Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.01.2005, Page 16

Bæjarins besta - 12.01.2005, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 200516 STAKKUR SKRIFAR Snjóflóð og eignatjón Stakkur hefur ritað vikulega pistla í Bæjarins besta í mörg ár. Skoðanir hans á mönnum og málefn- um hafa oft verið umdeildar og vakið umræður. Þær þurfa alls ekki að fara saman við skoðanir útgefenda blaðsins. Þrátt fyrir það bera ábyrgðarmenn blaðsins ábyrgð á skrifum Stakks á meðan hann notar dulnefni sitt. Smáauglýsingar Til leigu er hús á Ísafirði. Uppl. í síma 477 1800 (Fjölnir). Minningarkort Krabbameinsfé- lagsins Sigurvonar fást hjá Sól- rúnu Jónsdóttur á Hólmavík. Uppl. í síma 864 2182. Til sölu eru tvenn Rossignol skíði. Önnur eru 170 cm og hin 150 cm á lengd. Skíðin eru sem ný. Skór og pokar fylgja. Uppl. í síma 456 8172 og 893 1058. Til sölu er Subaru Impreza, 4x4, árg. 1999, ekinn 94 þús. km. Góður í snjóinn. Uppl. í símum 456 3035 og 862 3035. Til sölu er vel með farið píanó. Upplýsingar í síma 456 3906 og 848 0918. Til sölu er 2ja herb. íbúð að Urðarvegi 78 með sérinngangi. Upplýsingar í símum 456 3928 og 456 4323. Til sölu eru Goritex mótorhjóla- og vélsleðagallar. Nánast ónot- aðir. Uppl. í síma 820 7245. Til sölu eru Burton Freestyle brettaskór nr. 13. Aðeins not- aðir í eina klst. Uppl. í símum 456 3486 og 846 7473. Til sölu er vel með farinn Simo kerruvagn með burðarrúmi. Einnig barnabílstóll og skipti- borð með baði. Upplýsingar í síma 456 3517. Til sölu er stuttu KIA jeppi. Góð- ur bíll í ófærðina. Upplýsingar gefur Pétur í síma 894 3389. Til sölu er Renault Laguna st., 1600 cc, árg. 98, ekinn 94 þús. km. Stórgóður bíll, mjög rúm- góður en afar sparneytinn. Ásett verð kr. 650 þús. Uppl. í síma 456 3517 og 860 7443. Síðustu viku hafa náttúruöflin minnt hastarlega á sig. Brátt eru liðin 10 ár frá því snjóflóðið mikla féll á þorpið í Súðavík með afleiðingum, er ekki munu gleymast. Flóðbylgjan mikla í Indlandshafi á eftir að fylgja mannkyninu lengi. Vísindamenn og ríkisstjórnir eiga eftir að velta vöngum yfir því hvernig bregaðst skuli við skelfi- legum afleiðingum náttúrunnar. Jarðskjálftar eru daglegt brauð. Oft fylgir þeim eyðilegging og dauði margra. Um síðustu helgi fórust margir í Danmörku og Sví- þjóð í fárviðri sem þar geisaði. En ekkert fær stuggað við stórmenninu í Vestfirðing- um. Bolvíkingar neita að fara úr húsum og lögreglan segir að við því sé ekkert að gera, en svo var það nú leiðrétt sem betur fer. Ósjálfrátt er spurt eftir snjóflóðin í síðustu viku hvort sumt fólk læri ekki af því sem fyrir augu þeirra ber. Snjór var mun minni nú en fyrir áratug, er leiðir hugann að þeirri staðreynd að ekkert er víst varðandi snjóflóð. Veður og aðstæður varðandi snjóalög ráða þar miklu. Allt þarf að skoða og skilgreina og læra að draga lærdóm af því sem gerist. Rannsóknir eru mjög mikilvægar og geta fært okkur þekkingu sem kennir okkur að verjast snjóflóðum, bjarga mannslífum og forða eignatjóni. Snjóflóðin í Hnífsdal vekja upp spurningar um skipulagsmál og stjórn þeirra í Ísa- fjarðarkaupstað fyrir þremur áratugum. Á áratug er byggð horfin að mestu í vest- anverðum dalnum. En mikilvægi rýminga sýndi sig glöggt. Sláandi var að lesa ummæli í Morgunblaðinu höfð eftir ábúanda á Hrauni í Hnífs- dal þess efnis að hann hefði sloppið, væntanlega við afleiðingar snjóflóðsins, sem