Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.08.1999, Side 7

Bæjarins besta - 18.08.1999, Side 7
iiestii ináli ínn langstærsti hluthafi í Básafelli hf. Guðmundur Kristjánsson ásamt Sigurbirni Magnássyni, lögfrœðingi og stjórnarmanni í Básafeili hf Þingeyri - Nú fórstu í kynnisferð til Flateyrar og Suðureyrar að loknum hluthafafundinum á fimmtudag. En ertu eitthvað að spá í Þingeyri? „Nei. ég er ekkert að hugsa um Þingeyri.“ - Hvernig líst þér á það sem þar er á döfmni? ,.Ég er þeirrar skoðunar að það sé jákvætt fyrir Vestfirði að fá inn nýtt fjármagn og ný fyrirtæki. En byggðakvóti af þessu tagi er vandmeðfarinn, því að hann má ekki skekkja samkeppn- isstöðu fyrirtækja á svæðinu. Ég tel að úthlutun byggðakvóta sé röng stefna og muni alltaf skapa úlfúð, hvert sem hann fer. Kvóti er einfaldlega ígildi peninga. Þarna er bara verið að taka ákveðinn stað út úr og það er ekki gott.“ Gamla Sigurvonin gerö út frá Rifi Skrifstofa Kristjáns Guðmundssonar hf. á Rifi er núna í Reykjavík. Arið 1992 var fjárfest í tveimur stórum línubátum, Tjaldi og Tjaldi II. Fyrirtækið á nú og gerir út annan þeirra. „í dag erum við með saltfiskverkun og einn bát á Rifi. Það er gamla Sigurvonin frá Suðureyri, sem er núna gerð út til dagróðra frá Rifi. Þar er sérstakt félag og svo er sérstakt félag um útgerðina á Tjaldinum. Hann landar mest í Reykjavík en þegar við erum í ferska fiskinum fer hann oft á Rif.“ Eins og margir muna fór Tjaldur II á tilraunaveiðar við Falklandseyjar á sínum tfma, en sú tilraun gekk ekki sem skyldi. Skip fyrirtækisins hafa farið miklu víðar og prófað margt og leitað að miðum allt suður til Azoreyja. Farnar hafa verið margar hringferðir á djúpslóðinni hringinn í kringum landið við misjafnan árangur. Meðal annars varð þokkalegur árangur af tilraunaveiðum á grálúðu á djúpslóðinni út af Reykjanesi, utan við 200 mílurnar. „Ég mun vissu- lega leita til heima- manna sem áhuga kunna að hafa að starfa með okkur, að minnsta kosti í rækjunni." „Það eru ákveðin grundvallaratriði sem hafa ekki verið í lagi á Vestfjörð- um, en maður sér að það er komið í lag t.d. á Patreks- firði." „Það er ekkert launungarmál að í Básafelli hafa verið gerð stjórnunarleg mistök. Þar eiga eigendurnir vissu- lega sinn þátt." Starfið helsta áhugamálið Guðmundur Kristjánsson mun eiga fáar tómstundir utan vinnunnar og nann viðurkennir það fúslega. „Nei, ég er ekkert í golfi! Konan mín segir að ég hugsi bara um vinnuna. Ég hleyp mikið og reyni að hreyfa mig sem mest. En starfið er mitt helsta áhugamál.“ Á yngri árum var Guðmundur mikið í íþróttum, bæði fótbolta og frjálsum. En hann gerir afar lítið úr því. Rétt eins og öllu tali um bjargvætti. Hann vonast aðeins til að geta lagt svolítið lóð á vogarskálina til þess að Vestfirðingar segi við sjálfa sig: Við getum þetta alveg sjálfir! - Sú var tíðin að Vestfirðingar gátu bjargað sér sjálfir... „Eigum við ekki að vona að sú tíð komi aftur!“, segir Guðmundur Kristjánsson frá Rifi, nýr stjórnarformaður og langstærsti hluthafi í Básafelli hf. í ísafjarðarbæ. „Ef ísafjörður og Vestfirðir í heild eru ekki ákjós- anlegt svæði fyrir sjávarútveg, þá verður þar enginn sjávarútvegur." „Sala á veiðirétti er það síðasta sem maður tekur ti! bragðs." Mat á starfi Fram- haldsskóla VestQarða Frá námskynningu í Framhaldsskólanum í niars sl. Veturna 1997-99 fórfram úttekt á skólastarfí í Fram- haldsskóla Vestfjarða á Isa- firði, oft nefnt „sjálfsmat”. Á milli skólans og mennta- málaráðuneytis var gerður samningur um verkefnið. Rétt þykir að skýra opin- berlega frá ýmsum helstu niðurstöðum þessa mats. Úttektin átti að taka til ýmissa atriði úr nemenda- bókhaldi, þá skyldi leggja mat á kennslu með spurn- ingalistum til nemenda, og loks skyldi kanna stjórnun skólans og ýmsa þætti tengda henni. Stærðfræðieinkunnir líkar í 10. bekk og á 1. ári framhaldsskóla Smári Haraldsson athug- aði frammistöðu í stærð- fræði á 1. námsári og sýndi fram á mikla jákvæða fylgni stærðfræðieinkunna ein- stakra nemenda á samræmd- um prófum grunnskóla og á prófurn á 1. ári í FVI. Þá gerði Jón R. Sigurvinsson rækilega könnun á brottfalli nema í bóknámi í Fram- haldsskólaVestfjarða 1989- 99. M.a. kom í ljós að haust- in 1989-95 innrituðust að meðaltali 53 nemendur í áfangann ÍSL 103, sem þyk- ir marktæk viðmiðun um tjölda í almennu bóknámi 1. árs, en fjórum árum síðar urðu stúdentar að meðaltali