Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2000, Side 18
HINSEGIN DAGAR 2000 í JÚLÍ
Glæsilegt mannréttindaþing
Laugardaginn l.júlíefndu Mannréttindaskrifstofa Islands og Hinsegin
dagar 2000 til málþings í Norræna húsinu undir heitinu
„Samkynhneigðir á aldamótum". Þrátt fyrir blíðviðri sótti fjöldi manns
þingið og luku allir lofsorði á framtakið, en þetta er í fyrsta sinn sem
svo umfangsmikið fræðilegt þing um samkynhneigð málefni er haldið
hér á landi. Frummælendur voru fimm en Ragnar Aðalsteinsson, hæsta-
réttarlögmaður leiddi umræður
Kim Friele frá Noregi var heiðursgestur málþingsins, en hún er einn
af brautryðjendunum í mannréttindabaráttu samkynhneigðra á
Norðurlöndum og hefur starfað að þeim málum í 35 ár. I erindi sínu
rakti hún þau hvörf sem urðu í sjálfskilningi samkynhneigðra fyrir
rúmum aldarfjórðungi og hverju þau breyttu. Hún lagði mat á sigra
okkar í mannréttindamálum sem unnist hafa og horfði til framtíðar
Hversu langt höfum við náð og hvernig ber að glíma við þá duldu
kúgun sem erfitt er að festa hendur á en hefur engu að síður ómæld
áhrif á andlega líðan samkynhneigðra? Hvað tókst í baráttu liðinna ára,
hvað fór miðut hvar eru verk að vinna? I erindi sínu lagði Kim áherslu á
það að þrátt fyrir stórkostlega ávinninga þurfum við að vera vel á
verði. Þótt nýjar kynslóðir njóti góðs af því sem unnist hefur þarf ætíð
að hafa í huga að það er átak fyrir alla unga homma og lesbíur að
öðlast sjálfsvirðingu og ná tökum á lífinu í hörðum heimi.
Olafur Þ. Harðarson, dósent við Háskóla Islands flutti fróðlegt erindi
um samkynhneigð og breytingar á gildismati almennings áVestur-lönd-
um í Ijósi fjölþjóðlegra rannsókna síðustu ára. RannveigTraustadóttir
dósent við Háskóla Islands talaði um félagslega útskúfun, jafnrétti og
konur í minnihlutahópum. Jóhanna K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri
Islandsdeildar Amnesty International, ræddi um mannréttindabrot á
grundvelli skilgreinds mismunar og lýsir viðleitni Amnestysamtakannatil
að verja stöðu þeirra sem þolað hafa misrétti vegna kynhneigðar sinnar
Loks flutti Haukur F. Hannesson tónlistarmaður erindi um kristni, kirkju
og samkynhneigð.
Fyrirlestrarnir verða gefnir út í bók í október á þessu ári og aðstand-
endur þingsins lýsa áhuga sínum á því að gera slík þing að föstum lið í
mannréttindaumræðu komandi ára.
GAY PRIDE 2000 IN JULY
"Gay in the new millennium"
A Human Rights Conference
The first major conference in lceland approaching gay issues on acade-
mic level was held on July Ist in cooperation with the lcelandic Human
Rights Center Obviously the interest was great. Competing with blaz-
ing sunlight and a national festival inThingvellirthe conference, directed
by distinguished Supreme Court lawyer Ragnar Aðalsteinsson, attract-
ed more people than ever expected.
Main speaker and guest of honour was the Norwegian gay rights
pioneer Ms. Kim Friele who looks back on 35 years in the gay move-
ment. As her work and her books have had a tremendous influence in
Scandinavia the cultural center of the Nordic countries in ReykjaviT,
the Nordic House, made a very appropriate setting for the confer-
ence. In her powerful speech she recalled the turning point in gay self-
definition in the seventies and the changes it has made. She evaluated