algerlega eyddi gamla bænum að Hraun og olli skemmdum á nýrra húsinu. Eru menn með þessum hætti að storka örlögunum eða bara slá um sig með stórkarlalegum yfirlýsingum? Hvort heldur sem er verður flestum heilvita mönnum hugsað til þeirra skeliflegu fórna sem Vestfirðingar færðu á árunum 1994 og 1995. Þá glöt- uðust alls 35 mannslíf vegna snjóflóða á Vestfjörðum. Það er óvirðing við þá sem dóu að sýna nú drýgindaleg mannalæti. Íbúar við Dísarland og Traðarland eiga alls ekki að nota heimskulega þrjósku til að fá verð, sem þeir sætta sig við, fyrir eignir sínar. Til þess að fá fram niðurstöðu varðandi verð fasteigna eru til aðrar leiðir, sem flestir íbúar þessa lands verða að sætta sig við að nota, enda lögbundið að láta dómstóla skera úr um ágreining. Þá er mikill munur að lesa það sem haft er eftir Eiríki Finni Greipssyni, sem sjálfur lenti í snjóflóðinu á Flateyri og missti húsið, en hélt lífinu og fjölskyldunni, í Morgunblaðinu um varnir gegn snjóflóðum. Þar kemur fram yfirvegun og skír sýn á afleiðingarnar og hve mikilvægt það er að tryggja öryggi fólks með öllum ráðum. Það er ógaman að standa frammi fyrir því að hús manns og heimili er ekki lengur öruggt eins og er með byggðina efst í Bolungarvík. Vissulega er öllum vandi á höndum, en þá reynir líka á að beita yfirvegun og skynsemi. Bæjarstjórinn í Ísafjarðarbæ segir hreint út að ekki verði búið í blokkinni á Árvöllum til fram- tíðar. Auðvitað er þetta skelfileg niðurstaða, að horfa á eignir tapast með einu eða öðrum hætti vegna hættu á snjóflóðum, en við verðum að gera allt til að tryggja ör- yggi fólks og forðast að það láti lífið í náttúruhamförum, þegar tiltölulega einfalt er að bjarga mannslífum. Bræðrabátarnir eða systur- skipin Guðmundur Einarsson ÍS og Hrólfur Einarsson ÍS frá Bolungarvík náðu þeim ótrú- lega árangri að vera samtals með 904 tonna afla síðustu fjóra mánuði nýliðins árs. Var Guðmundur Einarsson ÍS með tæp 464 tonn að verðmæti um 50 milljóna króna og afli Hról- fs Einarssonar ÍS var litlu minni eða rúmlega 440 tonn á þessu tímabili. „Ég held ég geti fullyrt að árangur áhafna þessara línu- báta er hreint út sagt einstakur. Ekki spillir heldur fyrirað þess- ir bátar eru alfarið íslensk hönnun og smíði og þeir og fleiri nýir, íslenskir hraðfiski- bátar sýna og sanna að Íslend- ingar standa öðrum framar í slíkri bátasmíði“, segir Guð- mundur Halldórsson, fyrrver- andi formaður smábátafélags- ins Eldingar á norðanverðum Vestfjörðum, í samtali við skip.is en Guðmundur sló á þráðinn til þess að greina frá útkomu bolvísku bræðrabát- anna. Bátarnir eru báðir að gerðinni Cleopatra og eru þeir heitnir eftir bræðrunum Guð- mundi og Hrólfi Einarssonum sem báðir voru þekktir sjó- menn í Bolungarvík. Að sögn Guðmundar fór Guðmundur Einarsson ÍS í 22 línuróðra að jafnaði á mánuði síðustu fjóra mánuði ársins en meðalmánaðaraflinn var 116 tonn. Olíukostnaður á þessu tímabili nam 1,2 milljónum króna eða um 2,35% af afla- verðmætinu. Sjósóknin var svipuð hjá Hrólfi Einarssyni ÍS en meðalafli bátsins var 110 tonn. „Því hefur verið haldið fram að smábátarnir geti ekki haldið upp atvinnu í byggðarlögum landsins í svartasta skamm- deginu. Því vísa ég á bug. Það hefur a.m.k. ekki verið vanda- mál hér í Bolungarvík“, segir Guðmundur en að hans sögn var Guðmundur Einarsson með alls 1178 tonna afla á síðasta ári og 1020 tonna afla á síðasta