Bæjarins besta - 21.07.1999, Blaðsíða 9
Að vanda komu fjölmargir gestir til
Suðureyrar til þess að taka þátt í hátíðar-
höldum hinnar árlegu „Sæluhelgar66, en
hátíðin stóð frá fímmtudegi og fram á
sunnudagskvöld. Brottfluttir Súgfírðingar
og aðrir gestir eru farnir að hafa fyrir
reglu að fjölmenna til Súgandafjarðar til
að taka þátt í hátíðinni. Var því troðfullt út
úr dyrum í hverju húsi og
komust færri að en vildu.
Veður setti aðeins strik í
reikninginn en dagskráin
gekk þó að mestu eftir.
Sandkastalakeppnin var Itelguð ári hafsins. Hún var haldin á Suðureyri en hœtt var við að
fara yfir á Norðureyri eins og til stóð.
Það var stöng við stöng á
mansakeppninni á Suður-
eyri.
SÆL UHEL GL
á Suðureyri
Lifandi fiskur var í kerum til sýnis fyrir gesti á Sæluhelgi.
Tvœr ungar dömur eru liér að gera beholningu, eins og
það var eitt sinn kallað. Fiskinum var sleppt aftur í sjóinn
að hátíð lokinni.
Grillað ofan í gesti á Sœluhelgi á Suðureyri.
Á annað hundrað krakka
allt til tólf ára aldurs tók þátt í
þeim lið dagskrárinnar sem
vinsælastur var hjá yngri
kynslóðinni, mansakeppn-
inni. Aflakóngurinn í ár var
Smári Karvel Guðmundsson.
Af öðrum dagskrárliðum má
nefna fjallgöngu, hjólarall,
kassabílarall, gjarðaskopp,
kleinukeppni, harðfisks-
keppni og söngvarakeppni,
fyrir utan ýmsar kraftagreinar
eins og sleggjukast, karadrátt
og ruslatunnuhlaup. Þátttaka
í þessum greinum er mjög
almenn og keppa konur jafnt
sem karlar, stúlkur jafnt sem
piltar, og meðal keppenda í
sleggjukastinu mátti þekkja
þingmanninn Kristin H.
Gunnarsson. Hann stóð sig
nokkuð vel af byrjanda að vera
en Sturla Gunnar Eðvarðsson
sigraði með glæsilegu kasti.
Þá vekur hinn árvissi „hús-
mæðrafótbolti“miklaathygli,
en þar mætast heimahúsmæð-
ur og aðkomuhúsmæður á
knattspyrnuvellinun Að
þessu sinni fóru hinar síðar-
nefndu með sigur af hólmi
undir frækilegri stjórn Svein-
bjargar Hermannsdóttur, sem
hefur farið fyrir liðinu síðustu
árin.
Fyrir allar keppnisgreinar
eru veitt vegleg verðlaun,
ýmist bikarar eða medalíur.
Auk þess hljóta sigurvegarar
ýmsa titla, svo sem krafta-
strumpur og -strympa o.s.frv.
Sameiginlegt útigrill með
söng og glensi var á föstu-
dagskvöldið en að loknu
barnaballi á laugardagskvöld
dönsuðu þeir eldri langt fram
á nótt á stórdansleik með
Geirfuglunum. Á sunnudag-
inn var útimarkaður, þar sem
til sölu var m.a. vestfirskt
handverk, harðfiskur, bækur,
fatnaður og tælenskur matur.
Þá seldu kvenfélagskonur
kaffi og vöfflur í stóru tjaldi.
Fyrirsætu &
framkomunámskeið
fyrir 13-15 ára og 16-25 ára.
e s k i m o
model management
ísafjörður 5.-7. Ágúst.
Viö ferðumst um landið með Bylgjulestinni, Séð&heyrt og Skitamóral.
Myndbönd • Tískusýningarganga • Förðun
Efling á sjálfstrausti • Innsýn í fyrirsætuheiminn • Myndataka
Framkoma
Pósur
Uppsetning á tískusýningu • Sumarstúlkan
• Umhirða húðar
1 Séð&Heyrt stúlkan
Leiðbeinandi: Brynja X. Allir fá
eskimo bol, kynningarbækling,
viðurkenningarskjal & komast
á skrá fyrir sjónvarps-
augiýsingar.
4,61 Afr
Þátttakendur á námskeiðinu taka þátt í
risatískusýningu sem verður inni í dagskrá
Bylgjulestarinnar. 4-6 stúlkur 16-25 ára verða
valdar til þess að taka þátt í keppninni um
sumarstúlkuna sem valin verður um kvöldið.
Séð & heyrt stúlkur verða
valdar úr hópi þátttakenda
á námskeiðunum. Eín eða
fleiri á hverjum stað.
Sumarstúlka ísafjarðar fer svo
til Akureyrar 28.ágúst þar sem
valin verður sumarstúlkan'99
með pompi & prakt.
Skráning i sima 552-8012 eða
eskimo@eskimo.is
Verð kr.13.900.-
vestmannaeyjar 3-5.jun»
Borgarnes 10-12. Júní
Stykkishólmur 14-19.júní
Höfn 24-26.júní
Akureyri 1 -3.júlí
Reyðarfjörður
Selfoss
Blöndós
ísafjörður
Reykjanesbær
Reykjavík
8-10.júlí
15.-17.júlí
22-24.júl«
5-7.ágúst
12.-14.ágúst
19-21 .ágúst
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 1999 9