Hinsegin dagar í Reykjavík - aug. 2010, Síða 20
Hún hefur sungið frá því hún man eftir sér og á
að baki ófáa sigra í söngkeppnum í grunnskóla
og menntaskóla. Hún nam bæði klassískan
söng og djasssöng og hefur m.a. sungið og
leikið í Litlu hryllingsbúðinni og Kysstu mig
Kata hjá leikfélagi Reykjavíkur. Þá hefur hún
ljáð Eurovision-keppendum okkar bakrödd sína
á erlendum vettvangi uns að því kom að hún
stóð sjálf í miðju sviðsljósi keppninnar ásamt
Friðrik Ómar í Belgrad fyrir tveimur árum.
Fyrir jólin 2005 gaf Regína Ósk út sína fyrstu
sólóplötu sem ber einfaldlega nafn hennar.
Í djúpum dal kom út ári síðar og sú þriðja, Ef ég
væri, árið 2007. með þeim hefur hún sýnt og
sannað að hún stendur í fremstu röð íslenskra
söngkvenna. Regína Ósk hefur nokkrum sinnum
sungið á útitónleikum Hinsegin daga, en nú
kemur hún í fyrsta sinn fram á opnunarhátíðinni
í íslensku óperunni 5. ágúst.
SEnSATIOnAL SOnGSTRESS
Regína Ósk studied jazz and classical sing-
ing and has released three successful solo
albums. Along with Friðrik Ómar, she is the
lead singer of Eurobandið, which took part in
the Eurovision Song Contest in Belgrad, 2008,
with “This is My Life.” She first performed
with Eurobandið at Reykjavík Gay Pride in the
summer of 2006, but this year she returns with
a solo act certain to dazzle and beguile audi-
ences. Regína Ósk performs at the Opening
Ceremony at the Icelandic Opera on Thursday,
5 August.
20
reGínA