fiskveiðiári. Ef miðað er við almanaksárið þá fór bát- urinn í 255 róðra á árinu eða 21,25 róður að jafnaði á mán- uði. Meðalafli í róðri var 4,6 t. „Miðað við að það séu að- eins tveir í áhöfn þessara báta og hve aflinn er mikill og olíu- kostnaður lítill þá koma önnur íslensk fiskiskip ekki betur út. Það mega menn hafa í huga nú þegar mengunarkvóti er í þann veginn að dynja á okkur og krafan um vistvænar veiðar fer vaxandi“, sagði Guðmund- ur Halldórsson. Ótrúlegur árangur bræðrabátanna – Sól og fegurð – Sól og fegurð óskar viðskiptavinum sínum gleðilegs nýs árs með þökk fyrir viðskiptin á liðnum árum. Sól og fegurð opnar að nýju föstudag- inn 14. janúar nk. Opið verður frá mánu- dögum til laugardaga frá kl. 11:00-19:00. Hlakka til að sjá ykkur að nýju. Rekstur fyrirtækisins sem er til húsa að Túngötu 3, Ísafirði, er til sölu. Stofan hefur verið rómuð fyrir hlýleika og gott viðmót. Þar er m.a. boðið upp á ljósabekk, strata- meðferð, leirvafninga, sogæðanudd og al- hliða nudd. Um er að ræða tilvalið tækifæri fyrir dug- mikið fólk sem vill starfa við sjálfstæðan at- vinnurekstur. Starfsemi sem bíður upp á marga möguleika. Nánari upplýsingar gefur Lögfræðistofa Tryggva Guðmundssonar ehf., í síma 456 3244. Sigga Maja. Þakkir Alúðar þakkir sendi ég öllum þeim, sem með gjöfum, kveðjum og heimsóknum gerðu 85 ára af- mæli mitt 28. desember sl. að eftirminnilegum há- tíðisdegi. Megi nýbyrjað ár verða ykkur til gæfu og gengis. Ísafirði 10. janúar 2005, Sigurður Jónsson. Sveitarstjórn Súðavíkurhrepps Setur reglur um út- hlutun byggðakvóta Sveitarstjórn Súðavíkur- hrepps hefur samþykkt sam- hljóða reglur sem lagt er til að gildi við úthlutun 150 þorsk- ígildistonna byggðakvóta er kom í hlut sveitarfélagsins á dögunum. Í reglunum segir að úthlutað skuli til aflamarks- skipa og krókaaflamarksbáta. Þeim sé skylt að leggja til afla- heimildir í bolfiski til jafns við úthlutaðan byggðakvóta. Til þess að eiga rétt á byggðakvóta skulu bátar og skip hafa verið skráð og hafa átt heimahöfn í Súðavík þann 1. september 2004. Einnig skulu útgerðirnar hafa átt lög- heimili í Súðavíkurhreppi á sama tíma. Þá er einnig gert að skilyrði að afla sem nemi úthlutuðum byggðakvóta sé landað í Súðavík og hámarks- úthlutun sé 80 tonn. Þá segir einnig að byggðakvótinn og mótframlag útgerðar skuli unnið í Súðavík og verða um- sækjendur að gera grein fyrir því í umsókn hvernig staðið verður að vinnslunni. Þá er einnig í reglum Súða- víkurhrepps sagt að tekið skuli tillit til úthlutaðra aflaheimilda og bóta vegna rækju fyrir fisk- veiðiárið 2004/2005. Fylgi út- gerð ekki þeim skilyrðum sem sett eru varðandi vinnslu afla í Súðavík fyrirgerir hún rétti sínum til hugsanlegrar úthlut- unar á næsta ári, að óbreyttum reglum. – hj@bb.is Í september 2004 komu á land 2.352 tonn af sjávarfangi á Vestfjörðum að verðmæti tæpar 219 milljónir króna. Í sama mánuði árið áður var landað 3.536 tonnum að verð- mæti rúmar 319 milljónir kr. Samdráttur í afla á milli ára er því þriðjungur og í verð- mætum um 31.5%. Fyrstu níu mánuði síðasta árs var landað á Vestfjörðum 34.223 tonnum að verðmæti 3.193 milljónir króna. Árið áður var landað á sama tíma 42.400 tonnum að verðmæti 3.599 krónur. Sam- dráttur í magni er því um fimmtungur en í verðmætum rúm 11 %. Þriðjungs samdráttur 02.PM5 6.4.2017, 09:2216

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.