Bæjarins besta - 08.12.1999, Síða 11
Sundfélagið Vestri á ísafírði
Á leið tfl nýrrar
Mikill uppgangur hefur
hjá Sundfélaginu Vestra á
Isafirði síðustu misserin eftir
talsverða lægð um nokkurt
árabil. Ennþá er í fersku
minni „gullaldarliðið“ sem
Vestri hafði á að skipa fyrir
tíu til fimmtán árum og var í
allra fremstu röð á landinu.
A Bikarmóti íslands sem
haldið var í Reykjavík fyrir
fáum vikum komu glögg-
lega í ljós geysilegar fram-
farir núverandi keppnisliðs
Vestra milli ára. Nú fékk
Vestri, sem keppir í annarri
deild, liðlega sextán þúsund
stig á móti um níu þúsund
stigum í fyrra. Þar við bæt-
ist, að liðið er mjög ungt að
árum og liðsmenn eiga enn
langt í land að ná fullum
þroska. A bikarmótum er
aðeins keppt í karla- og
kvennaflokkum en ekki ald-
ursflokkum og þess vegna er
óhætt að segja, að framtíðin
sé björt hjá félaginu.
Oddur Árnason hefur ver-
ið formaður Sundfélagsins
Vestra í rúmlega tvö ár en
hann og fjölskylda hans hafa
verið viðloðandi sundstarfíð
á ísafirði hátt í áratug. Starf-
semi Vestra er í föstum
skorðum og svipuð dagskrá
frá ári til árs. Reynt er að
komast á ákveðin mót syðra
og eins eru föst mót hér
heima, Gíslamótið, Vestra-
mótið og Kiwanismótið, en
Kiwanismenn hafa stutt
félagið dyggilega eins lengi
og elstu menn muna.
„Við þurfum að komast
oftar á mót syðra eftir því
sem getan hjá krökkunum
eykst, bæði vegna þess að
þau þurfa á samkeppninni
að halda og eins þurfum við
að komast í löglega laug. Þó
að Vestri hafi ágætan aðgang
að Sundhöll Isafjarðar og
góða félagsaðstöðu og þrek-
sal, þá er laugin hér aðeins
16,67 m á lengd og met sem
sett eru í henni fást því ekki
viðurkennd á landsvísu“,
segir Oddur.
Um 60-70 börn og ungl-
ingar á aldrinum frá sex ára
og upp í sextán til sautján
ára stunda skipulegar æf-
ingar hjá Vestra. Eldri hóp-
arnir æfa upp í átta til níu
sinnum í viku en yngstu
krakkarnir tvisvar í viku.
Auk þess eru starfandi
sundskóli og ungbarnasund
á vegum Vestra, þannig að
iðkendur hjá félaginu eru
rétt um eitt hundrað.
Þjálfun hjá Vestra annast
þau Ingi Þór Ágústsson,
Margrét Halldórsdóttir og
Ásdís Sigurðardóttir. „Þau
hafa öll mikla menntun og
reynslu á þessu sviði og ætla
öll að halda hér áfram. Þetta
er mjög öflugt fólk og
áhugasamt um að byggja fé-
lagið upp“, segir formaður-
inn.
Á „gullaldarárunum" áttu
Hjalti Rúnar Oddsson (f.
1987) er öflugur og fjöl-
hæfur sundmaður. Þegar
hann fluttist upp í sveina-
flokk var hann búinn að
tína upp langflest skráð
Isafjarðarmet í hnokka-
flokki og nú á hann fimm
eða sex gildandi Isa-
fjarðarmet sveina. Á bik-
armótinu setti hann Isa-
fjarðarmet í 100 m og
200 m flugsundi og 200
m fjórsundi. Eftir því
sem krakkarnir verða
eldri fara Isafjarðarmet-
in að verða merkilegri,
vegna þess að gömlu met-
in eru þau sem sundfólk-
ið í „gullaldarliði“ f sfirð-
inga setti á sínum tíma.
ísfirðingar fast sæti í fyrstu
deild og urðu bikarmeistarar
Islands. „Við eigum að hafa
alla burði til að geta náð
þeim styrk á ný“, segir Odd-
ur, „þrátt fyrir miklar fram-
farir hjá sundfélögum um
A-lið Vestra sem keppti á Bikarmóti íslands fyrir skömmu. Á myndina vantar tvö úr hópnum, þau Pétur Birgisson og Örnu
Lind Arnórsdóttur. Liðið bœtti sig um rúmlega sjö þúsund stig milli ára. „ Við bindum miklar vonir við þessa krakka“, segir
Oddur Arnason, formaður Vestra.
Á sýningunni er sexæring-
urinn Ingjaldur, sem bresku
sjómennirnir hvolfdu viljandi
undir sýslumanni og félögum
hans, en báturinn hefur verið
nefndurfyrsti landhelgisbátur
íslendinga. Meðal annars sem
þar getur að líta eru gripir úr
eigu Hannesar Hafstein, m.a.
skrifpúlt hans og blekbytta
ásamt handriti hans að kvæð-
inu Slæðingi. Þar nrá einnig
sjá eins konar teiknimynda-
sögu af atburðunum á Dýra-
firði, svo og ljósmyndir sem
tengjast þeim og hafa ekki
áður komið fyrir sjónir al-
mennings. Meðal þeirra er
nrynd sem tekin var af togar-
anunr Royalist í höfn í Fred-
erikstad í Danmörku tæpunr
nránuði eftir atburðina á Dýra-
firði, eftir að togarinn hafði
verið tekinn að ólöglegunr
veiðunr við Jótland og færður
til hafnar.
