Bæjarins besta


Bæjarins besta - 08.12.1999, Qupperneq 6

Bæjarins besta - 08.12.1999, Qupperneq 6
Nýlega er komin út ævisaga Sveins Þormóðsson- ar blaðaljósmyndara sem Flateyringurinn Reynir Traustason skrifar. Þar lýsir Sveinn á bráðlifandi hátt lífinu þegar hann er að alast upp á kreppuárun- um og bregður upp myndum af eftirminnilegum samferðamönnum. Hann segir frá samskiptum sínum við breska hernámsliðið, en hann starfaði sem túlkur á vegum þess, aðeins fjórtán ára. Tveimur árum síðar stofn- aði hann, ásamt unnustu sinni, heimili í bragga á Skólavörðuholti og börnunum fjölgaði ört. Urn tíma bjó fjölskyldan í því fræga hverfi Kamp Knox þar sem margt var um skrautlega einstaklinga. Sveinn hefur lent í mörgu og um margra ára skeið átti hann við drykkjuvandamál að stríða og lýsir hann þeirri baráttu af hreinskilni í ævisögu sinni. Sveinn hóf að taka blaðaljósmyndir á 6. áratugnum. Lengst af starfaði hann á Morgunblaðinu og DV, þar sem hann er enn. Enginn Islendingur hefur komið að fleiri slysum og stórbrunum en Sveinn. Hann hefur verið á hælum slökkviliðs og lögreglu í hálfa öld og stundum á undan þeim á vettvang. En Sveinn myndar fleira en slys og stórbruna og vart hefur komið það fyrirmenni til landsins að hann hafi ekki verið mættur, ætti mönnum að vera í fersku minni er Mick Jagger kom til Isafjarðar síðastliðið sumar en þá hitti Sveinn rokkgoðið fyrir einskæra tilviljun. Hann hafði þá ekki komið til Isafjarðar í 58 ár. Við grípum niður á tveimur stöðum í bókinni, í fyrra skiptið þar sem Sveinn kemur til Isafjarðar á sumarvertíð með föður sínum árið 1941, þá sautján ára, og í það síðara þegar Mick Jagger dúkkar upp á Isafirði í sumar: Sveinn með Sveineyju dóttur sína utan við bragga 113 á Skólavörðuholti. Hann var 17 ára þegar frumburðurinn fœddist og var ífótbolta þegar mamma hans kallaði á hann inn og sagði að Ijósmóðirin vœri komin til Fríðu koitu Itans. A hælum Sumarvertíð á ísafirði Pabbi hafði haft spurnir af góðum afla vestur í ísafjarð- ardjúpi. Hann ákvað að færa sig um set með Vonina og róa frá ísafirði og landa þar í skip til útflutnings. Það fólst í þessu gróðavon og því sló hann til og við héldum vestur um vorið 1941. Vonin RE var hífð upp á dekk á Brúarfossi og haldið af stað vestur í norð- vestan leiðindaveðri. Fram að þessu hafði ég aldrei fundið til sjóveiki en nú brá svo við að ég varð drullusjóveikur um leið og komið var út á Faxa- flóann og ældi bæði lifur og lungum. Ég gleymi aldrei þeg- ar Brúarfoss datt fram af bár- FRAMHALDSSKOLI VESTFJARÐA PÓSTHÓLF 97 - 400 ÍSAFIRÐI Viltu stunda nám / öldungadeild? Á vorönn 2000 verða kenndir í öldunga- deild Framhaldsskóla Vestfjarða á ísafirði, áfangarnir íslenska 323, bókfærsla 313, saga 202 oge.t.v. stærðfræði313, líffræði 103 og félagsfræði 102, efþátttaka verður næg. Enn er hægt að komast að. Innritun fer fram í síma 456 3599 á skrif- stofutíma. Skólameistari. unni með látum og sjóferðinni vestur eyddi ég í kojunni. Á ísafirði bjó Sveiney, elsta systir mín, í húsi sem hét Oddi. Einnig átti ég þar hálf- bróður, samfeðra, Bergmann Þormóðsson. Hann átti sama afmælisdag og ég, 28. júní, en