Bæjarins besta - 12.01.2005, Side 15
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 15
30%
Dagbjört Hjaltadóttir í Súðavík skrifar
Kærar þakkir Ísfirðingar
Nú eru bráðum liðin tíu ár
frá snjóflóðunum í Súðavík.
Ofankoman, ófærðin og til-
kynningar um hættuástand síð-
ustu daga minna óþægilega á
tímann í kringum 16. janúar
1995. Við Súðvíkingar sem nú
búum öll á öruggu svæði hugs-
um með samúð til þeirra sem
verða að yfirgefa heimili sín
við þvílíkar aðstæður. Fyrir tíu
árum var enginn fyrirvari á
flutningnum frá þorpinu. Við
sem ekki misstum húsin okkar,
eða lentum í flóðinu sjálfu, rif-
um okkur í fötin og fórum niður
í frystihús til að styrkja ætt-
ingja og vini og til að reyna að
verða að liði með einhverju
móti. Við urðum að yfirgefa
þorpið í þeim fötum sem sem
við stóðum, óvíst hvenær eða
hvort við áttum afturkvæmt.
Það var samt okkar minnsta
áhyggjuefni því afdrif náinna
skyldmenna, nágranna, vina
eða samstarfsfélaga vóg þyng-
ra.
Það sem ég vil nefna hérna
er viðmót Ísfirðinga þessa ör-
lagaríku daga og vikur sem
Súðavíkingar dvöldu í bænum.
Það getur ekki hafa verið auð-
velt að taka á móti svo mörgum
sem höfðu upplifað svo skelfi-
lega hluti. En allt frá því að
þessi brotni hópur safnaðist
saman á Fjórðungssjúkrahús-
inu á Ísafirði eftir skelfilega
sjóferð frá Súðavík allt þar til
nokkrum vikum seinna að
við, oftar en ekki við kertaljós,
í tíðu rafmagnsleysi þessara
stormdaga eftir flóðið. Hjart-
ans þakkir Inga Lára og Elvar
fyrir ykkar stóra hús og ykkar
stóra hjarta.
Ísfirðingar kunnu að gefa
það sem Íslendingar hafa veitt
hverjir öðrum í aldir en það er
áfallahjálp vináttunnar. Hlýtt
handtak, klapp á bakið eða
snöggt faðmlag gerði meira
gagn en þúsund orð. Þessu
fólki langar mig að senda
þakkir. Líka Stebba Dan og
þeim sem söfnuðu íþróttaföt-
um með honum svo börnin frá
Súðavík gætu hist í stað þess
að húka föl og fá dreifð um
allan bæ. Einnig starfsfólki
sjúkrahússins sem stóð í eld-
línunni ásamt björgunarsveit-
arfólkinu sem kom á vettvang.
Prestunum sem aldrei virtust
hvílast sendi ég líka þakkir og
fólkinu sem opnaði verslanir
sínar án þess að nokkuð væri
farið að tala um bætur fyrir
vörurnar sem það lét af hendi
og svona mætti lengi telja.
Ég tel það lán okkar Súðvík-
inga að við áttum góða að þeg-
ar mest á reyndi og að við
gátum verið áfram á Vestfjörð-
um á meðan mál voru að skýr-
ast. Ég tel það reyndar ástæðu
þess að svo fáir fluttu í burtu
og raunin varð. Ísfirðingar,
hjartans þakkir fyrir okkur.
Dagbjört Hjaltadóttir,
Súðavík.
óhætt var að snúa heim (þeir
sem það gátu) var viðmót ná-
granna okkar Ísfirðingu þeim
og Íslendingum til sóma.
Ísfirðingar opnuðu heimili
sín fyrir fólki sem þeir þekktu
kannski aðeins af afspurn.
Hótel, gistiheimili og verbúðir
fylltust einnig af þessu flótta-
fólki sem hafði ekki ekki einu
sinni föt til skiptana til að
byrja með. Á sjúkrahúsinu var
ný álma opnuð þó ekki væri
hún tilbúin og starfsfólk þar
lagði dag við nótt til að gera
þeim lífið bærilegra sem mest
höfðu misst. Mín fjölskylda
var tekin inn ásamt tveimur
öðrum fjölskyldum af kunn-
ingjafólki systur minnar og
við hljótum að hafa verið öm-
urlegir gestir. Dofinn og
beygð eftir atburðina sátum
Dagbjört Hjaltadóttir.
Snjómokstur hefur geng-
ið vel í Bolungarvík að
undanförnu og eru allar
götur orðnar færar. „Þetta
hefur gengið þokkalega
miðað við veður. Við vor-
um að vinna alla helgina og
erum núna að breikka hjá
okkur“, segir Finnbjörn
Birgisson, bæjarverkstjóri í
Bolungarvík. „Við höfum
þurft að keyra öllum snjón-
um í burtu á bílum. Það á
örugglega eftir að taka hátt í
viku í viðbót að hreinsa
bæinn almennilega, það er
að segja ef við fáum frið.“
Aðspurður segir Finnbjörn
kyrrstæða bíla alltaf valda
snjómokstursmönnum erf-
iðleikum. Eins og sjá má
að meðfylgjandi mynd sem
Sveinbjörn Kristjánsson
tók getur oft verið vara-
samt að moka í kringum
bíla sem lagt er á götum
bæjarins. – halfdan@bb.is
Tekur örugglega viku í
viðbót að hreinsa bæinn
Erfitt getur verið að moka í kringum bíla. Mynd: Sveinbjörn Kristjánsson.
afsláttur af jólavörum,
baðsápum og gjafavörum
til 21. janúar
02.PM5 6.4.2017, 09:2215