Bæjarins besta - 09.06.1999, Side 2
Útgefandi:
H-prent ehf.
Sólgötu 9, 400 ísafjörður
n 456 4560
O 456 4564
Netfang prentsmiðju:
hprent@snerpa.is
Stafræn útgáfa:
http ://www. snerpa. is/bb
Ábyrgðarmenn:
Sigurjón J. Sigurðsson
Halldór Sveinhjörnsson
Ritstjóri:
Sigurjón J. Sigurðsson
Blaðamaður:
Hlynur Þór Magnússon
Netfang ritstjómar:
hh@snerpa.is
Bæjarinsiiesta er í samtökum tæjar- og héraðs-
fréttahlaða. Eftirprentun, hijóðritun, notkun lj ósmynda
og annars flfaln er óheimll nema heimilda sé getið.
Hópurinn sem stendur að Morranum atvinnuleikhúsi ungs fólks í Isafjarðarbœ. /’etta er hœfilega blanda afþaulreyndum
og minna reyndum ungmennum. Leikstjórinn, Elvar Logi Hannesson frá Bíldudal, sem á að baki langt leiklistarnám
erlendis, er fremst til vinstri.
Morrinn, atvinnuleikhús ungs fóiks í isafjaröarbæ
Það væri svo
sem eftir öðru
Sjómannadagurinn að baki. Sjómannadagsveðrið brást
ísfirðingum ekki frekar en fyrri daginn. Gott veður á
sunnudag, hryssingur daginn áður þegar hátíðarhöldin
fóru fram. Við þessu er víst ekkert að gera fremur en svo
mörgu öðru.
A.m.k. sumir ræðumanna dagsins lögðu áherslu á að
þetta væri síðasti sjómannadagurinn á öldinni. Og þar til
skipaðir ráðamenn höfðu heildartölur aldarinnar um
sjómenn, örlög þeirra og atvinnu, á takteinum. Ekki vant-
aði það.
Allt hefur sitt upphaf og endi. Eða er ekki svo? Hvar
byrjar hringurinn? Hvenær byrjar ný öld og hvenær endar
gamla lúna öldin sem allir bíða eftir að geta kvatt?
Eitt af því sem stöðugt meiri ítroðsla og stórstígar
framfarir á sviðum vísinda og hvers kyns fræða hefur
fært okkur er að vera ósammála um hvenær tuttugustu
öldinni lýkur. Ætla mætti að margir setji samasemmerki
á milli tvöþúsundvanda tölvuheimsins og ársins tvö-
þúsund sem upphaf nýrrar aldar. Þrátt fyrir framfarir ráða
læknavísindin ekki við alla vírusana sem hrjá mann-
kindina.
f lítilli, snoturri bók, „Dagar íslands”, er hefur að
geyma sýnishorn atburða úr sögu og samtíð, „stórtíðindi
í aldanna rás, en einnig hið skrítna og skondna” alla daga
ársins, má lesaeftirfarandi undirdagsetningunni 1. janúar.
„1901: Nýrri öld var heilsað með fagnaðarópum mann-
fjölda sem safnast hafði saman á Austurvelli í Reykjavík
að kvöldi 31. desember 1900.”
Missti aldamótakynslóðin, sem með réttu er vitnað til
sem dugmikillar og framsækinnar og sem við í öllum
ræðum og fræðum keppumst við að lofa og prísa, af alda-
mótunum? Voru fagnaðarópin á Austurvelli í henni
Reykjavík ári of seint? Voru gleðitárin sem runnu niður
kinnar á kaldri vetrarnóttunni ársgömul, þegar allt kom
til alls?
Ætlar tölvukynslóðin að forðast seinaganginn í for-
feðrunum og fagna komu nýrrar aldar 99 árum eftir að
húrrahróp aldamótakynslóðarinnarbergmáluðu íAlþing-
ishúsinu við Austurvöll?
Er ekkert að marka sem stendur í þessari „eigulegu og
áhugaverðu bók sem flett verður upp í aftur og aftur” og
sem unnin er upp úr hundruðum heimildarrita og gefín út
af virtu forlagi?
Eða eigum við bara eins og með allt annað að heimfæra
þetta upp á nútímann og pólitíkina og segja að þetta sé
allt saman rétt eftir því út frá hvaða forsendum er reiknað?
Það væri svo sem eftir öðru! -s.li.
ORÐ VIKUNNAÐ
Orf - sláttuorf
Nú er oft verið að auglýsa „sláttuorf‘. Orðið orf merkir
ekkert annað en tiltekið handverkfæri sem notað er við
slátt. Ástæðulítið virðist að taka fram, að orf sé ætlað til
sláttar. Eða ætli menn tali næst um „akstursbíla",
„námsskóla" eða „drykkjarkaffi” í staðinn fyrir bíla,
skóla og kaffi?
Orðskrípið „sláttuorf' virðist helst notað um orf sem
búið er vél. Eðlilegt væri að nota orðið vélorf um slfk
tæki, sbr. bátur - vélbátur.
Annað starfsárið hafið
Atvinnuleikhús ungs fólks
í ísafjarðarbæ hóf starf sitt sl.
mánudag, annað sumarið í
röð. Fyrstu vikurnar verður
leiklistarskóli þar sem farið
verður í látbragð, trúðalistir
og aðrar listir. Einnig verður
umsvifalaust byrjað að sýna
og verður fyrsta verkið sýnt á
kirkjulistahátíð á Patreksfirði
á sunnudaginn. Leikhúsið ætl-
ar að taka á móti erlendu
skemmtiferðaskipunum sem
koma til Isafjarðar í sumar, en
þau verða alls ellefu, með
þjóðlegri dagskrá, leik, söng
og dansi.
