Víðförli - 15.12.1995, Blaðsíða 32

Víðförli - 15.12.1995, Blaðsíða 32
fjSestu ós/íf/% /c'Sttnt/t^ yódfte', ff//t //*t(/sœ/tt atft/eritu ot/ t (//et/i/et/u/ó/u/utttth f/C'Stt nafni En það bar til um þessar rnundir, að boð kom frá Ágústus keis- ara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina, Þetta var fyrsta skrá- setningin og var gjörð þá er Kýreníus var Iandstjóri á Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar borgar. Þá fór og Jósef úr Galíleu frá borginni Nasaret upp til Júdeu, til borgar Davíðs, sem heitir Betlehem, en hann var af ætt og kyni Davíðs, að láta skrásetja sig ásamt Maríu heitkonu sinni, sem var þunguð. En meðan þau voru þar, kom sá tími, er hún skyldi verða léttari. Fæddi hún þá son sinn frumgetinn, vafði hann reifum og lagði hann í jötu, af því að eigi var rúm handa þeim í gistihúsi. En í sörnu byggð voru hirðar út í haga og gættu um nóttina hjarðar sinnar. Og engill Drottins stóð hjá þeim, og dýrð Drottins ljómaði kringum þá. Þeir urðu mjög hræddir, en engillinn sagði við þá: „Verði óhræddir, því sjá. ég boða yður mikinn fögnuð. sem veitast mun öllum lýðnum: Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs. Og hafið þetta til marks: Þér munuð finna ungbarn reifað og lagt í jötu." Og í sömu svipan var með englinum tjöldi himneskra her- sveita, sem lofuðu Guð og sögðu: Dýrð sé Guði í upphæðum, og friður á jörðu með mönnum, sem hann hefur velþóknun á. Þegar englarnir voru farnir frá þeim til himins, sögðu hirðamir sín á niilli: „Förunt beint til Betlehem að sjá það, sem gjörst hefur og Droltinn hefur kunngjört oss." Og þeir fóru með skyndi og fttndu Maríu og Jósef og ungbarnið, sem lá í jötu. Þegar þeir sáu það, skýrðu þeir frá því, er þeim hafði verið sagt um barn þetta. Og all- ir, sem heyrðu. undruðust það, er hirðarnir sögðu þeim. En María geymdi allt þetta í hjarta sér og hugleiddi það. Og hirðarnir sneru aftur og vegsömuðu Guð og lofuðu hann fyrir það, sem þeir höfðu heyrt og séð, en allt var það eins og þeim hafði verið sagt.

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.