Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.01.2005, Síða 19

Bæjarins besta - 12.01.2005, Síða 19
MIÐVIKUDAGUR 12. JANÚAR 2005 19 ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Borgin mín · Anna Sigríður Ólafsdóttir, nemi og verkefnastjóri á Ísafirði Vestfirskar þjóðsögur · Gísli Hjartarson ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ ○ Eitt sinn sem oftar var séra Baldur Vilhelmsson, fyrrum pró- fastur í Vatnsfirði í Djúpi, fenginn til messugerðar í bænhúsinu í Furufirði á Hornströndum ásamt fleiri prestum. Það kom í hlut prófastsins að prédika og var prédikun hans stutt og gagnorð eins og hann er kunnur fyrir. Síðan snaraði klerkur sér úr stólnum og gekk rakleiðis út. Árni Guðmundsson, ættaður úr Furufirði og kenndur við Ós í Bolungarvík, fór út litlu seinna til þess að svipast um eftir séra Baldri. Klerkur stóð þá undir vegg, púandi stóran vindil. Árni spurði hvers vegna presturinn gengi út í miðri guðsþjónustu til að reykja. Ekki stóð á svari hjá séra Baldri: Maður verður nú að þjóna djöflinum líka, góði. Djöflinum þjónað Ég hef komið til ótal borga um allan heim og erfitt er að velja uppáhald en San Francisco heillaði mig upp úr skónum. Hún er evrópsk- asta borgin í Ameríku. Borgin er ofboðslega falleg og ekki er langt að sækja guðdómlega náttúru, einungis þarf að fara yfir Golden Gate brúnna og þá San Franscisco er maður kominn í ævin- týraheim. Í borginni ríkir skemmtileg stemmning því svo margt mætist í henni, bæði straumar og stefnur og mismunandi fólk. Sportið í beinni SkjárEinn: Laugardagur 15. janúar: Kl. 12:30 – Enski boltinn: Liverpool – Man. Utd. Kl. 15:00 – Enski boltinn: Tottenham – Chelsea. Kl. 17:15 – Enski boltinn: Bolton – Arsenal. Sunnudagur 16. janúar: Kl. 14:00 – Enski boltinn: Middlesbrough – Everton. Kl. 16:05 – Enski boltinn: Fulham – WBA Canal+ Norge: Laugardagur 15. janúar: Kl. 12:30– Enski boltinn: Liverpool – Man. Utd. Kl. 15:00 – Enski boltinn: Tottenham – Chelsea. Kl. 19:30 – Ítalski boltinn: Reggina – Inter Milan. Sunnudagur 16. janúar: Kl. 16:05 – Enski boltinn: Fulham – WBA Kl. 19:30 – Ítalski boltinn: Cagliari – Juventus. Canal+ Sport: Laugardagur 15. janúar: Kl. 15:00 – Enski boltinn: Newcastle – Southampton Kl. 17.15 – Enski boltinn: Bolton – Arsenal. Sunnudagur 16. janúar: Kl. 14:00 – Enski boltinn: Middlesbrough – Everton. Canal+ Sverige: Sunnudagur 16. janúar: Kl. 14:00 – Ítalski boltinn: AC Milan – Udinese. Kanal 5 Danmark: Laugardagur 15. janúar: Kl. 12:30 – Enski boltinn: Liverpool – Man. Utd. Kl. 19:00 – Spænski boltinn: Getafe – Atlético Madrid Sunnudagur 16. janúar: Kl. 18:00 – Spænski boltinn: Barcelona – R. Sociedad. Kl. 20:00 – Spænski boltinn: Real Madrid – Zaragoza. Brennslan mín · Nein Shiran Þórisson, viðskipta- og markaðsráðgjafi Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða Kraftmikið og kemur blóðinu af stað 1. Smells like teen spirit – Nirvana. Þetta lag var á einum af fyrstu geisladiskunum sem ég átti. Kraftmikið lag sem kemur blóðinu alltaf af stað. 2. Creep – Radiohead. Fyrsta lagið sem ég heyrði með þessari frábæru hljóm- sveit. Lagið og hljómsveitin alltaf í uppáhaldi. 