Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.01.2005, Side 14

Bæjarins besta - 12.01.2005, Side 14
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 200514 Mexíkósk kjúklingasúpa Sælkeri vikunnar · Harpa Böðvarsdóttir í Reykjavík Sælkeri vikunnar býður upp á mexíkóska kjúklinga- súpu. Harpa segist hafa fengið uppskriftina hjá vinnufélaga sínum og boðið upp á hana í saumaklúbbn- um þar sem stelpurnar eru allar meira eða minna tengd- ar Ísafirði. Þar sló súpan rækilega í gegn og svo er frábær frönsk súkkulaðikaka í eftirrétt sem hreinlega bráð- nar í munninum. Mexíkósk kjúklingasúpa: 3-5 laukar 2-3 hvítlaukar 1/2 chilipipar Sellerí eftir smekk Látið malla í olíu í smá- stund 1 flaska Granini tómatsafi 1 ½ l vatn Nauta og/eða grænmetis kraftur eftir smekk 1 teskeið kóríander krydd 1-2 teskeiðar Worchester sósa 1 tsk chilikrydd 2 dósir tómatar í dós (má vera með hvítlauk eða eftir smekk) Látið sjóða í 20 mínútur og bætið síðan 4-6 kjúklinga- bringum eða 1 kjúkling út í. Bæta má við blómkáli, brokk- olí og fleira grænmeti, allt eftir smekk hvers og eins. Berið fram með sýrðum rjóma, guacamole sósu og/eða cheese sósu, rifnum osti og Doritos snakki. Frönsk súkkulaðikaka með kremi: 200 g smjör 200 g suðusúkkulaði Hrært saman 4 egg 2 dl sykur 1 dl hveiti Hrærið öllu saman sett í mót og bakið við 170 gráður í um það bil 30 mín. Athugið kakan á að vera blaut í miðjunni. Kremið: 150 g suðusúkkulaði 70 g smjör 2 matskeiðar síróp Bræðið saman og hellið yfir kalda kökuna. Látið storkna. Berið fram með þeyttum rjóma eða vanilluís. Ég skora á Sigurbjörgu Guðmundsdóttur á Ísafirði að koma með gómsæta upp- skrift. Dagný S. Sigurjónsdóttir Magnús M. Þorvaldsson Elva Jóhannsdóttir Barði Önundarson Magnús Ö. Jóhannsson Helga G. Haraldsdóttir Heiðrún B. Jóhannsdóttir Ari K. Jóhannsson Harpa Henrysdóttir og barnabörn Þeir sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið Sigurvon Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi andaðist þann 7. janúar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði. Útförin fer fram frá Ísafjarðarkirkju, laugardaginn 15. janúar kl. 14:00. Halldóra Jóhannsdóttir Jóhann Magnússon bifreiðaskoðunarmaður Móholti 12, Ísafirði Hallgrímur Hjálmarsson býr ásamt foreldrum sínum að Hrauni í Hnífsdal Engin ákvörðun verið tekin um áframhaldandi búsetu Hallgrímur Hjálmarsson sem býr ásamt foreldrum sín- um í Hrauni í Hnífsdal segir að nokkrar skemmdir hafi orð- ið á íbúðarhúsinu í snjóflóðinu í síðustu viku. Hann segir einn- ig að skemmdir hafi orðið á vinnuvélum sem stóðu við bæ- inn og bíll sem stóð við íbúð- arhúsið sé trúlega mikið skemmdur ef ekki ónýtur. Gamli bærinn í Hrauni sé hins vegar gjörónýtur. Hann segir framhald búsetu í Hrauni ekki hafa verið ákveð- ið. Skemmdir af völdum snjó- flóðsins eru nú að koma í ljós. „Það urðu skemmdir á gólf- efnum í húsinu og einnig á innréttingum auk þess sem rúður brotnuðu. Hvort að veggir hússins hafa skekkst er ekki fullkannað sem stendur. Hins vegar virðist sem veggur í bílskúr við húsið hafi brotn- að“, segir Hallgrímur. Einnig urðu talsverðar skemmdir á vinnuvélum sem stóðu á hlaðinu og bíll sem stóð við bílskúrinn er mikið skemmdur ef ekki ónýtur. Þá segir Hallgrímur ljóst að gamli bærinn í Hrauni sé gjörónýtur en þar hefur ekki verið búið undanfarin misseri. Útihúsin á jörðinni virðast hafa sloppið með öllu við flóðið en þar inni er tæplega 100 fjár. Um frekari búsetu í Hrauni vill Hallgrímur sem minnst segja. „Um það hefur að sjálfsögðu engin ákvörðun verið tekin enda hefur enginn tími verið til þess að meta þau mál. Hvað stjórnvöld vilja gera vitum við ekkert enda enginn haft samband úr þeirri áttinni“, segir Hallgrímur. – hj@bb.is Hallgrímur Hjálmarsson. Feðgarnir Hjálmar og Hallgrímur við rústir gamla bæjarins. Flutninga- bíll valt Flutningabíll fór út af veg- inum í Hrútafirði er hann var á leið til Ísafjarðar með matvörur á miðvikudag í síðustu viku. „Ég var að mæta öðrum bíl á ein- breiðu slitlagi og fór út af veginum. Það er í lagi með mig fyrir utan kannski sál- artetrið og ég held að skemmdirnar á bílnum séu óverulegar“, segir Bjarni Gunnarsson ökumaður bílsins er bb.is náði tali á honum stuttu eftir óhapp- ið. „Það þýðir ekkert ann- að en að ná í annan bíl, lesta á milli og koma vör- unum til skila.“ KFÍ tapaði stórt Meistaraflokkur Körfu- knattleiksfélag Ísafjarðar þurfti að láta í minni pok- ann fyrir Ungmennafélagi Njarðvíkur á fimmtudags- kvöld í síðustu viku. Loka- staðan var 55-108. Leikur- inn fór fram í íþróttahús- inu á Torfnesi og fannst heimamönnum dómgæsla vera með lakara móti og fullmikil harka leyfð í leiknum „Njarðvíkingar spiluðu eins fast og þeir gátu og komust upp með það langtímum saman, en þeir fá kredit fyrir það að hafa svona góð tök á leikn- um, dómararnir voru alla vega ekki á sama leik og við sem sátum í stúkunni og leyfðu rosalega hörku“, segir í frétt á kfi.is. Josh Helm sem hefur verið stigakóngur leik eftir leik meiddist á hné og gat lítið beitt sér eftir það. Næsti leikur KFÍ er gegn Fjölni og fer fram í Grafarvogi á morgun, fimmtudag. 02.PM5 6.4.2017, 09:2214

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.