Bæjarins besta - 28.09.2005, Page 2
MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 20052
Mikið um umferðaróhöpp
í hálku síðustu viku
Mikið var um umferðaró-
höpp í síðustu viku og má
sjálfsagt kenna skyndilegri
hálku þar um. Um miðjan dag
á fimmtudag fór fólksbíll út af
Hnífsdalsvegi og hvolfdi í
vegkantinum og skemmdist
mikið. Örfáum mínútum síðar
fór annar bíll út af í Botnsdal í
Súgandafirði en skemmdist
lítið. Þá um kvöldið varð svo
þriðja óhappið þegar bíll fór
út af veginum rétt fyrir innan
Suðureyri á Súgandafjarðar-
vegi. Var bíllinn mikið
skemmdur eftir óhappið.
Snemma morguns daginn eftir
missti svo ökumaður á Poll-
götu á Ísafirði stjórn á bíl
sínum með þeim afleiðingum
að hann rakst utan í grjótgarð-
inn í vegkantinum og
skemmdist bíllinn mikið.
Skömmu síðar varð árekstur á
Suðurgötu á Ísafirði þar sem
tvær bifreiðar rákust saman
og var tjón nokkuð á bílunum.
Um miðjan dag skullu svo
tvær bifreiðir saman á Skutuls-
fjarðarbraut við gatnamót
Árholts og skemmdust bílar
þó nokkuð. Mikil mildi má
teljast að engan skuli hafa
sakað í neinu af ofantöldum
umferðaróhöppum.
Um miðjan dag á föstudag
hafði lögregla afskipti af
ökumanni í miðbæ Ísafjarðar
sem grunaður var um ölvunar-
akstur. Einn maður gisti fanga-
geymslur lögreglunnar á helg-
inni, aðfararnótt laugardags,
en hann hafði verið handtekinn
í miðbæ Ísafjarðar fyrir
óspektir og ölvun á almanna-
færi. Var hann látinn sofa úr
sér í fangaklefa lögreglunnar
og sleppt þegar af honum var
runnið og hann hafði róast.
Sömu nótt þurfti lögregla að
hafa afskipti af nokkrum 15-
16 ára unglingum sem voru
undir áhrifum áfengis. Var
þeim ekið heim og verða
afskiptin tilkynnt Skóla- og
fjölskylduskrifstofu í sam-
ræmi við laganna bókstaf.
Í vikunni sem leið hafði
lögreglan á Ísafirði afskipti af
7 bifreiðum sem ekki höfðu
hlotið skoðun og einu óskráðu
bifhjóli. Þá var 16 ára ungl-
ingur tekinn á bíl, en eins og
gefur að skilja var unglingur-
inn próflaus. Bíllinn sem hann
ók var ekki skráð æfingaöku-
með því að senda tölvupóst
á netfangið
haukur@vagnsson.com.
„Þeir sem mættu síðast
þegar Geirmundur spilaði í
Bolungarvík muna ennþá
eftir stuðinu og stemning-
unni sem var alveg frábær.
Geirmundur leikur tónlist
sem kemur öllum aldurs-
hópum í rétta gírinn“, segir
Haukur Vagnsson skipu-
leggjandi dansleiksins.
– halfdan@bb.is
Sveiflukóngurinn Geir-
mundur Valtýsson leikur
ásamt hljómsveit sinni á
dansleik í Bolungarvík á
laugardag. Sætaferðir verða
til Bolungarvíkur á vegum
Stjörnubíla og er nauðsyn-
legt að panta far í símum
456-3518 eða 893-6356.
Miðapantanir fara fram í
síma 456-7909 og 862-2221.
Miðaverð er 2.000 krónur.
Þá er hægt að fá allar frekari
upplýsingar um dansleikinn
Geirmundur Valtýsson.
Geirmundur
stýrir sveiflunni
í Bolungarvík
tæki og farþegi í bílnum var
ekki samþykktur leiðbeinandi.
Loks vill lögreglan enn og
aftur hvetja foreldra til að
framfylgja útivistarreglum og
leyfa ekki eftirlitslaus sam-
kvæmi unglinga.
– eirikur@bb.is
Lögreglustöðin á Ísafirði.
