Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2010, Qupperneq 41
til blakhópur og spilaklúbbur og nú síðast
„þriðjudagssprikl“ sem er allt það sem fólki
dettur í hug þá stundina. stundum er boðið
upp á tíma í ballett, hlaupið úti, gengið á
Esjuna, nú síðast prófuðu þau „hot yoga“,
já, eiginlega allt það sem félögunum finnst
nýstárlegt. Þá hefur annar fótboltaþjálfari
liðsins boðið upp á morgunleikfimi í hús-
næði sjúkraþjálfunar Vesturbæjar. síðasta
vetur voru að meðaltali 9–10 viðburðir á
vegum félagsins í hverri viku. nýlega tók
styrmir höndum saman við kmk, konur með
konum, um að æfa blak en það er í mikilli
uppsveiflu hjá báðum kynjum. Og strákarnir
vilja leggja sig fram um að hvetja stelpurnar
til að koma inn og æfa sem flestar. Það
munar líka um nýja liðskrafta, í félaginu eru
til dæmis stúlka og piltur sem hafa æft með
unglingalandsliðinu í sundi.
En hvernig fara fótboltaæfingarnar fram.
„Við vinnum núna oftast með þjálfurum, því
að við áttuðum okkur fljótt á því að lang-
flestir vildu fá skipulagðar æfingar og
kennslu. á íþróttamótum höfum við séð
ýmsa tæknilega veikleika okkar sem hægt
var að bæta. svo nú eru oft tækniæfingar í
hálftíma og síðan spilað saman í klukkutíma
og stundum er bara spilað.“
En á hvaða aldri eru styrmisfélagar?
„Þeir yngstu eru þetta 17–20 ára og sá elsti
segist vera þrítugur, en hann er að vísu
búinn að vera það nokkuð lengi, ábyggilega
í rúman áratug,“ segir Alfreð um þá hlið
mála. „Fæstir höfðu áður spilað fótbolta
en sumir höfðu æft fimleika. Og svo koma
alltaf nokkrir streitarar og spila með okkur.
Þeir falla vel inn í hópinn, hafa fylgt okkur
niður laugaveg í gleðigöngu Hinsegin daga
og finnst það ekkert mál. Það er andinn sem
sameinar mannskapinn.“
Íþróttamót um allan heim
svo taka þau þátt í alþjóðlegum mótum.
Þrisvar sinnum hefur styrmir tekið þátt í
íþróttaleikum í kaupmannahöfn, tvisvar í
london og einu sinni í Argentínu. Vorið 2009
stóð félagið svo fyrir alþjóðlegu fótboltamóti
á íslandi, Iceland Express Cup, með mikilli
dagskrá. Og það virðist lítill vandi að rata
á íþróttamót samkynhneigðra í útlöndum, í
Þýskalandi og Frakklandi er keppt í fótbolta
og blaki hverja einustu helgi. „Það hefur
Fótboltaliðið á keppnisferðalagi í Kaupmannahöfn