3. One – U2. Eitt af þeim lögum sem lætur manni líða vel og þar að auki er lagið frá uppáhalds hljómsveitinni. 4. Losing my religion – R.E.M. Grípandi lag sem er eitt af bestu lögum hljómsveitar- innar. Lag sem verður aldrei þreytt og alltaf gaman að hlusta á.. 5. Take five – Dave Brubeck. Var að kynnast jazztónlist þegar ég heyrði þetta lag. Lagið er allþekktur jazzslag- ari sem hefur verið færður í allskyns útgáfur. 6. Clocks – Coldplay. Eftir að hafa séð hljómsveit- ina á tónleikum eru mörg lög þeirra í uppáhaldi hjá mér, en þetta grípandi lag er þó sérstak- lega í uppáhaldi. 7. Under the bridge – Red hot chili peppers. Frábært lag sem minnir mig á gagnfræðaskólann og allt sem honum fylgdi. 8. Polyesterday – Gus Gus. Eitursvalt og grúví raftón- listarlag frá fjöllistahópnum Gus Gus. Vildi að þetta væri mitt „Theme song“. 9. Get Up (I Feel Like Being A) Sex Machine – James brown . Sígilt stuðlag frá funk goð- inu James brown, við áheyrn langar manni oftast til að dansa og dilla sér. 10. Murmur – Mugison: Nýja plata Mugison kom mér svakalega á óvart og þetta lag festist í manni frá fyrstu áheyrn og er eitt af bestu lögum sem ég hef heyrt í langan tíma. Starfið mitt · Þorlákur Ragnarsson, vaktstjóri hjá Flugfélagi Íslands á Ísafirði „Ég er vaktstjóri hjá Flug- félagi Íslands á Ísafirði. Þar hef ég unnið alveg frá því að innanlandsflug var gefið frjálst eða í rúm 7 ár. Í mínu daglega starfi sinni ég símsvörun, af- greiðslu véla sem í felst hleð- sla, afhleðsla, innritun, upp- gjör, útkeyrsla á pökkum og svo sérverkefni frá Flugfélag- inu sem eru unnin á Ísafirði. Það skemmtilegasta við starfið er fjölbreytnin og svo starfsfélagarnir, þar er jafnt skipt 50% Bolvíkingar á móti 50% Ísfirðingum. Ástæðan fyrir því að ég fór að vinna hjá FÍ á Ísafirði var einfald- lega sú að ég var að vinna í Bakka í Bolungavík en bjó á Ísafirði og vildi fá vinnu nær heimilinu. Einnig fannst mér kominn tími til að breyta til þannig að ég hringdi inn á flug- völl og spurðist fyrir um vinnu. Á endanum réð Arnór Jóna- tansson umdæmisstjóri mig en hann hefur mikið dálæti á Bol- víkingum og vill helst ekki án þeirra vera. Eftir að hafa verið farþegi í nokkrum flugvélum og skoðað aðrar þá er Fokkerinn sennilega uppáhalds vélin mín. Hún er a.m.k. búin að sanna sig frá því að hún var tekin í notkun í innanlandsflugi 1965. Fólki finnst Flugfélagið oft ekki veita nógu góða þjón- ustu þegar það hefur verið ófært í 1-2 daga, að geta ekki sent eina til þrjár flugvélar á sama tíma. Þá vil ég minna á að við erum að fljúga til ann- arra staða en bara til Ísafjarðar með svo og svo margar flug- áhafnir. Hér er ein myndlík- ing sem dæmi: Það eru fullt af kirkjum í Ísafjarðarprófast- dæmi en ekki nógu margir prestar til þess að sinna messu í hverri einustu kirkju kl.14,“ segir Þorlákur Ragnarsson, vaktstjóri hjá Flugfélagi Ís- lands á Ísafirði. Fokkerinn uppáhalds flugvélin Sölubörn óskast til afleysinga í hin ýmsu hverfi á Ísafirði. Nánari upplýsingar gefur Sigurjón í síma 456 4560. Sölubörn! 02.PM5 6.4.2017, 09:2219

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.