Dagfari - okt. 2017, Blaðsíða 10

Dagfari - okt. 2017, Blaðsíða 10
10 alþjóðasamfélagsins að vettugi, er næsta ómögulegt að líta svo á að stjórnvöld í vestrænu lýðræðisríki séu ein mesta ógnin við frið í heiminum um þessar mundir. Píratar: Frekar sammála þessa dagana. Vinstri græn: Mjög sammála. Stefna þeirra þegar kemur að kjarnorkumálum eru eitt skýrasta dæmið þar um. Viðreisn: Hvorki né. Alþýðufylkingin: Mjög sammála. Svör Bjartrar framtíðar Björt framtíð var meðal þeirra stjórnmálahreyfinga sem skiluðu svörum við spurningum SHA. Því miður urðu þau mistök að flokkurinn svaraði spurningum samtakanna frá árinu 2016 og ekki vannst tími til að bæta úr þessu fyrir útgáfu blaðsins. Svörin Bjartrar framtíðar eru þó birt hér, enda varpa þau um margt ljósi á stefnu framboðsins í málaflokknum. Er stjórnmálahreyfingin hlynnt veru Íslands í Atlantshafsbandalaginu? Já, við erum hlynnt samstarfi þjóða á sem flestum sviðum. Margt bendir til að bandarísk hernaðaryfirvöld hafi áhuga á auknum umsvifum á Íslandi. Hver er afstaða stjórnmálahreyfingarinnar til þess máls?

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.