Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2010, Side 16
16
Friðrik Ómar kom fyrst fram á útitónleikum
Hinsegin daga sumarið 2006. Þá var hann ungur
og upprennandi, eins og sagt er, en það fór ekki
fram hjá neinum að hann átti framtíðina fyrir
sér. Um svipað leyti stofnuðu þau Regína Ósk
Eurobandið ásamt hópi úrvals hljóðfæraleikara.
Flestum er í fersku minni þegar Eurobandið
setti allt á annan endann í keppninni í Belgrad
vorið 2008 með laginu „This Is my life“. Það
var í fyrsta sinn sem ísland komst áfram upp úr
undankeppni Eurovision, enda var hljómsveitin
valin „The Best Group 2008“ af aðdáendum
keppninnar og í kjölfarið ferðuðust þau víða um
Evrópu og skemmtu.
ásamt Guðrúnu Gunnarsdóttur sendi Friðrik
frá sér þrjár plötur, Ég skemmti mér, sem hafa
að geyma gömul íslensk lög, og svo rækilega
slógu þau í gegn að plöturnar náðu allar gull-
plötusölu. árið 2006 hlaut hann síðan tilnefningar
til íslensku tónlistarverðlaunanna sem söngvari
ársins og fyrir plötu ársins. árið 2009 gáfu þeir
Friðrik og jógvan Hansen út plötuna Vinalög sem
varð söluhæsta plata á íslandi það ár.
Það er okkur sérstakur heiður að njóta hæfi-
leika Friðriks Ómars í íslensku óperunni fimmtu-
dagskvöldið 5. ágúst, enda gerir hann vel við
bræður sína og systur: Rétt fyrir hátíðina sendir
hann frá sér lagið „dáinn úr ást“ sem er tileinkað
Hínsegin dögum í Reykjavík og verður einkenn-
islag hátíðarinnar í ár.
AMBASSADOR OF FABuLOuSnESS
The highly popular Friðrik Ómar released his
debut album in 2007 and is a member of Euro-
bandið, a group renowned for its high-energy
performances and irresistible charm. His col-
laboration with Faeroese singer Jógvan Hansen,
Vinalög, was the best-selling album in Iceland
in 2009. Shortly before this year’s Pride begins,
Friðrik Ómar will release a new song, “Dáinn úr
ást” or “Dying from Love,” which is dedicated
to Reykjavík Gay Pride and will be the festival’s
official song this year. It is a special honor to
welcome Friðrik Ómar to the Opening Ceremony
at the Icelandic Opera, Thursday, 5 August.
FriÐriK