Bæjarins besta - 23.06.1999, Síða 6
Þróunarsetur Vestfjarða opnað með pompi og prakt að Arnagötu 2-4 á isafirði
Mikilsverður áfangi stiginn fyrir þróun
byggðar og atvinnulífs á VestQörðum
- sagði Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða
og forstöðumaður Þróunarsetursins m.a. við opnunina
Hjalti Karlsson forstöðumaður Hafrannsóknastofnunar ú ísafirði og Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri Atvinnu-
þróunarfélags Vestfjarða og forstöðumaður Þróunarseturs Vestfjarða með „lykil að framtíð" sem byggingaverktakinn
Agúst og Flosi ehf, færði Þróunarsetrinu.
Fjölmenni var viðstatt opn-
un Þróunarseturs Vestfjarða á
Isafirði sl. föstudag. Meðal
viðstaddra voru sjávarútvegs-
ráðherra, Arni Mathiesen, for-
stöðumenn þeirra stofnana
sem standa að Þróunarsetrinu,
þingmenn kjördæmisins og
aðrir gestir. Að Þróunarsetrinu
standa Atvinnuþróunarfélag
Vestfjarða, Fjórðungssam-
band Vestfirðinga, Hafrann-
sóknastofnun, Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins og
Svæðisvinnumiðlun Vest-
fjarða. Helstu markmið Þró-
unarsetursins eru að efla
starfsvettvang starfandi stofn-
ana og fyrirtækja á sviði rann-
sókna og þróunar, að skapa
nýtt umhverfi og nýjan grund-
völl til öflunar nýrra verkefna
á Vestfjörðum sem og á lands-
vísu og að koma á og þróa
samstarfsnet aðila innan set-
ursins sem utan þess. Þá er
því ætlað að vera hluti af upp-
byggingu símenntunar áVest-
fjörðum og að bæta aðgengi
að þjónustu við íbúa Vest-
fjarða.
ÞróunarseturVestfjarða hef-
ur aðsetur að Árnagötu 2-4, í
húsnæði sem Vestri ehf. er
eigandi að, en það fyrirtæki
fjármagnaði breytingarnar á
húsnæðinu sem sniðnar eru
að þörfum hvers stofnaðila.
Húsnæðið, sem allt er hið
glæsilegasta, ber þess vott að
fólk með fagþekkingu og hug-
myndaauðgi hefur verið að
verki. Hönnun þess varí hönd-
um þeirra Elísabetar Gunn-
arsdóttur arkitekts og Sveins
Lyngmo, tæknifræðings og
aðalverktakar voru Ágúst og
Flosi ehf.
Ólafur B. Halldórsson for-
stjóri og einn eigenda hús-
næðisins sagði m.a. í ávarpi
sínu við opnunina: „Fyrir
okkur Vestfirðinga er dagur-
inn í dag ánægjulegt framhald
af þjóðhátíðinni. Nú eru um
það bil tvö ár síðan tveir hug-
myndasmiðir, þeir Halldór
Halldórsson núverandi bæjar-
stjóri IsatjarðarbæjarogAðal-
steinn Óskarsson fram-
kvæmdastjóri Atvinnuþróun-
arfélagsins, kornu þeirri ágætu
hugmynd á framfæri við okk-
ur að koma upp þróunarsetri,
þar sem ýmsar stofnanir störf-
uðu undir sania þaki til þess
að samhæfa og vinna úr góð-
um hugmyndum í þágu at-
vinnulífsins. Ég vænti, að þeir
geti staðfest, að hugmyndinni
var strax vel tekið hér á bæ.
Nú, aðeins tveimur árum síð-
ar, er þetta orðið að veruleika,
sem verður að teljast harla
gott.”
Ólafi var efst í huga þakk-
læti til allra þeirra sem komið
höfðu því til leiða að þessi
áfangi var nú í höfn og nefndi
hann sérstaklega þau Elísa-
betu Gunnarsdóttur arkitekt
og Svein Lyngmo tæknifræð-
ing auk aðalverktakanna
Ágústar og Flosa ehf. Síðan
sagði Ólafur: „Það ágæta fólk,
sem nú tekur til starfa, vil ég
bjóða velkomið í Vestrahúsið
eða ísfirðingshúsið eins og
það hefur verið kallað. Hér
vann á árurn áður fjöldi fólks
við að umbreyta gulli sjávar í
gjaldeyrisverðmæti. Það fer
vel á því, að nú verður þetta
vinnustaður skapandi hugs-
unar.” Sem hvatningarorð til
starfsmanna Þróunarseturs
Vestfjarða leitaði Ólafur í
smiðju Davíðs Stefánssonar
frá Fagraskógi:
„Allir vita, að ekki vex hár
hlynur af fræi á einu sumri.