Loks nrá nefna að á sýning-
unni er sýslumannsbúningur
frá árinu 1907, en þar er um
að ræða einkennisföt Magnús-
ar Torfasonar sýslumanns og
bæjarfógeta á ísafirði, sem
einmitt tók við enrbætti af
Hannesi Hafstein þegar hann
varð fyrsti innlendi ráðherr-
ann árið 1904.
Sjóminjasafn Islands í
Hafnarfirði er deild í Þjóð-
nrinjasafni íslands og á vetr-
um er það að jafnaði ein-
ungis opið unr helgar kl.
13-17. í samtali við blaðið
sagði Ágúst Georgsson,
deildarstjóri, að vegna fyrr-
greindrar sýningar hefði
verið ákveðið að hafa auk
þess opið alla virka daga
kl. 12.30-16 framdl 17.des-
enrber. Sýningin verður síð-
an uppi fram í apríl í vor.
ísafjörður
Júlíus
strandaði
Júlfus Geirmundsson IS
strandaði á sandrifi við
Suðurtangaoddann á ísa-
firði á fimmtudag í síðustu
viku.
Hann náðist óskemnrd-ur
áflotsíðdegis. BaujaíSund-
ununr mun hafa færst til án
þess að eftir því var tekið.
Þá var skyggni lélegt.
Þór Sveinsson (f. 1987)
er niikill sprettsunds-
maður. Sama gildir unr
hann eins og Hjalta Rún-
ar og aðra keppendur á
þessum aldri, að þeir eru
ekki enn farnir að móta
sér ákveðna sérgrein í
sundinu. Það gerist yfir-
leitt ekki fyrr en um 15-
16 ára aldur. Á bikar-
mótinu syðra setti Þór
ísafjarðarmet í 1500 m
skriðsundi sveina og
Vestfjarðamet í bæði 100
m og 200 m baksundi. I
boðsundum synti hann
auk þess undir gildandi
Isafjarðarmeti í 100 m
skriðsundi.
land allt og harðari keppni."
Undanfarið hefur heildar-
stigafjöldi í bikarkeppninni
hækkað ár frá ári og þrösk-
uldur fyrstu deildar er hærri
en nokkru sinni fyrr.
En það er fleira við sundið
en að setja met. Grunnurinn
að starfi Sundfélagsins
Vestra eins og íþróttafélaga
almennt er forvarnastarf, að
búa krökkunum skilyrði til
að fást við eitthvað annað en
að hanga á götunni í reiði-
leysi. Mikið félagsstarf er í
kringum sundið og mótuð
dagskrá allan veturinn.
„Vissulega þurfa krakkarnir
meiri hvatningu til að halda
áfram en þá eina að vera í
efstu sætum" segir Oddur,
„því að ekki geta allir verið
þar. Þess vegna verður m.a.
farið til útlanda í æfinga-
búðir í vor og ætlunin er að
reyna hafa það sem fastan
punkt á þriggja ára fresti að
fara til útlanda til æfinga og
keppni.“
Lífið og krafturinn í Sund-
félaginu Vestra byggist mjög
á foreldrunum. „Það væri
hreinlega ekki hægt að reka
sundfélag ef ekki kæmi til
mikið starf foreldranna og
eftir því sem árangurinn
Lára Bettý Harðardóttir
(f. 1984) er ein af sterk-
ustu flugsundskonum
landsins í dag. Á bikar-
mótinu í Reykjavík sigr-
aði hún með yfirburðum
bæði í 100 og 200 m flug-
sundi og náði tímum sem
hefðu dugað henni í ann-
að sæti í fyrstu deild í
þessum greinum. Hún
bankar kröftuglega á
dyr íslenska landsliðsins
og líklegt er að hún hefji
æfingar með unglinga-
landsliðinu eftir áramót.
V J
Linda Guðmundsdóttir
(f. 1985) er fjölhæf sund-
kona. Hún á mjög góða
tíma í ýmsum greinum
og má varla á milli sjá
hvor gerir betur á æf-
ingum í flugsundinu,
Lára Bettý eða hún.
Keppnisskapið er mikið
og þegar það hefur verið
tamið mun krafturinn
líka skila sér til fulls á
stórmótum.
V J
verður betri á landsvísu,
þeim mun meiri verður
þörfin fyrir vinnu þeirra“,
segir Oddur. Þess má geta,
að Sundfélagið Vestri er enn
sem komið er eina íþrótta-
félagið á norðanverðum
Vestfjörðum sem hefur sett
sér markvissa vímuvarna-
stefnu og starfar eftir henni.
Sveinasveit Vestra (10-12 ára) er sú sterkasta á landinu í
dag, miðað við tímatökur. F.v. Hjalti Rúnar Oddsson, Bragi
Þorsteinsson, Gísli Kristjánsson og Þór Sveinsson.
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1999
11