varfæddursléttum lOárum á undan mér. Hann var lengi með útgerð þarna og lengst af rækjubát. Pabbi leigði íbúð á Isafirði og þegar vestur kom var strax hafist handa við veið- arnar. Við lögðum línu á nótl- unni í Djúpinu en fórum síðan út undir Grænuhlíð þar sem við vorum á skaki yfir daginn. Þannig fengum við allt að tveimur tonnum eftir sólar- hringinn sem gaf góðan pen- ing. I bátnum var fjögurra strokka Ford-bensínvél og ganghraðinn mikill. Fyrsteftir að við komum voru nokkrir Isfirðingar á hraðskreiðum bátum eitthvað að glenna sig fram úrokkuren við kenndum þeim fljótlega lexíu. Pabbi steig pinnann í botn og við tíndum þá upp einn af öðrum og skutum aftur fyrir okkur. Þegar við rukum fram úr þeim síðasta stóð hann aftur á og veifaði spottaog kallaði hvort hann ætti að taka þá í tog. Þessi mikli gangurbátsinsjók mjög á virðingu okkar þar vestra. Sumarið leið fljótt og ég kunni ákaflega vel við mig þarna. Maður lenti í ýmsum skemmtilegheitum, eins og þegar ég var eitt sinn sendur út í bakarí til að kaupa snúða. Þegar þangað kom sagði ég afgreiðslustúlkunni að ég ætl- aði að fá fjóra snúða. Hún sagði að það væru því iniður engir snúðar seldir þar. Eitt- hvað fannst mér það gruggugt að systir mín væri að senda mig eftir einhverju sem væri óþekkt í bakaríinu og þegar ég fór að líta á úrvalið sá ég snúða uppi á hillu og spurði stúlkuna hvort þetta væru ekki snúðar. „Nei, nei,“ var svarið. „Þetta eru snældur.“ Ég keypti fjögur stykki og kom heim með snældur en ekki snúða. Það kom mér á óvart að á Isafirði virtust allir hafa við- urnefni. Skondið atvik því tengt kom upp þegar systir mín ákvað að sjóða handa okkur ýsu. Hún bað mig að skjótast til hans Kitta ljúfs. Kristján þessi gerði út trillu og var með aðstöðu við Fjarð- arstræti. Hann herti þar fisk og seldi soðmat. Þegarég kom að skúrnum kallaði ég inn um dyrnar að erindi mitt væri að fá ýsu og ég spurði hvort Kitti ljúfur væri við. Ysan kom svífandi út með tilheyrandi blótsyrðum og ég sá þann kost vænstan að hraða mér í burtu án þess að borga. Þegar ég kom með ýsuna í hús gerði systir mín mér grein fyrir því að ekki væri við hæfí að nota uppnefnin þegar viðkomandi væri ávarpaður. Ég náði nokk- ru síðar á Kitta ljúf þar sem hann var að setja út bát sinn og bað hann þá afsökunar á þessu frumhlaupi mínu. Hann tók það til greina og okkur kom ágætlega saman eftir það. Á ísafirði komst ég í það æ vin- týri að veiða smokk í fjörunni. Þetta gerðu menn í myrkri, vopnaðir ljósum. Við notuð- um smokkinn í beitu en þetta er einhver ógeðslegasti veiði- skapur sem ég hef komist í fyrr eða síðar. Smokkurinn sprautaði bleki þegar verið var að fanga hann og menn voru því æðiskuggalegir eftir viður- eignina. Mick Jagger á ísafirði Bókin er að mestu skráð vestur á Flateyri, fjarri Reykjavíkurborg sem er aðal- sögusviðið. Ekki þýddi að reyna upprifjun á lífshlaupinu annars staðar en heima í stofu hans þar sem skannar lögreglu og slökkviliðs mala látlaust. Það var þrautin þyngri að fá ljósmyndarann til að skreppa vestur á firði til skrafs og ráða- gerða. Hann taldi öll tormerki á því að fara úr fjarskiptasam- bandi við