En sé að honum hlúð af skyn-
semd og þolinmæði, mun hon-
um vaxa þróttur og fegurð.
Enginn væntir suðrænnar veð-
urblíðu að staðaldri norður við
Ishaf, né gullregns úr gráum
skýjum. En hins væntum við
öll, að sá lífsmeiður, sem hér
festi rætur, verði langlífur í
landinu. En öllu heldur vænt-
um við þess, að hugsun
mannsins verði hrein og
Aðalfundur
Aðalfundur Björgunarfélags ísafjarðar
verðurhaldlnn í Slgurðarbúð miðvikudaginn
30. júní kl. 20:00.
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt
lögum félagsins.
Félagar eru hvattir til að mæta.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin.
Auglýsingar og áskrift
Sínti4564560
Ólafur B. Halldórsson einn eigenda Vestra-hússins fœrir þeim Elísabetu Gunnarsdóttur
arkitekt og Sveini Lyngmo tœknifrœðingi þakklœtisvott fyrir vel unnið verk.
Handverksfélagið Karítas opnar verslun
Héldu hlutaveltu
Þessar stúlkur efndu til
hlutaveltu fyrir stuttu og
færðu Rauða krossinum af-
raksturinn kr. 2.269.-
Stúlkurnar heita Elín
Jónsdóttir, ísafjarðarvegi 2,
ísafirði og Steinunn Frið-
geirsdóttir, Rauðalæk 53,
Reykjavík.
Allt frá stofnun fyrir fáum
árum hefur það verið draum-
urinn hjá Karítas, félagi
handverksfólks á Isafirði og
víðar, að eignast samastað
til þess að selja vörur sínar.
Nú hefur ræst úr því, að
minnsta kosti í sumar, og
búið er að opna verslun á
jarðhæðinni að Aðalstræti
20, þar sem Vitinn var, við
hliðina á Ríkinu.
Hér á svæðinu er margt
handverksfólk sem er ekki í
félaginu, - „en það er veikom-
ið í félagið ef það hefur áhuga
og fær þá aðstöðu hjá okkur
til að selja sína vöru“, sagði
Gréta Sturludóttir verkefna-
stjóri í samtali við blaðið.
„Einnig gefst fólki kostur á
því að gerast styrktarfélagar."
Enda þótt flestir félagsmenn í
Karítas séu á Isafirði er þar
einnig fólk búsett annars stað-
ar, m.a. á Ingjaldssandi, Pat-
reksfirði og Örlygshöfn. Eng-
in skilyrði eru um búsetu, að
sögn Grétu.
I versluninni kennir margra
grasa. „I félaginu eru margar
stórvirkar prjónakonur. Á
boðstólum eru lopapeysur,
venjulegar peysur, sokkar,
húfur og fleira, og fyrir utan
prjónavöruna eru kort og
bréfsefni, gestabækur, út-
saumur, útskornirgripirúrtré,
t.d. með allskonar góðum
málsháttum og snjöllum gam-
anyrðum, og smávegis af
renndum trévörum, m.a. statíf
fyrir tannstöngla og servíettur,
sem einn af fáunt karlmönn-
um í félaginu hefur unnið.“
Eins og jafnan í félögum af
þessu tagi eru konur í meiri-
hluta, - „en það eru hagleiks-
srniðir inni á milli."
Handverksfélagið Karítas
var stofnað 25. nóvember
1995. Formaður frá stofnun
hefur verið Inga Rut Olsen.
Nafnfélagsinsertil minningar
um Karítas Hafliðadóttur, sem
lést árið 1945. Hún stundaði
nám í kennslufræðum í Dan-
rnörku fyrir aldamót og starf-
aði lengi sem kennslukona á
Isafirði og var mikil hannyrða-
kona. Tilgangur félagsins er
að sameina krafta handverks-
fólks, viðhalda görnlu hand-
verki og halda námskeið.
6
MIÐVIKUDAGUR 23. JUNI 1999