Dagfari - okt. 2017, Blaðsíða 11

Dagfari - okt. 2017, Blaðsíða 11
11 Við erum andvíg því að opna herstöð á Íslandi og andvíg auknum umsvifum bandarískra hernaðaryfirvalda á Íslandi. Er stjórnmálahreyfingin hlynnt reglubundnu æfingaflugi Nató- herþota á Íslandi sem gengur undir heitinu loftrýmisgæsla? Já. Styður stjórnmálahreyfingin að Ísland verði friðlýst fyrir umferð og geymslu kjarnavopna? Já. Telur stjórnmálahreyfingin að þátttaka Íslands í stríðum á liðnum árum (Kosovo, Afganistan, Írak og Líbýa) hafi bætt stöðu heimsmála eða gert hana verri? Þátttaka Íslands í árásinni á Írak hefur ekki bætt stöðu heimsmála. Svo má færa rök með og á móti um það hvort hin afskiptin hafi bætt stöðu heimsmála en ákvarðanirnar voru teknar í samstarfi þjóða og voru viðbrögð við alvarlegum krísum sem nauðsynlegt var að bregðast við. Engin viðbrögð hefðu verið verri en eins og alltaf í stríðsrekstri er erfitt að sjá fyrir afleiðingarnar í samhengi heimsmála. Því styðjum við í Bf ekki notkun hervalds nema allar díplómatískar leiðir hafi verið fullreyndar og ljóst að mikil ógn steðji að óbreyttum borgurum verði ekkert aðhafst. Telur stjórnmálahreyfingin að Ísland ætti að axla ábyrgð á þátttöku sinni í stríðsrekstri liðinna ára með því að taka á móti fleira flóttafólki? Tvímælalaust. Hversu líklegt er að fulltrúar stjórnmálahreyfingarinnar muni styðja næsta stríð Bandaríkjastjórnar í fjarlægum löndum, veljið einn eftirtalinna svarmöguleika: (Mjög ólíklegt, frekar ólíklegt, hvorki né, frekar líklegt, mjög líklegt) Mjög ólíklegt.

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.