Bæjarins besta - 12.01.2005, Qupperneq 18
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 200518
mannlífið
Ábendingar um efni sendist til Thelmu
Hjaltadóttur, thelma@bb.is sími 849 8699
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Í dag er miðvikudagurinn 12. janúar,
12. dagur ársins 2005
Þennan dag árið1830 voru Friðrik Sigurðsson og
Agnes Magnúsdóttir, tekin af lífi í Vatnsdalshólum fyrir
að myrða Natan Ketilsson og Pétur Jónsson. Þetta var
síðasta aftaka á Íslandi. Líflátshenging var numin úr
lögum 1. júlí árið 1928.
Þennan dag árið 1928 lést Einar Benediktsson skáld,
75 ára að aldri. Hann var jarðsettur í þjóðargrafreitn-
um á Þingvöllum 27. janúar, fyrstur allra. Einar var
„einhver stórbrotnasti ljóðvíkingur vor að fornu og
nýju“, sagði Jóhannes úr Kötlum.
Þennan dag árið 1933 var samningur um aðild Ís-
lands að Evrópska efnahagssvæðinu, EES, samþykkt-
ur á Alþingi, eftir lengstu umræður í þingsögunni.
Heimild: Dagar Íslands. Jónas Ragnarsson tók saman.
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Hvað er að frétta? · Örn Elías Guðmundsson (Mugison), tónlistarmaður
Á þessum degi fyrir 40 árum
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
Helgarveðrið
Horfur á fimmtudag:
Vaxandi suðaustanátt og fer að snjóa sunnan- og
vestanlands. Minnkandi frost.
Horfur á föstudag:
Hvöss suðaustanátt og slydda eða rigning, einkum
sunnanlands. Hiti 0-5 stig.
Horfur á laugardag:
Hæg vestlæg átt og stöku él, en rigning suðaustan-
lands. Hiti breytist lítið.
Horfur á sunnudag:
Sunnanátt og rigning en slydda vestanlands.
Spurning vikunnar
Telur þú að breyting verði á þínum
högum á nýju ári?
Alls svöruðu 529. – Já, til hins betra sögðu 342 eða 65% – Já,
til hins verra sögðu 57 eða 11% – Nei sögðu 130 eða 24%
Netspurningin er birt vikulega á bb.is og þar geta lesendur látið
skoðun sína í ljós. Niðurstöðurnar eru síðan birtar hér.
○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○
„Í gærkvöldi og í dag voru
Rúna og ég í foreldraþjálf-
un. Við vorum að læra um
öll líffærin inni í konunni, úr
hverju barnið er og þar fram
eftir götunum. Svo vorum
við að læra um það hvað
getur gerst við fæðingu,
hvernig á að haga sér og
svoleiðis. Eftir því sem mér
skilst þá á ég bara að vera
auðmjúkur þjónn hennar
meðan þetta stendur yfir,
segja helst ekki neitt og
vera bara hlýðinn.
Þá er systir mín væntan-
leg í heimsókn. Hún frestaði
ferðinni vestur um einn dag
til að kíkja á bróður sinn.
Hún kemur hingað í súpu í
kvöld og fer síðan heim í
fyrramálið.
Að öðru leyti er lítið í
gangi. Ég er bara heima að
vinna alla daga frá klukkan
átta til fimm.“
Á bara að vera auðmjúkur þjónn Rúnu
Strengdir þú
áramótaheit?
Í byrjun hvers nýs árs er fólki eðlilegt að horfa fram á
veg og velta vöngum yfir því hvað framtíðin muni bera í
skauti sér. Margir strengja þá heit um bót og betrun á
þeim sviðum sem þeim finnst hafa farið forgörðum á liðnu
ári. En hvernig heit eru þau sem flestir strengja og stendur
fólk þá nokkurn tíma við þau. BB spurði nokkra Vest-
firðinga um áramótaheit.
Ásthildur Cesil Þórðar-
dóttir, garðyrkjustjóri
Ísafjarðarbæjar:
Ég strengi ekki áramótaheit
heldur strengi heit af og til
yfir allt árið og reyni að standa
við þau. Ég geri það bara þegar
ég er í stuði fyrir svoleiðis.
Þegar ég var ung að strengdi
ég áramótaheit og voru þau þá
í þeim dúr að verða betri mann-
eskja. Seinna komst ég að því
að það tekur allt árið að betr-
umbæta sig, og jafnvel alla
ævi og læt ég nú hverjum degi
nægja sína þjáningu.
