátíu umsóknir bárust
auk umsókna frá nemendum eins menntaskóla. A meðal umsækjenda var bóndi vestan úr
ísafjarðardjúpi, Sigurjón Samúelsson að Hrafnabjörgum í Uaugardal. Margir Vestfirðingar
þekkja til mannsins vegna áhuga hans á íslenskri tónlist en Sigurjón mun eiga eitt stærsta safn
íslenskra hljómplatna. Þá er maðurinn þekktur af laxveiðimönnum því hann hefur verið
veiðivörður við Uaugardalsá um árabil en fæstir áttu þó von á því að hann væri á meðal
umsækjenda um þá eftirsóttu stöðu, sem bankastjórastaðan í Seðlabankanum er. A hann von
á því að fá stöðuna og hvenær mun hann þá taka við?
„Já, því ekki ég eins og hver
annar. Eg veit ekki hvenær ég
myndi taka við, það fer allt eftir
því hvað hann verður röskur að
þessu, hann Sighvatur,” segir
hann og hlær.
-En hvemig stóð á því að
hann sótti um stöðuna?
„Það er samdráttur í land-
búnaði og Alþýðuflokksmenn
hafa mikið hvatt bændur til að
reyna að stunda einhverja aðra
atvinnu á þeim forsendum að
það geti ekki verið fullt starf í
framtíðinni að sinna sauðtjár-
búi og því verður maður að bera
niðurþarsem sæmilegaatvinnu
er að fá og þokkaleg laun. Að
þessu athuguðu sendi ég mína
umsókn inn.”
-Var ekki krafist háskóla-
menntunar til starfsins?
„Nei, nei, það er það nú ekki.
Þetta er eitt af þeim störfum í
þjóðfélaginu þar sem ekki er
krafist neinna sérstakrar mennt-
unar.”
-Ertu vongóður um að fá
stöðuna?
Sigurjón Samúelsson, bóndi að Hrafnabjörgum var á meðal umsækjenda um stöðu
Seðlabankastjóra og bíður spenntur eftir niðurstöðu Sighvats. Hér er Sigurjón við
laxateljarann við Laugardalsá en hann gegnir þar starfl veiðivarðar.
„Mér þykir ólíklegt að Sig-
hvatur hafni jafn góðum kosti
og ég er. Eg var ekki hvattur til
að sækja um þessa stöðu af
hinum almenna borgara, þetta
var alfarið mín ákvörðun. Þetta
var ekki gert í neinu spaugi.
Það er full alvara á bak við
þessa umsókn. Menn sækja ekki
um slíka ábyrgðastöðu nema
að það sé full alvara þar á
bakvið. Eg held því fram að
bændur séu ekkert lakari menn
en aðrir og geti sinnt þessari
stöðu alveg eins og hver annar.”
-Ertu farinn að pakka niður?
„Nei, nei. Eg bíð nú fyrst
eftir veitingunni.”
-En fáir þú stöðuna. Hver
tekur þá við starfi veiðivarðar
við Laugardalsá?
„Ég veit það ekki svo gjörla.
Ég á nú ekki von á því að Jón
Sigurðsson taki það að sér.
Annars skilst mér að Jóhannes
Norðdal hafi getað sinnt hinum
ýmsum störfum með banka-
stjórastöðunni og því ætti ég
ekki alveg eins að geta verið
veiðivörður og bankastjóri?
Þetta virðist ekki vera svo erfitt
starf og það þarf víst ekki nema
mann með meðalvit í það,”
sagði Sigurjón.
-v
Flekkefjord i Noregi:
Ný Guðbjörg sjósett
LAUGARDAGINN 12. mars síðastliðinn var hið nýja
frvstiskip útgerðarfélagsins Hrannar hf., á Isafirði sjósett í
Flekkefjord í Noregi en þar hefur skipið verið í sniíðum frá
því í lok síðasta árs.
Viðstaddir sjósetningu voru
eigendur skipsins og það var
SigríðurBrynjólfsdóttir.eigin-
kona Asgeirs Guðbjartssonar,
skipstjóra sem gaf skipinu
nafnið Guðbjörg en þetta er
þriðji togarinn með Guð-
bjargamafninu sem hún skírir.
Verkið hefur gengið vel hingað
til og er áætlað að skipið verði
aflient eigendum sínum um
miðjan september nk.
