Bæjarins besta


Bæjarins besta - 18.08.1999, Síða 9

Bæjarins besta - 18.08.1999, Síða 9
Litlibær í Skötufirði í ísafjarðardjúpi Eigendur Litlabœjar í Skötufirði, hjónin Kristján Kristjánsson og Sigríður Hafliðadóttir á Hvítanesi. Þjóðminjasafnið stefnir að því að bjarga íbúðarhúsinu að Litlabæ í Skötufirði undan tönn tímans og gera það upp eins og það var í upphafi. Hjör- leifur Stefánsson, minjastjóri Þjóðminjasafnsins, hefur skoðað húsið og önnur mann- virki á jörðinni. Hann segir að íbúðarhúsið að Litlabæ, en það var byggt árið 1894, sé í betra ástandi en önnur hús við ísafjarðardjúp frá þeim tíma. Fyrr á öldum voru hús við Djúp hlaðin úr grjóti að stærri hluta en tíðkaðist annars staðar á landinu og Litlibær er hlaðinn með þeim hætti. Hús af þessu tagi hefur ekki áður verið tekið til varðveislu hérlendis. Ajörðinni eru mörg önnur mannvirki, svo sem hringlaga fjárborg ævaforn, hlaðnir túngarðar og hlaðnir veggir bátaskýlis, auk útihúsa og tveggja hjalla. Hjörleifur segir að síðustu forvöð séu að bjarga Litlabæ. Litlibær er í eigu hjónanna á Hvítanesi þar rétt hjá, Krist- jáns Kristjánssonar og Sig- ríðar Hafliðadóttur, og sjálfur er Kristján frá Litlabæ. Þau eru mjög áhugasöm um áform Hjörleifs og vilja greiða götu Þjóðminjasafnsins í þessu máli á allan hátt. Enda þótt húsið að Litlabæ sé gamalt á íslenskan mæli- kvarða á búskapur þar sér ekki langa sögu, að minnsta kosti ekki á seinni tímum. Abúð á Litlabæ stóð aðeins í 75 ár, eðafrá 1894 til 1969. Þarvar upphaflega tvíbýli, enda þótt íbúðarhúsið sé afar smátt á mælikvarða nútímans, aðeins um eða innan við 40 fermetrar. Litlabæ byggðu á sínuin tíma bændurnir Finnbogi Péturs- son, afi Kristjáns á Hvítanesi, ogGuðfmnur Einarsson, faðir Einars Guðfmnssonar útgerð- armanns í Bolungarvík, og f þessu smáa húsi fæddist Einar vorið 1898. ÞeirFinnbogi og Guðfmnur bjuggu í tvíbýli að Litlabæ fram til 1917, en þá fluttist Guðfmnur ásamt fjöl- skyldu sinni út í Fót. Hans hluta í Litlabæ keypti þá Pétur Finnbogason, sonur Finn- boga, og bjó hann þar til 1930 er hann fluttist að Hjöllum handan fjarðarins. Frá þeim tíma var einbýli að Litlabæ. Kristján Finnbogason tók við jörðinni af föður sínum og hafi verið talið að byrgið væri frá því um landnám. Þegar hann var ungur komu þar gamlir menn sem höfðu skoð- að byrgið þegar þeir sjálfír voru ungir og virðist sem hleðslan hafi ekkert haggast fyrr en á síðari árum eftir að akvegurinn var lagðurþar hjá. Vegna titringsins frá umferð- inni er hún aðeins farin að láta á sjá. Það er ánægjulegt hversu mikinn áhuga bæði Þjóð- minjasafnið og þau Hvítanes- hjón sýna varðveislu hinna merkilegu minja að Litlabæ. Ekki hefur enn verið neitt ákveðið um framkvæmdir þar, en að mati Hjörleifs Stefáns- sonar ætti að taka í mesta lagi tvö sumur að koma Litlabæ í gott horf. ásamt fjölskyldu sinni 9, er hann fluttist að ð að Litlabæ er nú ;a frábrugðið því sem var í öndverðu. Árið 1930 var byggt við það, en ef húsið verður endurbyggt verða við- bæturnar fjarlægðar og reynt að koma því sem mest í upp- haflegt horf. Eitt af mörgu sem er sérkennilegt við Litlabæ, er að vegna þrengslanna