Birna Lárusdóttir,
forseti bæjarstjórnar
Ísafjarðarbæjar:
Áramótaheitið mitt er að
koma mér í form og halda mig
frá freistingum sem blasa við
á hverju strái. Ég strengi ára-
mótaheit á hverju ári og yfir-
leitt er það sama heitið og í ár
en ég hef nær alltaf svikið það.
Ég ætla þó að standa við það í
þetta sinn. Einnig set ég mér
það markmið að vera góð við
börnin mín og betri manneskja
á þessu ári en því síðasta. Það
er undirliggjandi tónninn í ára-
mótaheitum.
Benedikt Sigurðsson,
fyrrverandi sundþjálfari:
Ég ætla ekki að strengja
áramótaheit núna því ef ég geri
það er ég hræddur um að ég
nái ekki markmiði mínu. Ég
ætla að ná af mér 10 kílóum
og held að mér takist áætlunar-
verkið ef það er ekki áramóta-
heit. Ég hef strengt heit á
hverju nýju ári um að verða
betri maður og hef staðið við
það, en heilsuátökin fara gjarn-
an í súginn.
Margrét Magnúsdóttir,
fegurðardrottning
Vestfjarða 2004:
Ég hef aldrei strengt ára-
mótaheit en ef ég myndi gera
það væri það helst að vera
dugleg í skólanum og öllu því
sem ég er að gera. Ég hef ekki
mikla trú á áramótaheitum en
tel að fólk strengi þau til þess
að láta sér líða betur.
Jón Fanndal Þórðarson,
verslunarmaður og for-
maður eldri borgara:
Ég strengdi ekki áramóta-
heit í ár og hef aldrei gert það.
Ég tek bara því sem að höndum
ber hverju sinni. Ég myndi
ekki þora að lofa einhverju
sem ég gæti svo ekki staðið
við. Ég hef oft velt því fyrir
mér af hverju fólk strengir ára-
mótaheit og sumir eru stað-
fastir og standa við sitt en aðrir
ekki. En það er ekki fyrir mig.
Elfar Logi Hannesson,
leikari og kaffihúsavert:
Ég strengdi þess heit núna
að vera meira með mínum
nánustu. Ég hef meðal annars
ekki verið nógu duglegur að
heimsækja ömmu mína á
Þingeyri og ætla að bæta úr
því. Ég strengi oftast áramóta-
heit og hef tvisvar heitið þess
að hætta að reykja en ákvað
að gera það ekki í ár þar sem
mikið er að gera hjá mér. Svo
ætla ég líka að njóta lífsins
enda er ég bjartsýnn og tel að
árið verði skemmtilegt og við-
burðarríkt hjá Vestfirðingum.
Ásthildur Þórðardóttir. Birna Lárusdóttir
Benedikt Sigurðsson. Elvar Logi Hannesson.
Margrét Magnúsdóttir.Jón Fanndal Þórðarson.
Fulltrúar sjómanna og útvegsmanna náðu samkomulagi
við formann yfirnefndar um fiskverð á árinu 1965 og var
ákveðið að verðið skyldi hækka um 5 ½ %, frá því sem
það var sl. ár. Hins vegar greiddu fulltrúar fiskkaupenda
atkvæði gegn þessu samkomulagi.
Ríkisstjórnin hefur ákveðið að beita sér fyrir því, að rík-
issjóður greiði 25 aura á hvert kíló af línu- og handfærafiski
á árinu 1965. Stuðlar það að því að auka þessar veiðar
og bæta þar með fiskvinnsluna því að línu- og handfæra-
fiskurinn er langbesta varan. Má því segja að hér sé um
nokkurs konar verðlaun að ræða til þeirra sem koma
með besta fiskinn að landi.
Fiskverðið
og sjómannadeilan
Svipmyndin
Árni Steinn Sveinsson vinn-
ur hjá Flytjanda á Ísafirði.
Ljósmyndari BB rakst á Árna
Stein þar sem hann var að
koma með birgðir á lyftara til
ÁTVR á Ísafirði á dögunum.
„Ég vinn við að keyra þetta
tæki daginn út og inn en það
er leiðinlegt í svona miklum
snjó. Í svona blautum snjó
getur maður fest sig þó auð-
vitað eigi það ekki að gerast,
það er bara klaufaskapur. En
hefur þó komið fyrir“, segir
Árni Steinn.
Áfylling
á ÁTVR
02.PM5 6.4.2017, 09:2218