Reykjavíkurlög- reglu og því síður taldi hann vit í því að ana norður á snjó- flóðasvæði í upphafi maímán- aðar. Hvort einhver fyrirboði Asdís Sigurðardóttir faðmar rokkarann sem erhinn ánœgð- asti með atlot hinnar íslensku blómarósar þar sem hann er í sárum eftir skilnað við Jerry Hall. Myndin var á forsíðu DV. hefur ráðið ferðinni skal ósagt látið en ljóst er að Sveinn hitti á óskastund þegar hann dróst á að fara vestur í ágústmánuði á því herrans ári 1999. Þegar ég heyrði að Mick Jagger væri í svo sem 20 kíló- metra fjarlægð var ekki til set- unnar boðið. Skítt með fríið. Ég varð að ná mynd af þessu frægasta rokkgoði heimsins. Mér var í fersku minni t'erðin til Liverpool árið 1964 með KR þegar ég hitti þá félaga í Rolling Stones í upphafi frægðarferils þeirra sem stendur enn. Ég var búinn að akajarðgöngin nokkrum sinn- um dagana á undan og þekkti þau orðið nóg til þess að geta gefið hraustlega í. Það tafði mig að vísu nokkuð að ég gleymdi að kippa af mér sól- gleraugunum inni í fjallinu þannig að ég sá lítið til en þegar þau voru komin niður jókst öryggi mitt til muna og ég náði hraða sem ég vildi síður að yfirvöld vestra sæju á prenti. Tíminn var naumur þar sem Jagger hafði brugðið sér í land af snekkju sem lá á Pollinum við Isafjarðarkaup- stað. Það var ekið eins geyst og mögulegt var og á mettíma náðum við til Isafjarðar. Ekk- ert bólaði á Jagger framan af en vegfarendur í miðbænum sögðust hafa hitt hann á reiðhjóli og að hann hefði stefnt niður á höfn eftir að hafa rætt við fólk í Hafnar- strætinu. Það leit út fyrir að fuglinn væri floginn og engin mynd næðist. Ég var áhyggju- fullur þar sem ég ók niður á Sundahöfn, rekinn áfram af voninni um að Jagger væri ekki farinn. Það lifnaði heldur betur yfir mér þegar ég sá að hann var á kajanum í fámenn- um hópi og beið þess að vera ferjaður út í skipið. Hann lék á als oddi og svaraði spurn- ingum um hljómleika sem hljómsveit hans átti að halda á íslandi en var aflýst og tók því vel þegar ég byrjaði að taka af honum myndir. Þar sem ég impraði á fyrri fundi okkar í Liverpool 35 árum áð- ur fagnaði hann mér en hrökk síðan við þar sem hann sá Press-merkið í barmi mínum. Hann var bersýnilega ekki ánægður með að fjölmiðlar væru á hælum hans og gerðist nokkuð úfinn. Meðan á orða- skiptum okkar stóð safnaðist fólk að og ég náði glimrandi mynd þar sem kona á besta aldri faðmaði hann að sér. Það rættist því úr málinu og ekki mátti á milli sjá hvor var ánægðari, ég eða sýslumaður fsfirðinga, ÓlafurHelgi Kjart- ansson, sem er gjarnan skil- greindur sem aðdáandi Roll- ing Stones á íslandi númer 1. Hann mun hafa farið á fjölda tónleika með Rolling Stones í gegnum tíðina án þess að hafa náð tali af Jagger sem skyndi- lega dúkkaði svo upp í heima- bæ hans. ... Forsíðu DV eftirþessahelgi prýddi svo auðvitað Mick Jagger að faðma konuna á kaj- anum. Það er ekki til betri til- finning en að sjá verk sín blómstra með þessum hætti á útsíðu og ég verð aldrei svo gamall að sú tilfmning hverfi. 6 MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999

x

Bæjarins besta

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.