inni voru byggð við húsið tvö lítil útieldhús. Fjárbyrgið að Litlabæ vekur athygli margra sem leið eiga um Djúpið, enda er það rétt við þjóðveginn. Það er hring- laga, um 10-12 m í þvermál og minnir afar mikið á hlaðnar byggingar víða á Irlandi. Kristján á Hvítanesi segir, að þegar hann var að alast upp Fjölþjóðlegur bragur í Minjasafninu á Flateyri Nær hundrað brúð- ur frá 23 löndum þýsk hjón gefa afrakstur áratuga söfnunar víða um heim Mikill fjöldi þjóðerna hef- ur einkennt Vestfirði síðari árin. Nú hefur þetta fjöl- þjóðlega yfirbragð tekið á sig nýja mynd, því að til viðbótar fólki af eitthvað í kringum 40 þjóðernum hafa nær hundrað brúður frá 23 löndum sest hér að. í síðustu viku var á Flateyri opnað safn af brúðum, sem þýsk hjón hafa gefið Minja- sjóði Flateyrar, og komu þau hingað í boði sjóðsins til að setja upp safnið. I snjóflóðinu árið 1995 eyði- lagðist Minjasafn Flateyrar og starfsemi þess lagðist þá niður. Nú hefur Minjasjóður Flateyrar fengið inni að Hafnarstræti 4, þar sem Sparisjóður Önundarfjarðar var til skamms tíma. Minjasjóðurinn er þar í sambýli við Handverkshóp- inn Purku á meðan hann hefur ekki eignast sitt eigið safnahús. Brúðusafnið er einn af fyrstu vísunum að nýju safni á Flateyri. Gefandinn, dr. Senta Siller við brúðurnar sínar í Minjasafninu á Flateyri. Minjasjóður Flateyrar hefur fengið nær hundrað brúður að gjöf frá þýskunt velunnurum. Gefendur brúðusafnsins eru hjónin dr. Senta Siller og dr. Norbert Pintsch prófess- or, en þau eru búsett í Ber- lín. Þau hafa á undanförnum árum að eigin frumkvæði unnið að verkefnum í Pak- istan, Kamerún og Kólum- bíu í því skyni að efla at- vinnu á landsbyggðinni þar. Dr. Senta Siller er grafískur hönnuður en nam síðan listasögu og fleiri greinar. Hún hefur unnið mikið með konum í fátækum og af- skekktum byggðum í fyrr- greindum löndum og m.a. kennt þeim handverk og að búa til brúður til að selja ferðamönnum. Fyrsta verk- efnið fór af stað í þorpi í Pakistan árið 1993. Þar kenndi Senta konum að búa til brúður sem tengdust menningu svæðisins og nú starfa þar um 120 manns við brúðugerð. Verkefnin í Kamerún og Kólumbíu eru svipuð. Dorothee Lubecki, ferða- málafulltrúi á Vestfjörðum, komst í kynni við hjónin og í framhaldi af því kviknaði sú hugmynd hjá þeim að gefa brúðusafnið sitt til Vestfjarða. Brúðunum hafa þau safnað víða um lönd áratugum saman og má meðal þeirra nefna eina rússneska sem þau keyptu í Sovétríkjunum fyrirréttum fjörutíu árum. Að hluta til er safninu ætlað að styðja við ferða- þjónustu á Vestfjörðum en öðrum þræði er það líka tákn fyrir hinar fjölmörgu þjóðir sem eiga fulltrúa sína á Vestfjörðum. Brúðurnar munu væntanlega eiga sinn þátt í því að tengja saman ólíka menningarheima og stuðla að skilningi og vináttu milli þjóða. Hug- myndir eru um að nota safnið m.a. í tengslum við þemadaga, þar sem gerð yrðu skil hefðum ólíkra þjóða og þjóðabrota. Brúðusafnið á Flateyri er opið á sama tíma og hand- verkshúsið Purka eða milli kl. 13 og 18 alla daga. MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999 9

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.