Víðförli - 15.12.1990, Blaðsíða 28
Heimaföndur
Jólaskraut
Hjartað táknar oft gleði og kær-
leika og þessvegna er gott að skreyta
með marglitum hjörtum um jólin til
að minna okkur á gleði jólanna og
kærleika Guðs. Gott er að nota
rauðan, gylltan eða silfraðan pappír
í skrautið sem sést hér á myndinni.
Teiknið hjörtun á litapappírinn eftir
sniðinu, klippið þar sem strikalínan
er og setjið hjartað saman og hengið
það upp með ljósum tvinna.
Þá er gaman að hafa jólaenglana
sem viðast um húsið um jólin til að
minna okkur á boðskap englanna á
Betlehemsvöllum. Klippið englana
úr litapappír eftir strikalínunum og
setjið þá saman. Þeir geta staðið á
borði og eins má hengja þá á jólatréð
eða búa úr þeim óróa.
Jólasveinar á fleygiferð
Heitt loft leitar upp, það sést best
ef maöur heldur tvinnaþræði yfir
ofni. Ef jólasveinn er hengdur upp
yfir ofni fer hann á fleygiferð ef ofn-
inn er heitur og það eru ofnarnir á
jólum. Þá reyna allir að hafa hlýtt og
notalegt. Við getum búið til þess
háttar jólakarla með því að klippa út
spíral. Þá klippum við stífan pappa
í hring t.d. eftir diski eins og sést hér
á teikningunni. Ef pappinn er þykk-
ur og strimillinn breiður, hangir
hann ekki Iangt niður, en ef pappinn
er þunnur og strimlar mjóir, verður
hann allur á lengdina. Við getunr
þess vegna valið hvernig við höfum
karlana.
Við klippum síðan út spíralana úr
rauðum, hvítum eða grænum pappa
límum á þá haus eftir sniðinu hér á
síðunni, eins getum við sett gull-
stjörnu efst, þá líkist þetta jólatré
(þá notum við græna pappann). Ef
við notum hvíta pappann, setjum við
haus með pípuhatti og þá er kominn
snjókarl. Reyndar má búa ýmislegt
til úr svona spírölum. Ef notaður er
nokkuð stífur hvítur pappi, má gera
rússibana og festa á hann litla jóla-
sveina sem virðast þá vera á
fleygiferð.
i!
28