Bæjarins besta


Bæjarins besta - 23.03.1994, Page 8

Bæjarins besta - 23.03.1994, Page 8
8 BpiINS BESTA • Miðvikudagur 23. mars 1994 SFíBT SÍÐAKT Snóker: Einar í topp- barátlu EINAR Gunnlaugsson sigraði í fimnita og næst- síðasta riðli Opna Ís-Rek mótsins sem fram hefur farið í Billiardstofunni Gosa í vetur og er því efstur Isfirðinganna að stiguin með samtals 400 stig. I vetur var samtímis keppt í sania móti á Ing- ólfsbilliard og Billiard- stofunni Klöpp í Revkja- vík oger Einar því kominn í toppbaráttuna, en nú er aðeins sjálfur úrslitariðil- inn eftir og fer hann fram í Revkjavík í maí nk. í öðru sæti í fimmta riðli um helgina var Atli Geir Atlason og í því þriðja var Ásbjöm Bjamason. í saman- Iögðum stigafjölda Isfirð- inganna, er Ásbjörn i öðru sæti, Víðir Amarson í því þriðja, Atli Geir í fjórða og Davíð Sveinsson í fimmta. Alls tóku fjórtán keppendur þátt í ísafjarðarhluta móts- ins. Sex efstu menn, auk tveggja annarra úr sérstöku móti, frá hverjum þriggja keppnisstaðanna um sig, keppa til lokaúrslitanna í Reykjavík og jafnframt til ísafjarðarmeistaratitils. í kvöld hefst svo ung- lingameistaramót 21 árs og yngri í Gosa og lýkur keppni annað kvöld. Tveir efstu rnenn keppa til unglinga- meistaratitils íslands í Reykjavík í apríl. Það er Eimskip á ísafirði sem greið- ir farseðlana fyrir ísfirð- inganatil höfuðborgarinnar. -hþ. Laugardalsvatn í ísafjaröardjúpi: Bændur bjóða veiði í gegnum ís Á SÍÐASTLIÐNUM vetri gáfu bændur í Laugardal í Isa- fjarðardjúpi fólki kost á að veiða silung og lax í gegnum ís á Laugardalsvatni. Fáir reyndu fyrirsér þann veturinn en þeir sem prófuðu fengu góða veiði. Bændurnir hafa nú ákveðið að endurtaka leikinn og geta því þeir sem áhuga hafa á slíkum veiðiskap haft samband við Jón Helga á Birnustöðum, en hann mun sjá um úthlutun veiðileyfa. Sigurjón Samúelsson, bóndi að Hrafnabjörgum og um- sækjandi um stöðu Seðlabanka- stjóra sagði í samtali við blaðið að lítið hefði verið spurt um leyfi í vetur enda aðalveiði- tíminn ekki hafinn. „Eg reikna með að aðalveiðitíminn hefjist í lok þessa mánaðar og því geta þeir sem áhuga hafa, farið að kynna sér málin. Þetta gafst vel á síðastliðnum vetri. Þá komu hingað björgunarsveitarmenn frá Isafirði og þeir fengu 36 fiska í annað skiptið og yfir 50 í það síðara. Þetta var allt silungur en í hitteðfyrra veiddist lax í gegnum ísinn í marsmánuði. Þetta er ódýr og góður veiði- skapur, dagurinn kostar ekki nema 400 krónur og því er um að gera að drífa sig,” sagði Sigurjón. Hann sagði ennfremur að til stæði að opna Laugardalsá 12. júní og vonaðist hann til að sumarið yrði ekki lakara en verið hefur en á öllu Laugar- dalssvæðinu veiddust 266 laxar á síðasta sumri. Verðið verður óbreytt frá síðasta sumri og er það sama verð og var á veiði- leyfunum árið 1988. „Mér virðist sem að ásóknin sé meiri í veiðileyfi í áren verið hefur. Það eru fleiri sem biðja um leyfi nú en áður og það er lítið um að menn hætti. Við misstum nokkuð af okkar fasta- kúnnum á síðasta ári en það komu bara aðrir í staðinn,” sagði Sigurjón. Verðlaunahafar á mótinu að keppni lokinni. Skíöaganga: Ólafur sigraði í flokki 12 ára SHELL-MOTIÐ í skíða- göngu 10-12 ára barna fór fram á Seljalandsdal á sunnu- daginn var. í 2 km. göngu 10-11 ára stúkna sigraði Katrfn Ámadóttir á tímanum 11.30 