Dagfari - okt. 2017, Blaðsíða 14

Dagfari - okt. 2017, Blaðsíða 14
14 ljúfa löð. Fórnarlömb stríðanna skipta þá í raun engu máli, þau eru nauðsynlegur fórnarkostnaður [collateral damage] í eltingarleiknum við vonda karlinn. Ein ástæða þess að svona einfeldningslegur málflutningur fær að vaða uppi í fjölmiðlum er að Vesturlandabúa varðar í raun ekkert um stríðin sem verið er að heyja í þeirra nafni. Þau eru eins og þriðja flokks afþreying sem menn fylgjast með í dag en er gleymd á morgun. Þá verður söguþráðurinn auðvitað að vera einfaldur og laus við blæbrigði. Í löndunum sem fyrir ófriðnum hafa orðið er stríðið hins vegar ekki gleymt. Þar eru margar kynslóðir fólks enn að vinna úr áföllunum sem stríðin hafa valdið þeim. Þetta vita stjórnvöld á Vesturlöndum og því hafa þau tekið upp sterkar síur gagnvart innflytjendum. Hryðjuverk eru fjarri því að vera alvarleg ógn við hin friðsömu samfélög Vesturlanda en samt óttast stjórnvöld þau frekar en allt annað. Óttinn stafar af niðurbældum minningum um skaðann sem Vesturlönd hafa valdið á samfélögum í þriðja heiminum, ekki síst ríkum þar sem Islam er ríkjandi. Þess vegna eru hryðjuverk múslima það sem Vesturlandabúar óttast mest þó að í raun séu hryðjuverk annarra hópa, t.d. hægriöfgamanna, mun algengari og mannskæðari. Það sem Vesturlandabúar óttast er hins vegar að hryðjuverkin minni okkur á skaðann sem samfélög í Írak, Sýrlandi, Jemen, Afganistan, Líbýu og fleiri löndum hafa orðið fyrir af völdum Vesturlanda. Þess vegna einkennist orðræða fjölmiðla um hryðjuverk af því að þeir benda á allar aðrar orsakir en þessar fyrir þessum glæpum. Það þarf fyrir alla muni að greina orsakir hryðjuverka í Islam sem trúarbrögðum, í félagslegum vandamálum innflytjenda eða bara að skilgreina þau sem óskiljanleg voðaverk. Umfram allt má alls ekkert tengja þau við þann skaða sem Vesturlönd hafa unnið á samfélögum í fjarlægum löndum án þess að þurfa nokkurn tíma að hugsa um afleiðingarnar. Sverrir Jakobsson

x

Dagfari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagfari
https://timarit.is/publication/968

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.