Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.01.2005, Blaðsíða 1

Bæjarins besta - 12.01.2005, Blaðsíða 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk Miðvikudagur 12. janúar 2005 · 2. tbl. · 22. árg. Vestfirðingur ársins 2004 valinn á bb.is Mugison hlaut flest atkvæði Tíu ár frá snjóflóðinu í Súðavík Á sunnudag eru liðin 10 ár frá snjóflóðinu mikla sem féll á Súðavík aðfaranótt mánu- dagsins 16. janúar 1995. Í flóðinu fórust 14 manns en 34 björguðust. Þessa hörmulega atburðar er minnst í blaðinu í dag, m.a. með við- tölum við nokkra einstaklinga sem komu að björgunarstörf- um sem og við tvö af þeim sem björguðust giftusamlega. Sunnudaginn 16. janúar nk. verður haldin minningarguð- þjónusta í íþróttahúsinu og hefst hún kl. 14. Eftir athöfnina býður Súðavíkurhreppur til kaffisamsætis í grunnskólan- um. Sjá nánar á bls. 8-13. Guðmundur M. Kristjánsson, faðir Arnar Elíasar tekur við viðurkenningu og farandgrip úr hendi Arnar Torfasonar í Gullauga (tv) og Hálfdáns Bjarka Hálfdánssonar, fréttastjóra Bæjarins besta og bb.is Tónlistarmaðurinn Örn Elí- as Guðmundsson, Mugison, er Vestfirðingur ársins 2004 samkvæmt vali lesenda frétta- vefjarins bb.is. Ástæður þess að lesendum vefjarins gáfu honum atkvæði sitt, eru hversu frábærlega hann hefur staðið sig á tónlistarsviðinu, hvernig hann gerði skíðaviku Ísfirð- inga að eftirsóknarverðum at- burði og hve duglegur hann hefur verið við að kynna sínar heimaslóðir. „Mugison er ein besta kynning sem Vestfirðir hafa fengið um langt skeið,“ segir í mörgum umsögnum þeirra sem gáfu honum at- kvæði sitt. Mugison gaf út nýja hljómplötu á síðasta ári sem hlotið hefur frábæra dóma. Gagnrýnendur Morgunblaðs- ins, Rásar 2 og DV hafa valið plötu Mugisons, bestu plötu ársins 2004, auk þess sem hann er tilnefndur til fimm verð- launa hátíð Íslensku tónlistar- verðlaunanna sem fram fer í næsta mánuði. Í öðru sæti að mati lesenda bb.is varð Jón Fanndal Þórðar- son, verslunarmaður og for- maður Félags eldri borgara í Ísafjarðarbæ en hann var einn af forsvarsmönnum Heima- stjórnarhátíðar alþýðunnar sem haldin var á Ísafirði á síð- asta ári. Í þriðja sæti varð Kristinn H. Gunnarsson, al- þingismaður, sem varð í öðru sæti árið 2003, og í fjórða sæti varð Sigmundur F. Þórðarson, húsasmíðameistari á Þingeyri og formaður Íþróttafélagsins Höfrungs. Vel á fjórða hundr- að manns tóku þátt í kosning- unni sem stóð frá miðjum des- ember og fram til áramóta. Þeir einstaklingar sem urðu í 1.-4. sæti fengu rúmlega helm- ing allra greiddra atkvæða. Sjá nánar um valið á Vestfirðingi ársins 2004 og viðtal við Örn Elías Guðmundsson, alias Mugison á bls. 6 og 7. Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson (Mugison) er Vestfirðingur ársins 2004. Kristinn H. Gunnarsson var valinn framsóknarmaður árs- ins 2004 í netkönnun á vef sambands ungra framsóknar- manna, suf.is. Af tíu þúsund atkvæðum fékk Kristinn um þriðjung. „Ég er mjög ánægður. Ég gleðst bara mjög yfir þessum stuðningi sem ég fæ og kemur mér mjög á óvart og er þakk- látur fyrir“, segir Kristinn í viðtali við suf.is. Í viðtalinu ræðir Kristinn meðal annars um málþingið „Með höfuðið hátt“ sem haldið var á Ísafirði í sumar og hugmyndina um háskóla á Vestfjörðum. – thelma@bb.is Kristinn H. valinn fram- sóknarmað- ur ársins 02.PM5 6.4.2017, 09:221

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.