Bæjarins besta


Bæjarins besta - 31.07.1996, Qupperneq 1

Bæjarins besta - 31.07.1996, Qupperneq 1
Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 45B0 *Fax 456 4564 • Natfang: hprent@snnrpa.is • Vnrð kr. 170 m/vsk Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri ísafjarðarbæjar og Þorsteinn Jóhannesson, forseti bæjarstjórnar tóku á móti fóikinu á ísafjarðarfiugveiii ásamt öðrum bæjarfuiitrúum. Tuttugu og níu flóttamenn frá fyrrum Júgó- slavíu komnir ti/ ísafjarðar eftir iangt ferða/ag Draumurinfl orð- inn aö veruleika Þurrkaður saltfiskur Þriggja daga Ísafjarðarhátíð iauk á sunnu- dagskvöid. Að sögn Þórunnar Gestsdóttur, ferða- og uppiýsingafuiitrúa ísafjarðarbæjar tókst hátíðin í aiia staði vei, enda veður eins og best verður á kosið, sói og biíðviðri. Meðai dag- skráriiða hátíðarinnar var uppsetning fisk- markaðar í Neðstakaupstað þar sem þessi stúika kynnti meðai annars hvernig saltfiskur var þurrkaður fyrr á öidinni. Sjá nánar frásögn og myndir á bls. 9. Tuttugu og níu af þeim 32 flóttamönnum sem til stóð að kæntu til landsins á laugardag, komu til sinnar nýju heima- byggðar á Isafirði aðfararnótt síðastliðins sunnudags, eftir langa og stranga ferð frá Belgrad í fyrrum Júgóslavíu. Þriggja ntanna fjölskylda sem einnig hafði verið gert ráð fyrir að kæmi til landsins, mætti ekki á flugvöllinn í Belgrad við brottför og er ekki vitað um ástæður þess að svo fór. Að sögn Jóns Tynes, félagsmála- stjóra Isafjarðarbæjar, sem fór til móts við flóttafólkið í Frankfurt í Þýskalandi, var það ánægt en þreytt við komuna til ísafjarðar, enda langt ferðalag að baki. „Eg tók á móti fólkinu í Frankfurt á laugardagsmorgun. Þar biðum við í níu klukku- stundir og fórum síðan í tæp- lega klukkustundar flug til Berlínar. Eftir álíka langa dvöl þar var haldið áleiðis til Kefla- víkur þar sem lent var eftir þriggja og hálfs tíma flug. Þar tók Páll Pétursson, félagsmála- ráðherra á móti fólkinu og bauð það velkomið til landsins. Færði hann fólkinu blómvendi frá ríkisstjórn Islands en auk hans voru viðstaddir stutta athöfn í Leifsstöð, fulltrúar frá Rauða Krossi Islands. Eftir um 40 mínútna dvöl í Leifsstöð var haldið áfram með flugvél Islandsflugs til ísafjarðar og þar lentum við rétt fyrir kl. 02 aðfararnótt sunnudags,” sagði Jón Tynes. A Isafjarðarflugvelli tóku fulltrúar Isafjarðarbæjar á móti fólkinu og eftir stutta móttöku var fólkinu ekið til sinna nýju heimkynna. „Fólkið var hrært við komuna í sínar nýju íbúðir. Það gerði sér varla grein fyrir að draumurinn var orðinn að veruleika. Þar voru fulltrúar þeirra sem sáu um að gera íbúðirnar klárar og færðu þeir fólkinu blómvendi og sýndu þeim sín nýju heimkynni. Eftir stutta stund gekk fólkið til hvílu enda mjög þreytt eftir erfiða ferð. A sunnudag var síðan móttökuathöfn í skíðaskálan- um á Seljalandsdal. A mánudag fór síðan fram sameiginlegur málsverður og síðan var farið með fólkið í verslanir og því kynnt verðlag og hvað væri á boðstólum. Þá fer fram lög- bundin læknisskoðun og þar með lýkur hinni reglulegu kynningu,” sagði Jón. Sjá nánar svipmyndir frá komu flóttafólksins á bls. 3.

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.