og Elísabet G. Björnsdóttir varð í öðru sæti á 12.24. í 2 km. göngu 10-11 ára drengja sigraði Gylfi Olafsson á tímanum 10.45, annar varð Einar J. Finnbogason á 10,50 og Greipur Gíslason varð í þriðja sæti á tímanum 10.54. Salóme Elín Ingólfsdóttir sigraði í 3 km. göngu 12 ára stúlknaátímanum 17.09, Sess- elja Guðjónsdóttir varð í öðru sæti á 23.15 og Helga Rún Gylfadóttir varð í þriðja sæti á 25.17. í 3 km göngu 12 ára drengja sigr- aði Olafur Th. Árnason á tímanum 14.01 og Há- varður Ol- geirsson varð í öðru sæti á t í m a n u m 18.07. Ólafur Th. Árnason sigur- vegari 12 ára drengja. Unglingameistaramót íslands 1994: Helst á Seljalands- dal á föstudag UNGLINGAMEISTARA- MÓT íslands 1994 verðursett á Isafirði á morgun fimmtu- dag kl. 20.30 í kapellunni á Torfnesi. Strax að mótssetn- ingu lokinni verður haldinn fararstjórafundurog keppnin sjálf hefst á föstudag kl. 09.45 með svigi drengja 13-14 ára. Rúmlega 250 þátttakendur hafa skráð sig til keppni og koma þeir víðsvegar að af landinu. Fjölmennt lið Is- firðinga mun standa daglega vakt við mótið en áætlað er að starfsmenn verði um 60 talsins og eru þá ótaldir menn frá Hjálparsveit skáta sem munu verða til taks á svæðinu ef eitthvað óvænt kemur upp á. Flestir keppenda eru væntan- legir til bæjarins á morgun og munu þeir gista á öllum þeim gististöðum sem eru til umráða í bænum. Læknir mótsins verð- ur Einar Axelsson, yfirlæknir Heilsugæslustöðvarinnar á Isa- firði. Mótið hefst eins og áður sagði með svigi drengja 13-14 ára á föstudag kl. 09.45. Á sama tíma hefst svig drengja 15-16 TRYGGVI GUÐMUNDSSON HDL HAFNARSTRÆTI 1 • ISAFIRÐI 3940 & 3244 • FAX 4547 Fasteignaviðskipti Einbýlishús/raðhús: Hrannargata 1: 240 m2 einbýl- ishús á tveimur hæðum ásamt kjallara og háalofti. Miötún 45: 189 m2 raðhús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Smárateigur 2: 125 m2 einbýl- ishús á einni hæð ásamt bílskúr. Strandgata 17: 120 m2 einbýl- ishús á2 hæðum ásamtsólstofu og bílskúr. Fitjateigur4:151 rrúeinbýlishús á einni hæð + bílskúr. Skipti möguleg á minni eign á Eyrinni eða í Reykjavík. Fagraholt 11: 140 m2 einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr. Bakkavegur 29: 2x129 m2 ein- býlishús á tveimur hæðum ásamt bílskúr. Hnífsdalsvegur 8: 102 m2 ein- býlishús á tveimur hæðum ásamt kjallara. Strandgata 3b: 2x20 m2 einbýl- ishús á tveimur hæðum ásamt kjallara. 4-6 herbergja íbúðir Seljalandsvegur 44: 80 m2 4ra herb íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr. Sundstræti 14: 80 m2 4ra herb. íbúð á 2 hæðum, v-enda í þrí- býlishúsi. Endurnýjuð að hluta. Pólgata4:136m25herb. íbúðá 2. hæð í þríbýli + lítill bílskúr. 3ja herbergja íbúðir Seljalandsvegur 44:72 m2 íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi. Brunngata 12a: 88 m2 íbúð í risi að hálfu, á efri hæð í tvíbýlishúsi. möguleg skipti á góðum bíl. Engjavegur 33: 56 m2 íbúð á e.h. í tvíbýlishúsi ásamt bílskúr. Skipti á stærri eign möguleg. Stórholt 7:76 m2 íbúð á 2. hæð fyrir miðju í fjölbýlishúsi. Stórholt 11: 75 m2 íbúð á 2. hæð fyrir miðju í fjölbýlishúsi Pólgata 6:55 m2 íbúð á 3. hæð til hægri í fjölbýlishúsi. Vegna mikillar sölu undanfarið vantar 4-6 herbergja íbúðir á skrá! Isafjarðarvegn r 4: 96 m2 einbýlishús á tveimur hæbum ásamt bílskúr. Urðarvegur 80: 66 m2 íbúð á jarðhæð í fjölbýlishúsi. Sérinn- gangur Strandgata 5: 55 m2 íbúð í s- enda, efri hæð, nýuppgerð. Sundstræti 14: 86 m2 íbúð á e.h. n-enda í þríbýlishúsi. Endurnýjuð að hluta. Aðalstræti 15: 90 m2 íbúð á efri hæð, s-enda í fjórbýli. Sérinng. Aðalstræti26a: íbúðáefri hæð, v-enda í þríbýlishúsi. 