Víðförli - 15.12.1990, Blaðsíða 9

Víðförli - 15.12.1990, Blaðsíða 9
aðallega um að ræða byggingu vatnsgeyma og hluta af kostnaði við íbúðarhús fyrir hjúkrunarfólk. Mun Hjálparstofnun því á rúm- lega tveimur árum leggja fram ríf- lega helming kostnaðar við uppbyggingu stöðvarinnar í Voi- tó-dalnum en SÍK fjármagnar hana að öðru leyti. Social Action Movement í Ind- landi: Samþykkt var að senda 300 þúsund krónur til áframhaldandi framkvæmda við skóla- og skrif- stofubyggingu og er þetta lokafram- lag af hálfu Hjálparstofnunar. Áður hefur þessi framkvæmd verið styrkt um rúm 500 þúsund. Þá hefur Hjálparstofnun sent rúmar 500 þús- und krónur upp í byggingarkostnað vegna heimilis fyrir vangefin börn. Prestsþjónusta fyrir krabba- meinssjúklinga: Heimahlynning Krabbameinsfélags íslands hefur annast þjónustu í heimahúsum fyrir krabbameinssjúklinga. Fyrirhugað er að ráða prest í hálft starf til reynslu í nokkra mánuði til sérstakr- ar þjónustu við krabbameinssjúkl- inga. Hjálparstofnun hefur samþykkt að greiða helming launa við þessa þjónustu I 6 mánuði, þ.e. fjórðung af prestslaunum. Áætlaður kostnaður er kringum 150 þúsund krónur. Sólheimar: Styrkt var bygging íbúðarhúsa við dvalarheimilið Sól- heima í Grímsnesi. Lagðar voru fram 3 milljónir króna og er þetta eitt stærsta innanlandsverkefni sem Hjálparstofnun hefur ráðist í á síð- ari árum. Skiptinemar frá Afríku: Tveir skiptinemar frá Afríkulöndum verða á íslandi í vetur við nám. Ann- ar þeirra er Móses frá Senegal og býr hann sig undir nám við Bændaskól- ann á Hvanneyri. Hjálparstofnun og Þróunarsamvinnustofnun íslands greiða sameiginlegan kostnað við uppihald hans. Hinn skiptineminn er stúlka, Wenza að nafni frá Ke- nýju. Hún lærir saumaskap við Iðn- skólann í Reykjavík. Kostnaður við þetta verkefni verður kringum 250 þúsund krónur. Aðstoð við konur í Kenýju: Prisc- illa Njoroge í Nairobi i Kenýju hefur tekið að sér aðstoð við konur sem lent hafa í erfiðleikum vegna áfeng- is- og eiturlyfjaneyslu eða vændis. Oft eru þetta konur með börn sem eiga erfitt með að afla sér lífsviður- væris. Sér hún um að kenna þeim einhver hagnýt störf og útvega þeim aðstöðu til að geta framfleytt sér og börnum sínum. Hjálparstofnun styrkti þetta starf á þessu ári með um 500 þúsund króna framlagi og ráð- gert er að senda á næsta ári um 600 til 700 þúsund krónur. Áfengis og eiturlyfjasjúklingar í Leshoto: Styrkt hefur verið starf meðal átengis- og eiturlyfjasjúkl- inga í Leshoto og verður svo aftur á þessu ári. Framlagið verður um 600 þúsund krónur. Aðstoð við flóttamenn í Mið- Austurlöndum: Hjálparstofnun kirkjunnar sendi í byrjun september um 300 þúsund krónur til aðstoðar flóttamönnum frá írak og Kúvæt sem flúið hafa til Jórdaníu. Kirkju- ráð Mið-Austurlanda telur að flótta- menn þessir þurfi frekari aðstoðar við þegar þeir komast heim. Margir þeirra eru Asíubúar sem eiga ekki ör- uggt lífsviðurværi þegar heim kemur. Kostnaður 12-13 milljónir: Öll þessi verkefni munu samanlagt kosta nærri 13 milljónir króna. Stefnt er að því að afla þessa fjár- magns að miklu leyti í hinni árlegu jólasöfnun Hjálparstofnunar. Styrktarmannakerfi stofnunarinnar mun líklega get'a hátt í tvær milljónir króna á yfirstandandi ári. Jóhannes Tómasson 9

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.