Bæjarins besta - 12.01.2005, Page 7
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 7
Vestfirðingur ársins 2004
Ummæli um fjóra
efstu í kjörinu
Örn Elías Guðmundsson (Mugison):
„Frábær tónlistarmaður – Gerði
skíðaviku Ísfirðinga að eftirsóknarverð-
um atburði – Vekur eftirtekt og aðdáun
hvar sem er – Er hrikalega töff og góð-
ur tónlistarmaður – Óstöðvandi í að
kynna heimaslóðirnar – Framúrskar-
andi tónlistarmaður og Rúna kærasta
hans líka – Ein besta kynning sem
Vestfirðir hafa fengið – Tónlistarsnill-
ingur sem hefur sannað að það er hægt að gera skemmtilega
hluti – Hefur verið góð auglýsing fyrir vestfirskt menningar-
líf – Öflugur talsmaður Vestfjarða – Er með eina bestu
plötu ársins – Hann er snillingur.“
Jón Fanndal Þórðarson:
„Hörku karl, fulltrúi alþýðunnar á
Vestfjörðum – Hélt hátíð fyrir alla –
Maðurinn á bak við Heimastjórnarhátíð
alþýðunnar – Hann er svo óbilandi bjart-
sýnn, jákvæður og fylginn sér – Jón er
samviska Vestfirðinga, frumkvöðull –
Vinnur meira fyrir Vestfirðinga en allir
þingmenn okkar til samans – Er oftast
boðberi sannleikans – Maðurinn er yfir-
fullur af réttlætiskennd að það hálfa væri nóg – Baráttumaður
fyrir betra lífi fyrir vestan – Skar upp herör gegn hroka og
lákúru sjálfstæðis- og framsóknarmanna í ríkisstjórn –
Maður alþýðunnar – Frábær fulltrúi eldri borgara á svæð-
inu.“
Kristinn H. Gunnarsson:
„Hefur staðið sig vel fyrir Vestfirð-
inga – Öflugur talsmaður Vestfirðinga,
reyndar sá eini sem við eigum á þingi –
Píslarvottur lýðræðisins – Lætur ekki
beygja sig til hlýðni – Fyrir að þora
vera hann sjálfur – Maður lýðræðis- og
landsbyggðar. Hlustar eftir röddum
fólksins – Trúr sínum kjósendum –
Ódeigur í ræðu og riti – Hvikar hvergi
frá sannfæringu sinni – Ber hag kjósenda sinna meira fyrir
brjósti en flokksagann – Heldur Vestfjörðum inni í umræð-
unni – Skársti þingmaður Vestfjarða, þorir að standa á sínu
– Stefnufastur og lætur ekki kúga sig til að falla frá sann-
færingu sinni.“
Sigmundur F. Þórðarson:
„Fremstur í hópi frábærs fólks hjá
Höfrungi – Helsta driffjöður Dýrfirð-
inga í íþrótta- og félagsmálum – Góður
gæi – Fórnfús fyrir æsku Dýrafjarðar,
Leiðandi í öllu íþrótta- og menningarlífi
í Ísafjarðarbæ – Hann er svo góður,
hann er svo duglegur – Mikill dugnaðar-
forkur – Óeigingjarn eldhugi og áhuga-
maður um ræktun uppvaxandi kyn-
slóðar.“
Eftirtaldir einstaklingar fengu einnig eitt eða fleiri atkvæði í
valinu á Vestfirðingi ársins 2004: Gunnar Atli Gunnarsson,
Ragna Aðalsteinsdóttir, Baldur Smári Einarsson, Vilborg Arn-
ardóttir, Ólína Þorvarðardóttir, Halldór Sveinbjörnsson, Gísli
Ásgeirsson, Níels Ársælsson, Jón Jónsson, Rafn Jónsson, Guð-
mundur Einarsson, Hallgrímur Sveinn Sævarsson, Helgi Þór
Arason, Halldór Halldórsson, Þór Harðarson, Jóhanna Odds-
dóttir, Guðmundur Halldórsson, Sigurður Gunnar Þorsteins-
son, Einar Oddur Kristjánsson, Dóra Hlín Gísladóttir, Halldór
Jónsson, Ísfirski unglingurinn, Smári Haraldsson, Þorsteinn
Másson, Árný Halldórsdóttir, Auður Ólafsdóttir, Agnes M.
Sigurðardóttir, Þröstur Þórisson.
Arnar Kristjánsson, Falur Þorkelsson, Eiríkur Böðvarsson,
Óli M. Lúðvíksson, Olgeir Hávarðarson, Gísli Úlfarsson, Reynir
Torfason, Laufey Jónsdóttir, Einar Valur Kristjánsson, Guð-
finnur Pálsson, Magnús Ólafs Hansson, Jón Emil Svanbergsson,
Gylfi Gunnarsson, Önundur Jónsson, Haraldur Tryggvason,
Jónas Guðmundsson, Halldór Hlöðversson, Sveinn Karlsson,
Þröstur Jónsson og Brad Egan, Dorothee Lubecki, Sveinbjörn
Kristjánsson, Þóra Þórðardóttir, Magnús Hauksson, Hermann
Gunnarson, Þuríður Katrín Vilmundardóttir, Hlynur Snorra-
son, Hjörtur Hinriksson, Brynhildur Einarsdóttir, Guðmundur
Hjaltason og Ólafur Ragnar Grímsson.
Ísfirski/bolvíski tónlistar-
maðurinn Örn Elías Guð-
mundsson segir það mikinn
heiður að hafa verið valinn
Vestfirðingur ársins 2004 af
lesendum bb.is. Aðspurður
segir hann tíðindin hafa
komið sér mjög á óvart.