aðeins 20. Sérstaklega margir falla í stærðfræði á 1. ári, en slíkt er reyndar alþekkt í öðrum skólum. Kennurum kynnt álit nemenda á kennslu þeirra Þrisvar voru lagðir ræki- legir spurningalistar fyrir alla viðstadda nemendur skólans. Fyrsta könnunin, úttekt á kennslu og kennslu- greinum, var lögð fyrir nem- endur í nóvember 1997. Sú næsta, könnun á viðhorfi nemenda til stjórnunar, að- stöðu, félagslífs o.fl., var lögð fyrir nemendur í mars- lok 1998. Loks var fyrsta könnunin endurtekin í styttri útgáfu í mars 1999. Spurn- ingar í þessum könnunum voru að miklu leyti fengnar úrspurningalista sem notað- ur hafði verið í Kvennaskól- anum í Reykjavík. Niður- stöður varðandi einstaka kennara og aðra starfsmenn skólans hafa verið kynntar fyrir þeim í starfsmanna- viðtölum. Svör nemenda hér lík og í Kvennaskólanum Niðurstöður úr könnun- inni í nóv. 1997 voru í ýmsum atriðum bornar sam- an við niðurstöður líkrar könnunar frá vori 1998 í Kvennaskólanum í Reykja- vík. í ljós kom að í Kvenna- skólanum var 91% nemenda annað hvort mjög ánægt eða frekar ánægt með undirbúning kennara fyrir tíma, í FVI var sambærilega tala 89%. I báðum skólunum voru 93% mjög ánægð eða frekar ánægð með áhuga kennara á kennslu- greininni. I Kvennaskólanum voru 76% rnjög ánægð eða frekar ánægð með viðbrögð kennarans við gagnrýni, í FVI var hliðstæð tala 75%. í Kvennaskólanum voru 79% rnjög eða frekar ánægð með það hvernig kennslustundir nýttust til náms, í FVI var sú tala 80%. Niðurstöður voru þannig að ýmsu leyti furðu líkar í báðum skólunum. Niðurstöður spurninga voru annars einkum bornar saman innbyrðis, þ.e. mat nemenda á einstökum kennurum við FVÍ var borið saman við meðaltal mats á öllum, spurn- ingu fyrir spurningu. Sumar spurningar gáfu miklu meiri mun á milli kennara en aðrar. T.d. er áberandi hve misjafnt mat nemenda var á því hvern- ig kennurum gengi að hafa stjórn á truflandi nemendum, hve þolinmóðir kennarar væru, hvernig kennarar bregð- ast við gagnrýni og hvert við- mót þeirra væri almennt. Mjög mismikið lært heima I nóvember 1997 var m.a. spurt um undirbúning nem- enda fyrir tíma, og kom í ljós að 66,5% svarenda notuðu 1 - 7 klst. alls í viku til heima- náms, en aðeins fjórðungur lærði í meira en 7 klst. á viku, og aðeins um 10% lærði í meira en 10 klst. Um 8% sögðust ekkert heimanám stunda. Námskröfur taldar hæfilegar Könnunin í marslok 1998 leiddi ýmislegt í ljós, en 163 nemendur tóku þátt í henni. Um 70% nemenda töldu námskröfur hæfilegar og um 72% töldu vinnuálag á nem- endur hæfilegt. Upplýsinga- streymi frá skólanefnd og skólaráði svo og miðlun upp- íýsinga almennt fengu fremur lélega einkunn. Aðeins um 51% voru mjög eða frekar ánægðir með almenna stjórnun skólans, en ein- stakir stjórnendur fengu allir nokkru betri einkunnir en nam þessari tölu og er því óljóst hvað hún gefur til kynna. Húsgögn slæm en að- gengi að tölvum gott Handbók skólans og önn- ur útgáfu- og kynningar- starfsemi fengu góða eink- unn. Húsgögn í skólastofum fengu slæma dóma, en að- gengi að tölvum og vinnu- aðstaða almennt í skólanum góða dóma. Almennt við- mót starfsmanna hlaut góða einkunn. Spurt var um mik- ilvægi samstarfs foreldra og framhaldsskóla og var rúm- ur helmingur þeirra, sem veittu efnisleg svör, á því að samstarfið væri léttvægt eða mjög léttvægt. Aðeins um 55% voru mjög eða frekar ánægðir með félagslíf skól- ans í heild. Skólaleikritið fékk þó háa einkunn, því að 85% voru mjög eða fremur ánægðir með það. Sjálfsmatið hvetur til umhugsunar Verkefnið á að halda áfram. Erm.a. meiningin að bera niðurstöður kannana og athugana hér saman við nið- urstöður frá öðrum skólum, frekar en gefist hefur tími til fram að þessu. Þá á að rey na að fá fulltrúa nemenda til að koma meira en verið hefur að úrvinnslu og um- ræðu um niðurstöður. Kennararnir hafa tekið könnununum vel og fúslega viðurkennt nauðsyn þess að skólastarfið þyrfti að vera til sífelldrar umræðu og end- urskoðunar. Það eitt að nem- endur og kennarar verða varir við að mat af þessu tagi fer fram hefur örugglega nokkur áhrif, hvetur til um- hugsunar og minnir á nauð- syn þess að haldið sé uppi metnaðarfullu skólastarfi. Við það verðuröllum ljósara en áður, að alltaf er hægt að bæta sig. - Björn Teitsson, skóla- meistari Framhaldsskólans. MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 7

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.