Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.01.2005, Síða 13

Bæjarins besta - 12.01.2005, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 13 10 ár liðin frá snjóflóðinu mikla í Súðavík Tomasz er mikill áhugamaður um körfuknattleik. Það kom fram í viðtölum á sínum tíma. Stuttu eftir slysið fékk hann áritaðan bolta frá uppáhaldsliðinu sínu í NBA-boltanum, Orlando Magic. Hér afhendir Björn Helgason honum boltann sem leikmenn í úrslitaleik bikarkeppninnar hér á landi höfðu áritað. Elma Dögg Frostadóttir fannst grafin í snjónum eftir 15 klukkustundirAndlegur bati tekur lengri tíma Elma Dögg Frostadóttir fannst eftir að hafa verið grafin undir snjónum í 15 klukku- tíma. Hún var fjórtán ára göm- ul þegar flóðið féll og var vak- andi þegar það gerðist. „Ég heyrði svakalega mikil læti þarna um nóttina. Rúðan í herberginu sprakk, ég leit upp og fann að allt þrengdist að mér, allt varð svart og ég missti meðvitund. Fataskápurinn datt ofan á mig og það hefur líklega bjargað lífi mínu. Ég vaknaði við það að heyra í björgunarmönnunum þegar þeir voru að leita að mér í herberginu við hliðina. Ég kallaði á móti en þeir heyrðu ekkert í mér. Eftir á frétti ég að mamma og pabbi hefðu fundist um svipað leyti, og þá voru um það bil fimm tímar liðnir frá því að flóðið féll. Ég var með meðvitund allar þessar tíu klukkustundir eftir það, en var við það að detta út þegar mér var bjargað. Ég var orðin mjög vönkuð og rugluð og var að kalla á mömmu þegar þrír björgunarmannanna heyr- ðu í mér, en það varð til þess að þeir fundu mig.“ Elma var lengi að ná sér líkamlega eftir slysið og hefur ekki enn náð sér að fullu. „Ég fór fyrst á sjúkrahúsið á Ísafirði, en var mjög fljótlega send suður. Þar var ég sett í nýrnavél og lappirnar á mér skornar upp. Nýrun voru alveg hætt að starfa og menn voru ekki alveg öruggir á því að það væri hægt að bjarga ann- arri löppinni. Eftir tíu ár hef ég að mestu leyti jafnað mig líkamlega, en samt finn ég ennþá til í annarri löppinni.“ Elma segir að andlegur bati Elma Dögg var lögð inn á Fjórðungssjúkrahúsið á Ísafirði eftir að henni var bjargað. Þar voru þá fyrir foreldrar hennar, Björg Hansdóttir og Frosti Gunnarsson, sem einnig björguðust úr snjóflóðinu. taki lengri tíma og segist ekki getað neitað því að henni hafi liðið illa í fannferginu sem var á norðanverðum Vestfjörðum í síðustu viku. „Við búum náttúrlega á öruggu svæði í Súðavík núna, ég veit það. En samt er ónota- tilfinningin mikil. Það versta var hversu mikið fennti fyrir herbergisgluggann hjá mér. Við það fékk ég svakalega mikla innilokunartilfinningu.“ – halfdan@bb.is Elma Dögg Frostadóttir. Ljósmynd: Ómar Már Jónsson. Sýslumaðurinn á Ísafirði Skattstofa Vestfjarðaumdæmis Lengri opnunartími Sýslumaðurinn á Ísafirði og skattstofa Vest- fjarðaumdæmis hafa ákveðið að lengja opn- unartíma sinn frá og með 13. janúar 2005. Nýr opnunartími er frá kl. 09:30 - 15:30. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, sýslumaður á Ísafirði. Guðrún Björg Bragadóttir, skattstjóri Vestfjarðaumdæmis. Kvensjúkdómalæknir Jón Ívar Einarsson, kvensjúkdómalæknir verður með móttöku á Ísafirði dagana 24.- 28. janúar nk. Tímapantanir eru í síma 450 4500, á milli kl. 08:00 og 16:00 alla virka daga. Sigríður Sæmundsdóttir Vallargötu 7, Þingeyri Ástkær móðir okkar, amma, tengdamóðir og langamma sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði 1. janúar 2005, verður jarðsungin frá Þingeyrarkirkju, laugardaginn 15. janúar kl. 14:00. F.h. aðstandenda, Einar Karlsson, Birgir Karlsson, Karl Þ. Karlsson 02.PM5 6.4.2017, 09:2213

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.