„Þetta er agalega mikill
heiður. Ég veit eiginlega
ekki alveg hvað hef ég gert
svona merkilegt. Persónu-
lega finnst mér það mitt
mesta afrek á liðnu ári að
hafa barnað unnustu mína“,
segir Örn en Rúna Esradóttir
verðandi barnsmóðir hans
verður að líkindum léttari
eftir um mánuð.
„Þar á eftir eru það
kannski þessar tvær plötur
sem ég gaf út. Svo finnst
mér mjög gaman að hafa átt
þátt í tónlistarhátíðinni Al-
drei fór ég suður, sem var
haldin á Ísafirði um síðustu
páska.“
Á lítinn heiður af
Aldrei fór ég suður
– Nokkrir kusu þig einmitt
út af þessari tónlistarhátíð,
frekar en út af tólistar-
ferlinum.
„Já, þetta er kannski ör-
lítill misskilningur, að ég
hafi verið að draga vagninn á
þessari tónlistarhátíð. Pabbi
(Guðmundur Kristjánsson
hafnarstjóri. Innskot: BB) á
99,9% heiður af þessari hátíð
og var án nokkurs vafa helsti
skipuleggjandi hennar.
Hann reddaði öllu. Ef
menn halda að ég hafi átt
þessa hátíð er það kannski út
af einhverri athyglissýki í
mér. Pabbi hreinsaði verk-
smiðjuna, íbúðirnar, reddaði
mat og gistingu og í rauninni
öllu. Ég var bara svo hepp-
inn að fá að vera í farþega-
sætinu og hjálpa til þegar
þess þurfti.
Því má svo auðvitað ekki
gleyma að fjöldi fólks kom
að þessari hátíð, ég spilaði
bara mitt hlutverk og aðrir
spiluðu sín.“
Rúntarar með
FM í botni
Örn Elías gaf út plöturnar
Niceland og Mugimama, is
this monkey music á liðnu
ári.
„Ég var fram að páskum
að vinna Niceland plötuna.
Ég gerði hana í kirkjunni í
Súðavík. Þar fór afskaplega
vel um mig og ég stend í
mikilli þakkarskuld við Súð-
víkinga, trúi varla að þeir
hafi treyst mér svona vel
fyrir kirkjunni. Ég hafði
ótrúlega góða aðstöðu þarna,
maður er einhvern veginn
ekkert að slæpast í kirkju og
heldur vel á spöðunum allan
tímann.
Ég byrjaði að vinna að
Mugimama í Súðavík, en
gerði samt megnið af henni í
gamla gráa húsinu í Hafnar-
strætinu á Ísafirði, beint á
móti gamla apótekinu. Þar
fór líka mjög vel um mig.
Að vísu gat verið svolítið
erfitt þegar rúntararnir voru
með FM í botni að keyra
framhjá, það er erfitt að taka
upp lágstemmdan söng við
svoleiðis aðstæður, en eins
og þeir vita sem hafa hlustað
á plötuna þá eru nokkur
róleg lög á henni.“
Geðveikur einn
inni í húsi
Þrátt fyrir ónæðið er hægt
að segja að rúntarar og
skemmtanaglatt fólk í miðbæ
Ísafjarðar hafi líka haft já-
kvæð áhrif á gerð plötunnar.
„Það varð til þess að
maður fór að gera eitthvað
rokk. Til dæmis er lagið Sad
as a truck gert á helgarkvöldi
þegar rúntararnir fóru ham-
förum á bílgræjunum og fólk
arkaði sauðdrukkið framhjá
húsinu. Þá var ég snargeð-
veikur einn inni í húsi að
klára plötu, þó maður hefði
að sjálfsögðu frekar kosið að
fara á djammið.“
Jón Fanndal er
náttúrurebell,
alvöru töffari
Örn er tilnefndur til
íslensku tónlistarverðlaun-
anna sem afhent verða í
febrúar. Í það mesta gæti
hann hlotið fimm slík, en
hann og fönksveitin Jagúar
hlutu flestar tilnefningar
þetta árið. Aðspurður segist
hann vona að titillinn Vest-
firðingur ársins gefi tóninn
fyrir það sem koma skal á
þessu ári.
„Það væri gaman. Annars
er ég furðu lostinn yfir að
hafa hlotið þessi verðlaun.
Mér finnst Jón Fanndal
Þórðarson helst eiga að fá
þau. Bæði ég og pabbi
kusum hann. Ef hægt er að
deila verðlaununum, þá vil
ég deila þeim með Jóni og
pabba og lít svo á að þeir séu
ekki minni Vestfirðingar
ársins en ég.
Jón hefur gert ótrúlegustu
hluti á þessu ári. Það hefur
náttúrlega verið gaman að
fylgjast með þessu sjúkra-
húsþvottamáli öllu, þar hefur
hann ekki verið feiminn við
að segja sína skoðun, frekar
en fyrri daginn. Og svo var
að sjálfsögðu þvílíkt afrek að
halda þessa heimastjórnar-
hátíð. Aðal ástæðan fyrir því
að ég kaus hann voru um-
mæli hans um að þingmenn
og bæjarpólitíkusar væru að
stuðla að snobbvæðingu. Það
fannst mér alger snilld. Hann
er náttúrurebell. Alvöru
töffari.
Ég veit ekki hvað hann er
gamall, en mér finnst eins og
hann sé bara nokkrum árum
eldri en ég. Það er þvílík
orka í gæjanum. Hann rífur
kjaft þegar honum finnst
hann þurfa. Svo selur hann
líka ódýrasta kaffi á landinu,
á flugvellinum á Ísafirði.“
„Veit eiginlega ekki hvað ég
hef gert svona merkilegt“
02.PM5 6.4.2017, 09:227