Víðförli - 15.12.1990, Qupperneq 8
Jóhannes Tómasson
Frá Hjálparstofnun Kirkjunnar
Þurfa 40 þúsund börn
að deyja líka í dag?
Nú stendur yfir mesti annatíminn
á Hjálparstofnun kirkjunnar.
Landssöfnunin, Brauð handa hungr-
uðum heimi, er komin í fullan gang.
Upplýsingaefni og gíróseðlar hafa
borist inn á heimilin og auglýsingar
minna okkur á að gleyma ekki þeim
sem líða skort. Stjórnendur Hjálpar-
stofnunar vonast til að árangur söfn-
unarinnar verði ekki minni en í fyrra
— og helst betri.
I ár minnum við á verkefnin og
neyðina undir upphrópuninni, 40
þúsund börn deyja á dag. Þessi börn
deyja áður en þau ná 5 ára aldri. Þau
deyja vegna vannæringar og veik-
inda eða vegna styrjalda. Þau eru á
flótta — þau eiga enga framtíð fyrir
sér og þau skipta heimsbyggðina
engu máli.
Það er þó kannski að breytast. Nú
eiga þau orðið fleiri talsmenn og þau
skipta kannski máli. Heinrsbyggðin
hefur tekið eftir þessum börnum,
meðal annars eftir að þjóðarleiðtog-
ar hittust og gerðu sér grein fyrir
stöðunni. Og nú ætla þeir að bæta
úr. Þeir ætla að láta aukið fjárnragn
renna til þróunaraðstoðar til að
skapa börnunum betra líf. Leiðtog-
arnir ætla að taka höndum saman
um þetta verkefni og það þurfa ein-
staklingarnir líka að gera.
Hér er hægt að leggja hönd á plóg-
inn með ýmsu móti. Framlag íslend-
inga til þróunaraðstoðar og
neyðarhjálpar þarf að auka bæði hið
opinbera framlag og hlut einstakl-
inga. Jólafastan er gott tækifæri tii
að hugleiða þetta og um leið og við
búum okkur undir að gleðja hina
nánustu meðal okkar getum við
kannski líka leitt hugann að því að
gleðja fleiri — einhverja þeirra sem
eiga í erfiðleikum.
Hjálparstofnun kirkjunnar hefur
með höndum ýmis verkefni í vetur
og snerta mörg þeirra hag barna.
Hér fer á eftir stutt lýsing á þessum
verkefnum.
United Christian Church í Ind-
landi: Lúthersk kirkja í héraðinu
sem stjórnað er af prestinum John
Winston. Kirkjan rekur heimili fyrir
munaðarlaus börn, skóla og margs
konar starfsemi meðal hinna lægst
settu á Indlandi. Hjálparstofnun
hefur þegar sent 15 þúsund banda-
ríkjadali eða um 900 þúsund krónur
til byggingar skóla.
Samþykkt var að senda 60 þúsund
bandaríkjadali, kringum 3 milljónir
ísl. króna, til að byggja heilsugæslu-
stöð. Hluti framlagsins verður send-
ur fyrir árslok 1990 og afgangurinn
100 munaðarlaus börn hjá sama að-
ila. Framfæri þeirra kostar um 900
krónur á barn á mánuði — eða 90
þúsund krónur á mánuði alls —
rúma eina milljón yfir árið. Hug-
myndin er að leita eftir föstum
styrktarmönnum í þetta verkefni.
Mekane Yesus kirkjan í Eþípóíu: í
svonefndum Voitó-dal í Suður Eþí-
ópíu hefur Samband ísl. kristniboðs-
félaga tekið að sér að reisa
kristniboðsstöð þar sem jafnframt
er byggt sjúkraskýli og veitt heilsu-
gæsluþjónusta. Kostar þessi upp-
bygging alls um 12 milljónir króna.
Hjálparstofnun hefur lagt fram
um 3 milljónir króna til byggingar
sjúkraskýlisins sem nú er verið að
reisa. Sanrþykkt hefur verið að
leggja fram um 3,5 milljónir á þessu
og næsta ári til að Ijúka verkinu. Er
eftir áramót.
Einnig var samþykkt að aðstoða