Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2010, Side 51

Hinsegin dagar í Reykjavík - ágú. 2010, Side 51
fremst á brekkunni rétt ofan við miðbæinn á akureyri stendur reisulegt hús sem eitt sinn var barnaskóli en hýsir nú samfélags- og mannréttindadeild akureyrarbæjar og ýmiss konar starfsemi, svo sem hand- verks- og tómstundamiðstöð, símenntun- armiðstöð og menntatorg. Á efstu hæð í gamla brekkuskólanum, sem gengur nú undir nafninu rósenborg, er líka svokallað Ungmenna-hús (húsið) þar sem ungt fólk getur komið saman og nýtt sér leikher- bergi, sjónvarpsherbergi og tölvuaðstöðu, haldið tónleika og fengið æfingahús- næði svo fátt eitt sé nefnt. Meðal þeirra sem nýta sér þessa frábæru aðstöðu í húsinu er norðurlands- hópur Samtakanna '78 (S78n) og í klúbbherberg- inu hitti ég nýkjörinn for- mann hópsins, hina 19 ára gömlu Uglu Stefaníu Jónsdóttur, en hún er einnig fyrsti formaður S'78n sem er opinber- lega trans. „norðurlandshópurinn hefur komið saman hér í Húsinu í tvö ár. núna hittumst við alltaf á hverju miðvikudags- kvöldi og spilum og spjöll- um og svo höfum við oft þemakvöld, t.d. sápukúlu- þema eða hattaþema. Hópurinn sem hittist reglu- lega er á aldrinum 16 til 26 ára og yfirleitt erum við á bilinu fimm til fimmtán talsins,“ segir Ugla og bætir við að kvöldið sem viðtalið var tekið ætli þau að kynna helstu hugtök um hinsegin fræði fyrir hópnum, en hug- myndina fengu stjórnend- urnir á ráðstefnu sem Q – félag hinsegin stúdenta, hélt í apríl. markmið Uglu er fyrst og fremst að halda félagsstarfi og fræðslustarfi samtakanna gangandi. „Ég vil halda uppi reglu- legum viðburðum og halda áfram að hittast í hverri viku svo fólk viti að það sé alltaf eitt- hvað um að vera og að starf hópsins sé lifandi. Ég vil líka að við vinnum áfram að jafningja- fræðslu í skólum en ég tók þátt í henni í vetur. Við höfum farið í nokkra grunnskóla á Akureyri og hitt alla fyrsta árs hópa í VmA en næsta vetur vil ég senda póst á sem flesta skóla á norðurlandi og bjóða þeim að koma til þeirra með fræðslu.“ erfITT að noTa SkILrÍkI Með GaMLa nafnInU Að mati formannsins er staða samkynhneigðra á íslandi nokkuð góð, til dæmis sé frumvarp um breytingar á hjúskaparlögum, sem lá fyrir Alþingi þegar viðtalið var tekið, afar jákvætt. Þó þykir Uglu vanta meiri opinbera umræðu á Alþingi og víðar, sérstaklega um málefni transfólks. „Það er til dæmis mjög erfitt að transfólk megi ekki byrja að nota nýtt nafn fyrr en eftir eitt ár í hormónameðferð og þar á undan hefur það þurft að ganga í gegnum undirbúningsferli sem tekur að minnsta kosti eitt ár. Ég þarf núna að nota skilríki með gamla nafninu og það getur oft verið erfitt. Til dæmis hef ég verið spurð að því þegar ég fer í banka hver hann sé, þessi strákur á skilríkjunum.“ Ugla er ekki feimin við að ræða um líf sitt. „Ég er örugglega búin að fá flestar spurningar um trans sem hægt er að spyrja,“ segir hún og hlær. „Ég vissi örugglega að ég væri trans þegar ég var svona 14–15 ára, en þegar ég lít til baka kem ég auga á hluti eins og þá að ég lék mér alltaf með dúkkur og svoleiðis þegar ég var krakki. svo þegar ég var 16 ára ákvað ég að taka skrefið og talaði við námsráðgjafa í skólanum. Hann vísaði mér á heimilislækni sem vísaði mér svo á sálfræðing sem vísaði mér á geðlækni og þar fram eftir götunum. Þetta ferli tók þrjú ár og um síðustu jól kom ég út fyrir fjölskyldunni, en áður hafði ég sagt nánustu vinum mínum frá þessu. á nýársdag 2010 byrjaði ég sem sagt að nota nýtt nafn og lifa sem stelpa. áramótaheitið mitt í þetta skipti var að vera ég sjálf.“ ÞaU MISSTU VaL en fenGU UGLU Í STaðInn Fjölskylda Uglu styður vel við bakið á henni og vinir hennar líka. „Ég var rosalega stressuð að segja fjölskyldunni, en þau hafa tekið þessu mjög vel og styðja mig fullkomlega. Pabbi og mamma þurfa auðvitað að aðlagast því að eiga ekki son heldur dóttur og þau nota stundum vitlaust for- nafn eða kalla mig Val, en það er gamla nafnið mitt. Þau þurfa bara tíma til að venjast þessu. Þeim finnst eins og þau hafi misst Val en fengið Uglu í staðinn, en ég er enn sama manneskj- an og þau þurfa bara að melta þetta. Afi skilur ekki alveg af hverju ég er trans, en hann styður mig samt. litli bróðir minn komst í uppnám fyrst þegar ég kom út fyrir honum, en núna finnst honum þetta allt í lagi. áður en ég kom út var ég líka búin að undirbúa hann þegar við vorum úti í fjósi á kvöldin, þá útskýrði ég fyrir honum hvað trans er og svoleiðis.“ LeIðréTTInGarferLIð Fáir vita margt um reynslu transfólks, svo sem það ferli sem einstaklingar ganga í gegnum ef þeir ákveða að láta leiðrétta kyn sitt. „sjálft leiðrétting- arferlið samanstendur af undirbúningsferli, hormónagjöf, útlitsaðgerðum og svo sjálfri leiðréttingaraðgerðinni. í undirbúningsferlinu byrjar manneskjan að lifa í kynhlutverki hins kynsins, gengur undir öðru nafni og talar um sig í öðru kyni en sínu líffræðilega kyni. Einnig gengur manneskjan til sálfræðings og geðlæknis og undirgengst alls kyns sál- fræðipróf. Þetta ferli tekur allavega eitt ár. Ef manneskjan er talin hæf byrjar hún á hormón- um sem breyta fitumyndun og vöðvamassa líkamans. Hún getur einnig farið í ýmiss konar minni aðgerðir, svo sem hárrótareyðingu, R æ t t v i ð Uglu Stefaníu Jónsdóttur e f t i R Á S t U K R i S t í n U B e n e d i K t S d ó t t U R 51 Af hverju ertu ekki bara hommi venjulegt fólk? eins og f j i i j f i Lj ós m yn di r: Li nn ea O rn st ei n

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.