Bæjarins besta - 18.08.1999, Page 8
íslensk miðlun ehf. í Bolungaryík
ÍSAFJARÐARBÆR
GRUNNSKÓLINN Á ÍSAFIRÐI
g Óskum eftir að ráða starfsfólk til
eftirtalinna starfa skólaárið 1999/00:
Kennara í textílmennt(handavinna/
saumar) 4.-6. bekkur (80% starf).
Starfsfólk í heilsdagsskóla (tvö störf
60% og 30%) frá kl. 12:40 daglega.
Nánari upplýsingar veita skólastjóri,
aðstoðarskólastjóri í síma 456 3044.
Umsóknarfrestur er til 20. ágúst nk.
Skólastjóri.
LEIKSKÓLAKENNARAR
Leikskólakennara vantar á leikskólann
Bakkaskjól. Um er að ræða 50% stöð-
ureftir hádegi. Einnig kemur til greina
að ráða starfsfólk með reynslu og
Iáhuga á að vinna með börnum.
Upplýsingar gefur leikskólastjóri í
síma 456 3565.
BÓNUS
Atvinna
Afleysingafólk óskast í Bónus um helgar,
þ.e. föstudaga, laugardaga og sunnudaga.
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Upplýsingargefurverslunarstjóri á staðnum.
Atvinna í Reykjavík
Tveir röskir menn óskast til starfa í u.þ.b.
tvo mánuði vegna lóðaframkvæmda við út-
varpshúsið í Reykjavík.
Frítt húsnæði.
Upplýsingar í síma 893 1986.
Rafmagnsverkstæði Birgis.
Fiskvinnslan
Fjölnirhf. Þingeyrí
Starfsfólk óskast til starfa hjá Fjölni hf.
sem hefur saltfiskverkun innan skamms.
Um erað ræða rekstrarstjóra, matsmann,
lyftaramenn og annað starfsfólk.
Þeir sem áhuga hafa eru vinsamlegast
beðnirað leggja inn umsóknirtil bæjarskrif-
stofunnar á Þingeyri.
Leifs Pálssonar
Hnífsdal
Inga Þ. Jónsdóttir
Guðbjörg Leifsdóttir
Páll Skúli Leifsson
Jón Áki Leifsson
tengdabörn og barnabörn.
r
I gang í lok september
- ef Bolvíkingar vinna heimavinnuna sína, segir Rafn Jónsson
„Við höfðum samband við
Islenska miðlun strax í vor og
lýstum áhuga okkar á að fylgj-
ast með því sem þeir eru að
gera. Það var svo í síðustu
viku sem málið komst á rek-
spöl hvað okkur varðar og í
viðræðum sem við áttum við
Svavar Kristinsson og Rafn
Jónsson hjá Islenskri miðlun
kom fram vilji þeirra að taka
Bolungarvík inn í dæmið jafn-
framt ísafjarðarbæ“, segir
Magnús Hávarðarson, forseti
bæjarstjórnar og formaður at-
vinnumálaráðs Bolungarvík-
urkaupstaðar. Að sögn Magn-
úsar og Rafns Jónssonar hjá
íslenskri miðlun ætti starf-
semi fyrirtækisins í Bolung-
arvík að geta komist í gang í
lok næsta mánaðar eða þar
um bil, „ef allt gengur að ósk-
um“, eins og Rafn komst að
orði.
Starfsemi Islenskrar miðl-
unar ehf. í Isafjarðarbæ er í
þann veginn að hefjast, fyrst
á Suðureyri og Þingeyri og
fljótlega eftir það á ísafirði.
Rafn Jónsson (tónlistarmaður
frá Suðureyri) er einn af eig-
endum fslenskrar miðlunar
ehf. og það er fyrst og fremst
fyrir hans tilverknað að dóttur-
fyrirtæki eru stofnuð hér
vestra. Nokkuð er liðið frá
því að starfsemi hófst á Rauf-
arhöfn og fyrir skömmu var
einnig farið í gang á Stöðvar-
firði. „Þegar við sáum að þetta
gekk á Raufarhöfn og verkefni
voru að bætast við, þá sá ég
mér leik á borði að koma starf-
seminni líka vestur“, segir
Rafn. Umþessarmundirhefur
verið gengið frá og er verið að
ganga frá nýjum samningum
um stór verkefni, en starfsemi
fslenskrar miðlunar felst m.a.
í margvíslegri tölvuvinnslu,
símsvörun og markaðskönn-
unum.
Stofnuð eru sérstök hluta-
félög á hverjum stað með að-
ild Islenskrar miðlunar og
heimamanna. Að sögn Rafns
er það gert til þess að forræðið
sé í heimabyggð á hverjum
stað en ekki á einni hendi fyrir
sunnan.
Þrettán ný störf munu skap-
ast í Bolungarvík, ef undir-
tektir heimamanna verða
nægilega góðar til þess að af
stofnun hins nýja fyrirtækis
verði. Bæjaryfirvöld munu að-
stoða við söfnun hlutafjár og
útvegun húsnæðis.
