Bæjarins besta - 28.09.2005, Side 1
Stofnað 14. nóvember 1984 · Sími 456 4560 · Veffang: www.bb.is · Verð kr. 300 m/vsk
Miðvikudagur 28. september 2005 · 39. tbl. · 22. árg.
Nýr og glæsilegur flugturn
var formlega tekinn í notkun
við hátíðlega athöfn á Ísa-
fjarðarflugvelli á laugardag.
Meðal gesta voru sveitar-
stjórnarmenn á norðanverðum
Vestfjörðum, þingmenn, flug-
menn á Ísafirði, starfsmenn
Flugmálastjórnar og Sturla
Böðvarsson samgönguráð-
herra sem klippti á borða og
tók þannig hinn nýja flugturn
formlega í notkun. Séra Stína
Gísladóttir blessaði mann-
virkið sem talið er að muni
auka flugöryggi á svæðinu.
Meðal þeirra sem tóku til
máls við vígsluna voru auk
samgönguráðherra þeir Guð-
björn Charlesson, um-
dæmisstjóri Flugmálastjórnar
á Ísafirði, Halldór Halldórs-
son, bæjarstjóri Ísafjarðar-
bæjar, og Þorgeir Pálsson
flugmálastjóri. Ræddu þeir
meðal annars um mikilvægi
innanlandsflugs á Íslandi og
nauðsyn Reykjavíkurflugvall-
ar í því sambandi.
Umhverfisnefnd Ísafjarðar-
bæjar veitti byggingarleyfi
fyrir flugturninum í ágúst árið
2002 og var upphaflega ráð-
gert að hann yrði tilbúinn fljót-
lega á árinu 2003 en af ýmsum
ástæðum hefur framkvæmdin
tafist, bæði á útboðsstigi og á
framkvæmdastigi. Í byrjun
ágúst 2004 var sagt að turninn
yrði tekinn í notkun á næstu
vikum, líklega í september.
Bið varð þó á því, aðallega
vegna anna tæknimanna Flug-
málastjórnar.
Nýi flugturninn þykir glæsi-
legur en hann er sambyggður
húsi Flugmálastjórnar á Ísa-
fjarðarflugvelli og setur sterk-
an svip á flughlaðið. Kol og
salt ehf. sá um hönnun turnsins
en verktaki við byggingar-
framkvæmdirnar var Ágúst og
Flosi ehf.
– halfdan@bb.is
Hjólbarðaverkstæði Ísa-
fjarðar hefur keypt hjólbarða-
deild Bílaverkstæðis Ísafjarðar
og var samningurinn undirrit-
aður um helgina. „Við eigum
hjólbarðadeildina frá og með
deginum í dag. Við ætlum að
bæta úrvalið og reyna að sinna
viðskiptavinum enn betur en
við gerum nú“, sagði Guð-
mundur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Hjólbarðaverk-
stæðis Ísafjarðar, þegar við
hann var rætt á mánudag.
Fyrirtækið er nú eina hjól-
barðaverkstæðið á Ísafirði en
þrír aðilar í Ísafjarðarbæ og
einn í Súðavík veita slíka þjón-
ustu. „Kaupin leggjast mjög
vel í okkur en við ætlum að
reyna halda lága verðinu á
dekkjunum og sama verð
verður á þjónustunni, en það
hefur haldist óbreytt frá árinu
2004,“ segir Guðmundur.
– thelma@bb.is
Hjólbarðaverkstæði Ísafjarðar kaupir
hjólbarðadeild Bílaverkstæðis Ísafjarðar
Hjólbarðaverkstæði Ísafjarðar.
Glæsilegur
flugturn
formlega tekinn
í notkun
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra tók hinn nýja flugturn í notkun. Með honum standa Guðbjörn Charlesson (t.v.) og Þorgeir Pálsson.
Mynd: Þorsteinn J. Tómasson.
39.PM5 6.4.2017, 09:491