Yngsta kynslóðin verður
ekki skilin útundan því leik-
húsið hyggst setja upp barna-
leikrit og sýna það í leikskól-
um bæjarins. I byrjun júlí
verður ferðamönnum sem og
heimafólki boðið í óvenjulega
skoðunaferð með listrænu
ívafi. Farið verður á sögulegar
slóðir í bænum og á hverjum
stað verður óvænt uppákoma
sem tengist staðnum sjálfum.
Um miðjan júlí mun leikhúsið
bjóða leiklistarnámskeið fyrir
yngstu kynslóðina og verður
það auglýst nánar þegar nær
dregur.
Hér hefur aðeins verið nefnt
það helsta en af nógu er að
taka, Hópurinn sér fram á
skemmtilegt sumar og vonar
að sem flestir eigi eftir að njóta
þess með honum.
Það er ekki hlaupið að því
að stofna atvinnuleikhús, að
sögn þeirra sem reynt hafa.
Síðastliðið sumar fengu átta
krakkar styrk frá ísafjarðarbæ
til að reka svokallaðan Far-
and- og fjöllistahóp á Vest-
fjörðum („Farogfjö") í tengsl-
um við vinnuskólann. Það
verkefni gekk mjög vel að
flestra mati, þrátt fyrir nokkrar
óánægjuraddir sem urðu e.t.v.
sterkari en skyldi. í lok þess
verkefnis skiluðu krakkarnir
af sér samantekt á sumarstarf-
inu, „Gaman saman“, og
gerðu þar grein fyrir verkum
sínum. Það var aðallega eitt
sem þar koma fram sem allir
voru sammála um: Þetta var
gaman og svona þarf að gera
aftur.
Svo liðu mánuðir og í febr-
úar í ár var kominn tími til að
fara að gera eitthvað til að af
þessu yrði. Hófst þá undir-
búningsvinna hjá skóla- og
menningarfulltrúa en bærinn
hafði falið honum að undirbúa
verkefnið. Menningarnefnd
hafði samþykkt 350 þúsund
króna styrk og átti hann að
fara í laun leikstjóra og hvers
konar undirbúning. Talsmaður
„Farogfjö" var fenginn til að
láta í ljós álit á framkvæmd-
inni og þótti hópnum það mik-
il upphefð, a.m.k.fyrst í stað.
Eftir dálitla undirbúnings-
syrpu hófst svo nokkuð sem
íslendingum er tamt: „Það er
ekki eftir neinu að bíða - en
samt bíðum við aðeins”.
Já, það er erfitt að etja við
risa, en það hefst. Allt of seint
var málið lagt fyrir fræðslu-
nefnd, sem samþykkti, þvert
á óskir allra sem helst til
þekktu, að setja leikhúsið und-
ir vinnuskólann eins og í fyrra
en huga að þeim vanköntun
sem upp höfðu komið. Merki-
legt að allir sögðu að þetta
væri óráðlegt, en...
Eftir kvabb og vesan fannst
leikstjóri. Það var alveg r það
seinasta en betra er seint en
aldrei. Núna er allt í góðum
farvegi og kannski geta þeir
sem vinna að verkefninu gert
gott úr hlutum sem áttu aldrei
að verða að veruleika.
Óefnt ioforö Byggðastofnunar um ián til Rauðsíóu
Hunsar forstjórinn vilja stjórnarinnar?
Frystihús Rauðsíðu ehf. á
Þingeyri var á nauðungarupp-
boði sl. mánudag slegið Spari-
sjóði Bolungarvíkur. Þetta var
fyrsta uppboð og hefur fyrir-
tækið sex vikna frest til að
ganga frá sínum málum. Eins
og greint er frá annars staðar í
blaðinu,hefurByggðastofnun
dregið lappirnar við afgreiðslu
hundrað milljóna króna láns
sem samþykkt var fyrir all-
löngu að veita fyrirtækinu að
uppfylltum ákveðnum skil-
yrðum. Ketill Helgason hjá
Rauðsíðu kvartar yfir því að
l'á ekki heldur nein svör frá
forstjóra Byggðastofnunar,
Guðmundi Malmquist.
Einhverbresturvirðisteinn-
ig vera milli forstjóra Byggða-
stofnunar og stjórnar stofn-
unarinnar. Egill Jónsson,
stjórnarformaður Byggða-
stofnunar og fyrrverandi al-
þingismaður, segir í samtali
við Morgunblaðið í gær:
„Stjórn Byggðastofnunar á
að rækja skyldur sínar með
þeim hætti að bregðast við
þegar vanda ber að höndum í
byggðum landsins með svip-
uðum hætti og nú hefur gerst
á Vestfjörðum. Hafi ég mis-
skilið þetta hef ég hvorki
skilið hlutverk þessarar stjóm-
ar í fjögurár, né heldurbreytni
hennar.“
Naumast ætti að þurfa að
taka fram, að forstjóri
Byggðastofnunar er starfs-
maður stjórnarinnar og undir
hanasettur. Þaðhlýturaðkalla
á skýringar, ef hann getur
hunsað ákvarðanir stjórnar
þeirrar stofnunar sem hann
vinnur hjá.
r --
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða I
Fjórðungssamband Vestfirðinge 1
Svæðisvinnumiðlun Vestfjarða
Skrifstofúrokkar verðaiokaðarmánudaginn 14.júníogþriðjudaginn
15. júní vegna fiutninga.
Opnum miðvikudaginn 16. júníí Þróunarsetri Vestfjarða, Árnagötu
2-4, ísafirði, sími 450 3000.
Starfsfóiky
2
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ 1999