Sunnukórinn
Söngæfingar Sunnukórsins hefjast
þriðjudaginn 4. október kl. 20 í Hömrum,
sal Tónlistarskólans á Ísafirði. Skemmtileg
vetrardagskrá framundan fyrir þá sem hafa
gaman af að syngja. Sunnukórinn saman-
stendur af hressu og söngglöðu fólki á
öllum aldri sem tekur ávallt vel á móti nýjum
félögum.
Stjórnin.
samin tónlist sem tengist
atburðinum 26. október, ljóð
verða lesin og sóknarprestur-
inn séra Stína Gísladóttir mun
flytja bæn auk ávarps frú
Vigdísar sem áður er getið.
Að dagskránni lokinni
verður boðið upp á kaffiveit-
ingar. Á göngum íþróttahúss-
ins og í sal munu hanga uppi
ljósmyndir Páls Önundarsonar
af mannlífi á Flateyri síðasta
áratug.
Minningarsjóður Flateyrar
var stofnaður haustið 1996 og
hafa verkefni sjóðsins verið
að reisa minningarstein um þá
sem létust í snjóflóðinu, skipu-
leggja kyrrðar- og minningar-
stundir í Flateyrarkirkju 26.
október ár hvert frá 1996 og
síðast en ekki síst að sjá um
framkvæmdir við Minningar-
garðinn á svæðinu milli kirkju-
Frú Vigdís Finnbogadóttir
fyrrverandi Forseti Íslands
mun flytja ávarp á minningar-
dagskrá sem haldin verður í
íþróttahúsinu á Flateyri 26.
október þegar minnst verður
þess að tíu ár verða liðin frá
því er snjóflóðið mikla féll á
þorpið. Þetta kemur fram í
bréfi sem undirbúningsnefnd
minningardagskrárinnar sendi
bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar.
Það er Minningarsjóður Flat-
eyrar sem stendur að dag-
skránni og á hans vegum hefur
undirbúningsnefndin starfað.
Í bréfinu kemur fram að
kirkjan á Flateyri verði opin
öllum þennan dag sem þangað
vilja koma og eiga þar ljóðláta
bæna- og minningarstund. Í
íþróttahúsinu hefst síðan dag-
skrá kl. 20. Þar verður flutt
tónlist, meðal annars frum-
garðsins og Tjarnargötu en
þeim er nú að mestu notið.
Minningarsjóðurinn óskar
eftir því að Ísafjarðarbær
standi straum af kaffiveiting-
um og að móttaka og kostnað-
ur vegna komu frú Vigdísar
verði á vegum bæjarins.
Bæjarráð Ísafjarðarbæjar
samþykkti þátttöku í dag-
skránni og einnig að veita styrk
til hennar að upphæð 245
þúsund krónur.
– hj@bb.is
Vigdís Finnbogadóttir flytur
ávarp á Flateyri
Jazzband
Villa Valla
með tónleika
í Kjallaranum
í Bolungarvík
Jazzband Vilbergs
Vilbergsson, sem betur er
þekktur sem Villi Valli,
leikur í Kjallaranum í
Einarshúsi við Hafnargötu í
Bolungarvík á
föstudagskvöld.
Húsið opnar klukkan 22
og verður jazzinn leikinn til
miðnættis, en húsið verður
opið fram á nótt. Aðgangs-
eyrir er 1.000 krónur.
„Þennan tónlistarviðburð í
sögufrægasta húsi Bolvík-
inga getur engin látið fram
hjá sér fara“, segir í
tilkynningu frá að-
standendum tónleikanna.
– halfdan@bb.is
Rafmagnslaust
á Ísafirði
Rafmagnslaust var um
nokkra stund á Ísafirði
skömmu fyrir hádegi í gær.
Að sögn Kristjáns
Haraldssonar Orkubússtjóra
varð bilun í svokallaðri
Vesturlínu, en þegar rætt var
við hann var óvíst hvað
nákvæmlega fór úrskeiðis.
Líklegt var þó talið að ísing
ætti sök að máli. Rafmagn
komst á aftur um klukkan
tólf á hádegi.
– eirikur@bb.is
39.PM5 6.4.2017, 09:492