Bæjarins besta - 27.09.2000, Page 11
f
'
:
ISAFJARÐARBÆR
HLUTASTARF VIÐ DÆGRADVOL
Óskum eftir að ráða starfsmann í hluta-
starf við Dægradvöl, þ.e. lengda við-
veru fy rir nemendur í 1. og 2. bekk og
ath varf fyrir nemendur utan I safj arðar.
Umeraðræða40%starffrákl. 12:00
til 15:00 daglega nema föstudaga til
kl. 14:00. Æskilegter að umsækjendur
hafi uppeldismenntun eða farsæla
reynslu af vinnu með börnum.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri
Grunnskólans á Isafirði í síma 456
3044.
Skólastjóri.
Athöfnin í Ósvörfórfram íkyrrþey og voru þar ekki aðrir en
brúðhjónin, svaramennirnir, sýslumaðurinn og Geir Guð-
mundsson, staðarhaldari og meðhjálpari í Ósvör. Veður var
hið fegursta og sjórinn á Víkinni friðsœll eins og liann vœri
að safna kröftum fyrir áhlaup vetrarins. Himinninn virtist
óvenjulega blár og sólargeislarnir óvenjulega gullnir og
fjallabrúnir voru með gráleitum haustboða. A myndinni
eru þau Petra og Wolf-Thomas ásamt Geir Guðmundssyni
og Jónasi sýslumanni.
Ferðamálaráðstefna Ferðamálaráðs íslands haldin á ísafirði
Tækifærí landsbyggð-
arinnar í ferðaþjónustu
-og hlutverk Reykjavíkurflugvallar í ferðaþjónustu á landsbyggðinni
Árleg ferðamálaráðstefna
Ferðamálaráðs íslands verð-
ur haldin í dag og á morgun
á Hótel ísaflrði. Ráðstefnan
hefur nokkra sérstöðu að því
leyti að hún er sú 30. í röð-
inni. Að vanda er á ráðstefn-
unni tekið fyrir eitt megin
viðfangsefni og að þessu
sinni er yfirskrift hennar
„Tækifæri landsbyggðar í
ferðaþjónustu.“ Einnig
verða árleg umhverfisverð-
laun Ferðamálaráðs veitt í
tengslum við ráðstefnuna.
„Á undanförnum árum
höfum við orðið vitni að
mikilli fjölgun erlendra
ferðamanna og hún hefur
að stærstum hluta orðið utan
hins hefðbundna háanna-
tíma. Það hefur hins vegar
vakið upp spurningar að
þessi fjölgun hefurekki skil-
að sér sem skyldi út fyrir
suðvesturhornið og á ráð-
stefnunni munum við m.a.
leita svara við þessu,“ segir
Magnús Oddsson, ferða-
málastjóri. Hann bendir á
að framboð á gistirýni og
hvers konaratþreyingu fyrir
ferðamenn hefur aukist
mjög á undanförnum árum,
ekki síst á landsbyggðinni,
og því ættu að vera ýmis
tækifæri í stöðunni.
„Heitu málin“ rædd
Á ferðamálaráðstefnum und-
anfarinna ára hefur verið kaf-
að ofan í ýmis mál sem skipta
miklu fyrir íslenska ferða-
þjónustu. „Við höfum leitast
við að ræða þau mál sem eru
„heit“ í umræðunni í það og
það skiptið og meðal þess sem
við höfum tekið á eru öryggis-
mál, markaðsmál og umhverf-
ismál svo eitthvað sé nefnt.
Að undanförnu hefur framtíð
Reykjavíkurflugvallar verið
mjög til umræðu og á ráð-
stefnunni verður hlutverk
hans í ferðaþjónustu á lands-
byggðinni tekið sérstaklega
fyrir,“ segir Magnús.
Þátttakendur á ráðstefnunni
eru um 200 og er hún opin
öllu áhugafólki og hagsmuna-
aðilum í ferðaþjónustu af öllu
landinu. Magnús segir mikil-
vægi ráðstefnunnar fyrir
ferðaþjónustuna lýsa sér á
fleiri en einn hátt. „Auk þess
að taka fyrir tiltekin málefni
er ekki síður mikilvægt að
hafa þetta tækifæri til að stefna
aðilum í ferðaþjónustu saman
til skrafs og ráðagerða enda
eru mýmörg dæmi um að ráð-
Hótel ísafjörður.
stefnan hefur orðið upphaf
frekara samstarfs.“ Ráðstefn-
an er jafnan haldin utan suð-
vesturhornsins og hafa heima-
menn í hvert sinn jafnframt
getað notað tækifærið til að
kynna svæði sitt.
Umhverfis-
verðlaun 2000
Samkvæmt venju verða
umhverfisverðlaun Ferða-
málaráðs afhent í tengslum
við ráðstefnuna. Þau hafa ver-
ið afhent árlega frá árinu 1995
og komu síðast í hlut Bláa
lónsins.
„Umhverfisþátturinn er
alltaf að spila stærri þátt í
starfi Ferðamálaráðs og
umhverfisverðlaunin er
hugsuð sem hvatning til
þeirra sem stunda umhverf-
isvæna ferðamennsku,"
segir Magnús. Markmiðin
með umhverfisvænni ferða-
mennsku eru að vernda
bæði menningar- og nátt-
úrulegt umhverfi og felur
hún í sér samspil ferða-
mannsins, heimamanna og
umhverfisins.
Óvenjuleg hjónavígsla á óvenjulegi
r 5
Þriðja hjónavígslan (sem
kunnugt er um) hefur farið
fram í Osvör í Bolungarvík.
Að þessu sinni áttu í hlut
þau Petra Sittig og Wolf-
Thomas Wimmel frá Hildes-
heim í Neðra-Saxlandi í
Þýskalandi. Jónas Guð-
mundsson sýslumaður gaf
þau saman og var þetta
önnur vígslan hans í sumar.
Wolf-Thomas Wimmel er
sj ónvarpsþáttagerðarmaður
hjá NDR í Þýskalandi og
hefur oft komið til Islands
og Vestfjarða. Meðal annars
hefur hann gerl heimilda-
þætti um björgunarafrekið
við Látrabjarg og safnið á
Hnjóti í Örlygshöfn. Svo
vildi til, að sama dag og
Egill á Hnjóti var í sjón-
Farkostur þeirra hjóna var gamall og virðulegur húsbíll af gerðinni Hanomag. Hér eru þau Petra og Wolf-Thontas
Wimmel við bílinn sinn á Isafirði.
varpinu ytra bárust þangað
fréttir af andláti hans.
Þau Petra og Wolf-
Thomas völdu einmitt
Vestfirði á Islandi sem
vettvang hjónavígslunnar
vegna þess að þau vildu
ganga í hjónaband á stað
sem væri í senn mjög
óvenjulegur (a.m.k. fyrir
fólk búsett suður í Evrópu)
og þeim mjög að skapi.
Sýslumanninn fengu þau til
verksins vegna þess að þau
eru bæði utankirkjufólk.
„Athöfnin í Osvörinni var
mjög notaleg upplifun",
segir Wolf-Thomas og
þakkar Dorothee Lubecki,
ferðamálafulltrúa Vestfjarða,
sem reyndar er þýsk að
uppruna, fyrir að hafa bent
þeim á þennan möguleika.
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2000
11