Víðförli - 15.12.1995, Blaðsíða 3

Víðförli - 15.12.1995, Blaðsíða 3
Þankar um trú Jólí skugga sorgar Enn koma jólin, hátíð ljóss og friðar eins og þau eru gjama nefnd, og aftur breytist samfélagið og fær nýja mynd, skreytta marglitum ljósum og augnayndi ýmiss konar. Hversdagurinn hverfur og svart- nætti vetrarins þarf að hörfa um stund. Allur umbúnaðurinn áréttar tilganginn, nú skal ylja öllum um hjartaræturnar og lífga hugskotið með gleði og kátínu, eyrnamarki þessa stærsta félagslega viðburðar íslensks þjóðlífs. Þetta árið mun þó fleirum þykja erf- iðara að gleðja og gleðjast en oft áður. Sorgin, þessi systir lífsins sjálfs, hefur verið kölluð til víðar á þessu ári en við eigum að venjast. Mæður, feður, syst- kini, börn og vinir hafa verið hrifin burt úr hópi ástvina. Eftir sitja syrgj- endur, einstaklingar með brostið hjarta sem ekki geta fengið af sér að kætast eins og vænst er við jólahald. Rofin tengsl, brostnar vonir, óöryggi og með- vitund um fallvaltleika lífsins varpa skugga sínum yfir allt í umhverfi þess sem syrgir. Hvað verður þá um jólin? Hvernig getum við fengist við misræmið sem virðist svo augljóst á milli jóla og sorgar? Hvers ber að gæta í nærveru sorgarinnar? Ég ætla ekki að reyna að svara þessum spurningum til hlítar heldur aðeins vekja lesendur til umhugsunar um fáein atriði. Þeim skal síðan eftirlátið að heimfæra og út- færa orð mín í Ijósi eigin reynslu. Fyrst vil ég nefna þá einföldu staðreynd að við fáum litlu ráðið þegar sorg er annars vegar. Það er ekki undir okkur komið hvort eða hvar hún kveður dyra. Hún ein- faldlega fylgir í kjölfar áfalla, hvort sem það er dauðs- fall eða mikilsverð lífsreynsla sem við verðum fyrir. Að sama skapi getum við ekki valið hvort við syrgjum þó við getum haft mikið að segja urn hvernig ferill sorgar- innar verður. I öðru lagi er sorg aldrei einskorðuð við einstaklinga. Syrgi einhver hefur það áhrif á alla þá sem eru í tengslum við viðkomandi. Syrgjandinn getur ekki komið í veg fyrir að svo verði þó það sé hverjum og ein- um í sjálfsvald sett hvenær og hversu mikið hann eða hún velur að opna hjarta sitt. Sorg er ekki aðeins tjáð með orðum. Hún krefst hins vegar viðurkenningar, ekki eingöngu syrgjandans sjálfs, heldur allra þeirra sem tengjast honum. Hér er það sem okkur verður oft áfátt. Okkur hættir til að hlaupast undan og láta sem ekkert sé, eða ofgera rétt eins og við vænturn þess að mega græða sár sorgarinnar í einni svipan. Sorgin krefst ekki alltaf rnikils af þeim sem hjá standa. Viðurkenning tilvistar hennar er oft allt sem þarf að því tilskildu að það sé gert af tilfinningalegri ein- lægni. Syrgjendur hafa lítið umburðarlyndi gagnvart yf- irdrepsskap eða látalátum gagnvart sorg þeirra. Reynsla þeirra ristir of djúpt til að leyfa slíkt. Sorgin er óaðskilj- anlegur förunautur þeirra. Hvar sem þeir fara þar fer hún og hvar sem henni er haldið frá þar mun sá sem syrgir finna sig óvelkom- inn. Hvað verður um jólin í ljósi alls þessa? Ef gaumur er gefinn að trúar- legu inntaki jólanna þá er þar að finna boðskap sem flytur líkn til þeirra sem þjást. Á jólum fögnum við holdtekn- ingu Guðs. Við fögnurn því að Guð lætur sig vai'ða og sinnir um allt það sem mannlegt er. Endurlausnin, boðið um samfélag við Guð, nær til allrar reynslu okkar og virðir þjáningu og sorg. Slíkt samfélag er heilsteypt og óheft. Það krefst þess ekki að við lát- umst eða að við bægjum frá depurð, reiði eða angist. Allt þetta á heima í samfélagi okkar við Guð. Guð skirrist ekki við að eiga samfélag við þá sem þjást því Guð hef- ur sjálfur þjáðst og reynt angistina sem er samfara því að vera yfirgefinn. I Matt. 27.46 sjáum við þjáningu Jesú er hann hrópar af krossinum: „Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfir- gefið mig?“ Þar er Jesús að vitna í 22. Davíðssálm, en allur sá sálmur er angistarhróp til Guðs. Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig? Ég hrópa, en hjálp mín er fjarlæg. „Guð minn!“ hrópa ég um daga, en þú svarar ekki og um nætur en ég finn enga ró. Og samt ert þú Hinn heilagi, sá sem ríkir yfir lofsöngvum ísraels. Þér treystu feður vorir, þeir treystu þér og þú hjálpaðir þeim, til þín hrópuðu þeir, og þeim var bjargað, þér treystu þeir og urðu ekki til skammar." Þegar jólin eru haldin í skugga sorgar fær boðskapur- inn um þátttöku Guðs í mannlegum kjörurn nýja vídd, þar sem Guð tekur þátt í sorginni. Guð sjálfur knýr dyra og biður urn að fá að ganga veg sorgarinnar með þeim sem syrgir. Hvatning jólanna til þeirra sem hjá standa er að þeir reyni að fylgja þessu fordæmi Guðs. Það þarf ekki að vera misræmi á milli sorgar og jóla. Hins vegar þurfum við alltaf að gæta þess að umbúnaðurinn eða við sjálf hindrum ekki að jólin nái hjörtum þeirra sem syrgja. Gunnar Rúnar Matthíasson VÍÐFÖRLI 3

x

Víðförli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víðförli
https://timarit.is/publication/1508

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.