Hinsegin dagar í Reykjavík - aug 2010, Qupperneq 44
44
Félag
hinseg-
in stúdenta
á sér ellefu ára
sögu en undir ýmsum
nöfnum. Við fæðinguna árið
1999 var það skýrt FSS, félag sam-
kynhneigðra stúdenta, en við það
var síðan einu og öðru aukið, allt
í góðu samræmi við þann skilning
sem hópurinn lagði í samtakamátt-
inn og samstöðuna hverju sinni.
Tvíkynhneigðir fengu brátt sinn sess,
síðar transfólk og loks var öllu fund-
inn staður undir þeim hinsegin hatti
sem við þekkjum í dag. Í áratug hefur
félagið siglt við misjafnan byr, stundum hefur
blásið hressilega í seglin, en önnur ár hafa þau siglt í
logni, því að sérstaða þessa merka félags er ekki síst fólgin
í þeirri augljósu staðreynd að stúdentar koma og fara og
hugðarefnin breytast í takt við tíðarandann.
„Við spyrjum
okkur þeirrar
spurningar á
hverju hausti
hvað við ættum
nú helst að taka
okkur fyrir hendur,“
segir jónsi, jón
kjartan ágústsson,
núverandi formaður
félagsins. „sum árin
hafa áherslurnar verið
mjög pólitískar, þá hefur
félagið ráðist í stór verkefni,
haldið alþjóðlegar ráðstefnur,
og stundum hefur starfið litast
af stórviðburðum í baráttu- og
hagsmunamálum hinsegin fólks. svo
koma þeir tímar þegar hópurinn hefur
séð ástæðu til að styrkja sig innan frá og efla
félagsstarfið. Reynslan sýnir okkur að krafturinn í
starfinu kemur ekki nema við styrkjum okkur innan frá.“
Það var einmitt til að auka áhuga fólks á félaginu að þau ákváðu
síðastliðið haust að hittast vikulega á Q-kvöldum sem eru haldin í
félagsmiðstöð samtakanna ´78 á hverju föstudagskvöldi.
„Tilgangurinn var einfaldlega sá að
gefa fólki kost á að hittast og kynnast
utan við þetta dæmigerða skemmtana-
umhverfi,“ segir jónsi. „Og þetta heppnaðist, aðsóknin er fín og hérna
höfum við myndað þéttan kjarna af áhugasömu fólki sem leggur stjórn-
inni lið. Við erum flest á aldrinum 18–28 ára, flest okkar eru í skóla
Eigum
við að þurfa
að skilgreina
okkur?
Félag hinsegin
stúdenta