Þegar skipið var sjósett átti
eftir að setja á það brú og gálga
sem og að innrétta það hátt og
lágt. Hin nýja Guðbjörg er 68
metra löng og 14 metra breið.
-í.
Framkvæmdastjóri skipasmíðastöðvarinnar í Flekkfjörd
(l.t.v.) ásamt þeim Sigríði Brynjólfsdóttur og Bárði
Hafsteinssyni hjá Skipatækni hf., sem hannaði skipið. I
baksýn er svo meistarastykkið.
Hin nýja Guðbjörg komin á flot.
ísafjarðardjúp:
Fagranesið á ferð-
inni á Skíðaviku
BILFERJAN Fagranes mun verða í ferðum a nulli
ísafjarðar og Arngerðareyrar í Isafjarðardjúpi á Skíðaviku
auk þess sem útgerð skipsins hefur ákveðið að bjóða upp á
skemmtisiglingu um Isafjarðardjúp, laugardaginn 2. apríl kl.
18.30.
Næstkomandi föstudag, 25.
mars fer skipið frá Isafirði kl.
12.00 og frá Arngerðareyri kl.
15.00. Mánudaginn 28. mars
verður farið frá ísafirði kl. 08.00
og frá Arngerðareyri kl. 11.00.
Miðvikudaginn 30. mars fer
skipið frá ísafirði kl. 09.00 og
frá Arngerðareyri kl. 12.30.
Mánudaginn 4. apríl verður
farið frá ísafirði kl. 10.00 og frá
Arngerðareyri kl. 13.30 og
föstudaginn 8. apríl verðurfarið
frá ísafirði kl. 08.00 og frá
Arngerðareyri kl. 11.00.
Þá mun útgerð skipsins bjóða
upp á skemmtisiglingu um
ísaljarðardjúp og verður sú ferð
farin kl. 18.30, laugardaginn 2.
apríl. Skráning í þá ferð sem og
aðrar pantanir með skipinu eru
í síma 94-3155 en einnig er
hægt að hringja í heimasíma
94-4655 og 94-3016. Þeir sem
Bílferjan Fagranes verður
í siglingum um ísaljarðar-
djúp á Skíðaviku’94.
verða á faraldsfæti ofangreinda
daga og hyggjast notfæra sér
þjónustu Fagranessins eru
hvattir til að panta pláss fyrir
bílinn tímanlega. _s/f
ísafjörður:
„HeitT konukvöld í
Krúsinni annað kvöld
- karlpeningnum oheimill aðgangur
ANNAÐ kvöld, þ.e. fimmtudagskvöld, heldur ísafjarðar-
deild Kvennaklúbbs íslands svokallað „heitt“ konukvöld í
skemmtistaðnuin Krúsinni og hefur deildin kallað til leiks
fjóra stælta, ameríska draumasveina til að skemmta vest-
firsku kvcnþjóðinni.
Hércru áferðinni American
male-dansflokkurinn. sá hinn
sami og hefur tryllt íslenskar
konur á öllum aidri um allt
land undanfama viku, en Isa-
fjörður cr einn tíu viðkomu-
staða þeirra. „Húsið opnar kl.
átta og gæjamir birtast fljót-
lega uppúr kl. níu. Þeir eru að
sjálfsögðu aðalnúmer kvölds-
ins, cn einnig verður tísku-
sýning í boði, kynningar af
ýmsu tagis.s. skúringavél sem
síðan verður gefín, happdrætti
og lleira.” sagði Guðrún Sig-
ríður Matthíasdóttir, fonnaður
ísafjarðardeildar Kvenna-
klúbbs íslands.
Að sögn Guðrúnar eru sýn-
ingaratriði „kyntröllanna" allt
að tveimur klukkustundum að
lengd en það fer allt eftir
stemmningunni í salnum. Hún
bendir á að vinsælt og árang-
ursríkt sé að gestir gefi strák-
unum smá þjórfé og fær
viðkomandi þá a.nt.k. koss í
staðinn.
Guðrún sér um miða- og
borðapantanir í vinnusíma
3578 og í Sjallanum á kvöldin
í sírna 3925. Eins og nafn
sýningarinnar bendir til. er
karlmönnum aðganguróheini-
ill. Miðaverð er kr. 1500._/iy,