2ja herbergja íbúðir Tangagata 10a: íbúðáefrihæð i tvíbýlishúsi. Ymislegt: Fjarðarstræti 16: Iðnaðarhús- næði Efnalaugarinnar Alberts. Tilboð óskast. ára og kl. 10.20 er ráðgert að stórsvig stúlkna 15-16 ára hefjist. Stórsvig stúlkna 13-14 árahefstsíðankl. 11.00. Klukk- an 13.00 hefst sfðan 7,5 km ganga 15-16 ára drengja, kl. 13.40 hefst 3,5 km ganga 13- 15 árastúlknaogkl. 14.10hefst 5 km ganga 13-14 ára drengja. Á laugardag fer síðan fram svig stúlkna og stórsvig drengja auk þess sem boðganga fer fram í norrænum greinum. Mótinu lýkur síðan á sunnudag með samhliðasvigi allra aldurs- flokka og göngu drengja og stúlkna með hefðbundinni að- ferð. Nánar verður sagt frá mótinu og úrslitum í blaðinu sem kemur út á þriðjudag í næstu viku. Ársþing ÍBI: Fjöldi mála afgreiddur - stórafmæli framundan ÁRSÞING íþróttabandalags ísafjarðar var haldið dagana 15. og 16. mars síðastliðna í Sigurðarbúð og voru mörg mál afgreidd á þinginu. Jens Kristmannsson var endurkjörinn sem formaður, og tvær mannabreytingar urðu í stjórn banda- lagsins. Nýju stjórnina skipa nú, Jens Kristmannsson, Samúel Grímsson, Tryggvi Sigtryggsson, Marinó Hákonarson og Sigurborg Þorkelsdóttir. Þau tvö síðastnefndu eru ný í stjórn en úr stjórn gengu þau Hilmar Pálsson og Signý Rósantsdóttir þar sem þau gáfu ekki kost á sér. Blaðið hafði samband við Jens Kristmansson og spurði hann um helstu mál þingsins og hvað væri framundan á starfsárinu. „Það voru mörg mál rædd á þinginu en utan hefðbundinna þingmála, má nefna að sam- þykktar voru nýjar reglur um veitingar viðurkenninga til íþróttafólks. Nýju reglumarfela í sér að nú verða árlega veittar sérstakar viðurkenningar í hverri íþróttagrein, óháðar kjöri íþróttamanns ísafjarðar, til handa þeirra sem skarað hafa fram úr í íþróttagrein sinni eða sýnt annan lofsverðan árangur á viðkomandi ári. Einnig var samþykkt stórt og mikilvægt mál þess efnis að öll aðildarfélög innan ÍBÍ noti samskonar ytri búninga, þ.e.a.s. æfingagalla í sama lit og með merki ÍBÍ og aðildarfélagsins sjálfs. Þannig verða ísfirðingar auðþekkjanlegirástærri íþrótta- mótum þar sem mörg félög koma saman. Annað mál, sem tengist ári tjölskyldunnar og hálfrar aldar afmæli lýðveldis á íslandi, var að meðlimir íþróttahreyfing- arinnar munu gróðursetja trjá- plöntur á afmörkuðu svæði innan bæjarmarkanna sem enn hefur ekki verið úthlutað. Það hefur heldur ekki verið endan- lega ákveðið hversu mörgum trjám verður plantað, en hugs- anlega verður um að ræða allt að sex hundruð tré. Einnig er fyrirhugað að halda eina alls- herjar íþróttahátíð í bænum í tengslum við lýðveldisafmælið helgina 18. og 19. júní í fram- haldi af hefðbundnum hátíða- höldum þann 17. júní. Svo verður haldin umfangs- mikil ráðstefna á vegum IBI og ISI í ágúst og á hana verða m.a. boðaðir alþingis- og sveitar- stjórnarmenn á Vestfjörðum og umræðuefnið verður staða og störf íþróttahreyfingarinnar á öllum Vestfjörðum," sagði Jens og bætti því við að nú væri

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.