Bæjarins besta


Bæjarins besta - 12.01.2005, Page 20

Bæjarins besta - 12.01.2005, Page 20
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 250 m/vsk www.bb.is – daglegar fréttir á netinu Sigurður G. Þorsteinsson íþrótta- maður Ísafjarðarbæjar árið 2004 Hinn 16 ára gamli körfu- knattleiksmaður, Sigurður G. Þorsteinsson, hlaut nafnbótina Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 2004. Útnefningin fór fram í hófi sem bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar, Héraðssam- band Vestfirðinga og Afreks- mannasjóður efndu til og hald- ið var á efstu hæð Stjórnsýslu- hússins á Ísafirði á sunnudag. Sigurður var tilnefndur í fyr- sta sinn en hann leikur bæði með drengja- og meistaraflokk Körfuknattleiksfélags Ísa- fjarðar og varð Norðurlanda- meistari með U-16 landsliði Íslands í sumar. Hann var einn- ig í byrjunarliði U-16 landsliðs Íslands sem vann B-riðil Evr- ópukeppninnar í körfuknatt- leik, sem er besti árangur sem unglingalandslið í körfubolta hefur náð á Íslandi. Ellefu íþróttamenn voru til- nefndir og hlutu þeir allir viðurkenningu. Einnig heiðr- aði HSV ýmsa íþróttamenn Ísafjarðarbæjar fyrir afrek þeirra á liðnu ári. Að sögn Björns Helgasonar íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Ísafjarðar- bæjar sóttu 115 manns hófið. – thelma@bb.is Sigurður G. Þorsteinsson var útnefndur íþróttmaður Ísafjarðarbæjar 2004. Siggi Björns festur á filmu Lýður Árnason, læknir og kvikmyndagerðarmaður vinnur nú að gerð heimild- armyndar um líf farand- söngvarann Sigga Björns frá Flateyri. Vann Lýður að gerð myndarinnar síðastlið- ið sumar og fóru tökur fram erlendis m.a. á Borgundar- hólmi. Þetta kemur fram í ítarlegu viðtali við Sigga Björns í ársriti Önfirðinga- félagsins í Reykjavík sem kom út fyrir skömmu. Í viðtalinu er farið yfir æviferil Sigga og þar er hann nefndur víðförlasti Önfirðingur allra tíma. Hann er um þessar mundir að flytja frá Berlín til Dres- den í Þýskalandi.– hj@bb.is Guggan verður hvít en ekki gul. Mynd: Grétar Þór Sæþórsson. Ný Gugga komin á flot Ný Gugga er væntanleg til Ísafjarðar innan tíðar. Báturinn er af Cleopötru- gerð og „aðeins stærri og hraðskreiðari“ en sú gamla, eins og Ásgeir Guðbjarts- son, annar eigenda bátsins komst að orði þegar rætt var við hann í október. „Hún er kominn á flot núna. Sonur hans Guðbjart- ur siglir skipinu vestur og verður skipstjóri á því í framtíðinni. Aðspurður segir Ásgeir að Guggan fari mjög fljótlega til veiða – halfdan@bb.is Fjögur skip við Ísafjarðardjúp Fá úthlutað aflaheim- ildum í Barentshafi Júlíus Geirmundsson ÍS- 270 fær mestan afla þeirra fjögurra skipa frá Vestfjörð- um sem fá úthlutað aflaheim- ildum í Barentshafi. Fiski- stofa hefur tilkynnt um afla- heimildir íslenskra skipa á þessum slóðum á þessu ári. Júlíus Geirmundsson fékk úthlutað 64 tonnum í norskri lögsögu og 40 tonnum í rúss- neskri lögsögu. Páll Pálsson ÍS-102 fékk úthlutað tæpum 38 tonnum í rússneskri lög- sögu og 60,7 tonnum í norskri lögsögu. Þá fékk Stefnir ÍS- 28 úthlutað 7,7 tonnum í nor- skri lögsögu og 4,8 tonnum í rússneskri lögsögu. Einnig fékk Andey ÍS-440 fékk út- hlutað 17,3 tonnum í rússnesk- ri lögsögu og 27,6 tonnum í norskri lögsögu. Allar þessar aflaheimildir eru í þorski. Júlíus Geirmundsson ÍS-270. Ákveðið hefur verið að kaupa upp húsin við Árvelli í Hnífsdal Óvíst hvað gert verður að Hrauni Halldór Halldórsson, bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ, segir óljóst í hvaða varn- araðgerðir verður ráðist með bæinn Hraun í Hnífsdal. Þar komi annað hvort til greina að verja bæinn með varnarfleyg eða kaupa hann upp. Ekki hefur verið ákveðið hvort verður gert. „Aftur á móti hefur verið ákveðið að kaupa upp húsin við Árvelli. Þegar hættuástandi var aflýst og hiti aftur kominn á húsin var ekkert því til fyrir- stöðu að þeir íbúar sem það vildu snéru þangað aftur. Þó er ljóst að þeg- ar húsin verða keypt upp, verður ekki búið í þeim áfram“, segir Halldór. Aðspurður segir Halldór óvíst hvenær húsin við Árvelli verða keypt upp, en þau eru í eigu sveitarfélagsins. „Það var ákveðið að láta ganga fyrir uppkaup þeirra húsa sem eru í einka- eigu. En ég mun ganga á eftir upp- kaupum Ofanflóðasjóðs á þessum húsum og hefði gert það þó ekki hefði fallið þarna flóð“, segir Halldór. – halfdan@bb.is Snjór fór inn í íbúðir á neðri hæð fjölbýlishússins við Árvelli. 02.PM5 6.4.2017, 09:2220

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.