Bæjarins besta - 27.09.2000, Side 9
hingað til Vestfjarða - tvö á
Patreksfjörð, eitt á Bíldudal
og eitt á Hólmavík. Þetta er
mjög jákvætt fyrir vestfirskt
atvinnulíf og sýnir bjartsýni á
útgerðarrekstur. Eitt nýtt skip
kom frá Póllandi til Bolung-
arvíkur fyrir skömmu, þannig
að menn eru að láta smíða
skip aftur. En menn áttu frekar
von á að aflaheimildirnar
myndu aukast nú á nýju fisk-
veiðiári í stað þess að minnka
eins og raun varð á. Það eitt
og sér veldur áhyggjum.“
Aðrir ráða
afkomunni
„Það er sæmilega bjart
framundan í rekstrinum núna,
en það er alltaf spurningin
hvað gerist, því við ráðum því
minnst sjálfir hvernig afkom-
an er. Þar ráða t.d. stjórnvöld
miklu með gengis- og vaxta-
stýringu og úthlutun aflaheim-
ilda. Þá hafa áhrif aðrir utan-
aðkomandi þættir, svo sem
aflabrögð og markaðsaðstæð-
ur.
Þegar við erum að reyna að
reka fyrirtækin með sem
minnstum tilkostnaði ogerum
að spara alls staðar eyrinn og
krónuna, þarf ekki nema eina
aðgerð frá stjórnvöldum til
þess að breyta öllu til verri
vegar. Við erum ekki að yfir-
borgaílaunumeðaöðru, enda
gefur reksturinn ekki tilefni
til þess.
Það eru nokkur atriði, sem
ég vil nefna, sem stjórnvöld
hafa of mikil áhrif á í dag og
skipta miklu máli í sjávarút-
vegsrekstri. Fyrst má nefna
gengismálin, þá vaxtamálin
og að sfðustu stjórn fiskveiða
með árlegum breytingum á út-
hlutun aflaheimilda. Utan um
tvö fyrrnefndu atriðin er al-
gerlega haldið af stjórnvöld-
um. í landinu, þar sem sagt er
að ríki frjáls viðskipti, eru
þessi atriði tekin út, þ.e. frjáls
gengisviðskipti og frjálsir
vextir, en íslenskir vextir eru
Sigurður Viggosson, framkvœmdastjori Odda hf. á Patreksfirði.
mun hærri en erlendir. Þá er
atvinnurekstrinum mismun-
að, aðallega eftir stærð, því
ekki hafa allir sömu mögu-
lcika á að taka erlend lán á
lægri vöxtum."
Við þurfum frið
fyrir stjórnvöldum
„Atvinnulífið þarf að fá frið
fyrir stjórnvöldum á öllum
sviðurn, til að geta staðið sig,
fyrst á annað borð er verið að
boða og vinna eftir frjáls-
hyggjunni. Stöðugt er verið
að hækka vexti til þess að
koma í veg fyrir verðbólgu,
en í mínum huga hækkar það
verðbólgu og um leið versnar
afkoma þeirra fyrirtækja sem
skulda ntikið. íslensku krón-
unni er haldið uppi með hand-
afli þegar verið er að „kaupa"
íslenska krónu til að koma í
veg fyrir eðlilega viðskipta-
lega breytingu á henni. I raun
er verið að hafna frjálsum við-
skiptum og að gallar þeirra og
kostir komi fram með eðli-
legum hætti. Handstýring á
gengi raskar einnig tækifær-
um fyrirtækja í útflutningi."
- Hvers vegna að smíða í
Kína en ekki hér heima?
„Það er einfaldlega
smíðaverðið. Nýsmíði í
Kína er allt að 50% ódýrari
en á Islandi. Þetta er bara
spurning um peninga. Is-
lenskar skipasmíðastöðvar
hafa vafalaust betri iðnaðar-
mönnum á að skipa en við
sjáum ekki hagkvæmni þess
að smíða skipin hér á landi.“
Starfsmenn flestir
útlendingar
„Við höfum haft að jafn-
aði um 70 manns í vinnu
mismunandi eftir árstím-
um“, segir SigurðurViggós-
son. „Um 70% af mann-
skapnum eru útlendingar,
mest Pólverjar. Fyrir um
tveimurárum varhlutfall út-
lendinga um 20%. Útlend-
Sjá framhald á nœstu síðu.
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
9