„Til þess að þetta geti orðið
að veruleika hér í Bolungarvík
þarf að koma til samtakamátl-
ur sem flestra Bolvíkinga, því
að íslensk miðlun gerir þetta
ekki einhliða heldur í nánu
samstarfi við heimamenn á
Verslunar- og
atvinnuhúsnæöi
til sölu
Til sölu eru eftirtaldar fasteignir Póisins
hf. á ísafirði:
Aðalstræti 9,222m2 verslunarhús á tveimur
hæðum.
Aðalstræti 9, 710m2 verslunar- og / eða
iðnaðarhúsnæði á tveimur hæðum.
Aðalstræti 11, 373m2 verslunarhúsnæði
á tveimur hæðum.
Eignirnar geta selst saman eða hverísínu
lagi.
Nánari upplýsingar gefur Tryggvi Guð-
mundsson hdl., Hafnarstræti 1, ísafirði, sími
456 3244, fax 456 4547.
Breyttur opnunartími
H.V. Umboðsverslun ehf.
Suðurgötu 9, ísafirði.
Sími 456 4666 - Fax 456 4610
Afgreiðsla opin frá kl. 08:00 - 10:00
og frá kl. 15:00 -17:00.
Símaþjónusta frá kl. 08:00 -17:00.
Sími 456 4666 - GSM 897 6744.
Þjónusta í heimabyggð
hverjum stað um stofnun og
rekstur sérstaks fyrirtækis. ís-
lensk miðlun leggur fram
hlutafé að vissu marki en því
sem á vantar þarf að safna og
koma þar til bæði einstakl-
ingar og fyrirtæki“, segir
Magnús Hávarðarson. „Starf-
semi af þessu tagi mun fara
mjög vaxandi á næstu árum
og því er mikil vægt að tileinka
sér þessa tækni strax til að
geta betur fylgst með þróun-
inni. Þetta gefur okkur líka
fleiri möguleika. A öllum
starfsstöðvum íslenskrar
miðlunar er fjarkennslubún-
aður af fullkomnustu gerð og
gegnum hann geta t.d. farið
fram námskeið, endurmennt-
un og kennsla. Krafan hjá
fólki úti á landi er að fá til sín
fjölbreytari atvinnutækifæri
og þess vegna vona ég að við-
tökurnar verði góðar hér í Bol-
ungarvík eins og annars staðar
þar sem Islensk miðlun hefur
haslað sér völl. Kostnaður á
hvert nýtt starf í þessu dæmi
er lítill miðað við t.d. störf í
sjávarútvegi. Nú býðst tæki-
færið og við verðum að standa
saman og nýta það“, segir
Magnús.
Störfin sem um ræðir eru
vel launuð miðað við að ekki
er krafist neinnar sérstakrar
Rafn Jónsson.
menntunar, heldur er fólk
tekið í starfsþjálfun í upphafi.
Möguleikar eru á mismunandi
vinnutíma, þannig að þótt
störfin séu þrettán geta mun
fleiri verið f hlutastörfum.Allt
verður unnið á einum vinnu-
stað og mikið lagt upp úr því
að hann sé notalegur og þægi-
legur.
Magnús minnir á umræðu
um flutning ríkisstarfa út á
land. „Mín skoðun er sú, að
þegar þessir tæknilegu mögu-
leikar eru komnir hingað og
þekking starfsfólksins hefur
verið byggð upp eru stóraukn-
ir möguleikar að taka á móti
nýjum störfum af ýmsu tagi,
þar á meðal ríkisstörfum sem
ákveðið verður að flytja út á
land.“
r
Islenski haförninn
Stofninn í vexti
nema fyrir vestan
Islenski arnarstofninn er
jafnt og þétt á uppleið og
hefur verið það fá því að
hætt var að eitra fyrir refi
fyrir nokkrum áratugum.
Varp gekk vel í ár líkt og í
fyrra og nú komu 19 pör
samtals 26 ungum á legg.
Orninn hefur á seinni árum
náð fótfestu við Faxaflóa á
ný og framfarir eru hvar-
vetna á slóðum arnarins -
nema við norðanverðan
Breiðafjörð og á Vestfjörð-
um. Þetta vekur vissulega
athygli fuglafræðinga og
annarra sem áhuga hafa á
velferð konungs fuglanna.
Á fyrrnefndum svæðum
fer arnarstofninum hrakandi
og færri pör koma upp ung-
um. Ástæðurnar liggja ekki
fyrir en óneitanlega hafa
komið fram áleitnar spurn-
ingar þess efnis, hvort þarna
sé eitthvert samhengi við
neikvætt viðhorf á þessum
slóðum til arnarins. Hann
var Iöngum mikill skaðvald-
ur í æðarvarpi og drap einn-
ig lömb og þótti á sínum
tíma réttdræpur líkt og tófan
og síðan minkurinn. Ef til
vill eimir ennþá eftir af
þeirri afstöðu.
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á ísafirði 15. ágúst.
Jarðsett verður frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 21. ágúst kl. 14:00.
Sigríður Steinþórsdóttir
Jón Júlíus Tómasson María Ólafsdóttir
Valgerður Tómasdóttir Grétar Ingi Símonarson
Steinþór Vigfús Tómasson Ýlfa Proppé Einarsdóttir
ElísabetÁrnýTómasdóttir Skarphéðinn Garðarsson
og barnabarnabörn.
8
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999