Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.01.2015, Síða 8

Bæjarins besta - 15.01.2015, Síða 8
8 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 Tók úrslit kosnin „Þegar ég er spurður hvaðan ég sé, þá segi ég stundum í gamni, að ég sé úr Norðvesturkjördæmi. Mamma mín átti heima í Borgar- nesi en skrapp út á Akranes til að eiga mig. Leikskólaárin mín var ég í Borgarnesi en grunnskóla- árin á Hvammstanga. Síðan fór ég í Skagafjörðinn í framhalds- skóla og var á þeim tíma mjög lítið heima á Hvammstanga. En ef ég á að nefna ákveðið svæði og ákveðinn stað, þá segist ég helst vera Húnvetningur og frá Hvammstanga. Það er hins vegar ótvírætt að móðir mín er Borg- firðingur að uppruna,“ segir Jón- as Þór Birgisson, lyfsali á Ísafirði og bæjarfulltrúi í Ísafjarðarbæ. Jónas er búsettur í Hnífsdal ásamt fjölskyldu sinni. Anna Katrín Bjarnadóttir eiginkona hans er úr Dýrafirði, alin upp framan af í Neðri-Hjarðardal, þar sem Karl Andrés Bjarnason bróðir hennar býr núna, og síðan á Þingeyri. Þau eiga fjögur börn, tvo stráka og tvær stelpur á aldr- inum tæplega tíu ára til nítján ára. Anna Marý er rétt að verða tíu ára, Bjarni Pétur Marel er á fimmtánda ári, Magðalena er sautján ára og Þórólfur Marel er á tuttugasta aldursári. Anna Jónasdóttir móðir Jónas- ar er úr Borgarfirði eins og áður segir. Birgir Marel Jóhannsson faðir hans er úr Reykjavík, en fósturfaðir hans er Vilhjálmur Pétursson frá Stóru-Borg í Vest- ur-Húnavatnssýslu. Frelsið úti á landi er ómetanlegt Eftir stúdentspróf frá Fjöl- brautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki fór Jónas suður til náms í Háskóla Íslands. „Þegar ég var búinn með lyfja- fræðina var ég eitt ár að vinna í Kópavoginum. Þá hringdi Ás- björn Sveinsson, sem átti Ísa- fjarðar apótek, og bauð mér vinnu. Tengdasonur hans, sem var fyrrverandi bekkjarbróðir minn, hafði verið að vinna hjá honum en vildi komast aftur suð- ur. Hann sagði Ásbirni að prófa að heyra í honum Jónasi, hann væri utan af landi og ætti auk þess konu að vestan og væri lík- lega alveg til í að flytja vestur. Og það varð úr. Við hjónin höfðum alltaf sagt, að ef okkur byðist vinna úti á landi, þá mynd- um við flytja. Reykjavík hefur margt að bjóða, en frelsið úti á landi, ekki síst fyrir börnin, er bara ómetanlegt.“ Þetta var árið 2000 sem þau komu vestur. Þá var Jónas 28 ára gamall. „Fyrsta árið bjuggum við inni á Ísafirði, en 2001 flytjum við hingað í dalinn minn og hér höfum við búið síðan. Það var svo árið 2003 sem Ásbjörn seldi Lyfju apótekið á Ísafirði og mig með,“ segir hann. Dalurinn, hundurinn, stjörnurnar og norðurljósin Fjölskyldan á heima að Bakka- vegi 39 í Hnífsdal. Það er innsta húsið við Bakkaveginn og þar með innsta húsið í Hnífsdals- þorpi, innsti bærinn í dalnum, eins og Jónas segir. „Ég upplifi það eins og við eigum heima úti í sveit. Flestöll kvöld fer ég aðeins út í garðinn minn, bara til að hlusta á kyrrðina. Á sumrin er óviðjafnanlegt að standa úti í garðinum seint á kvöldin og heyra fuglasöng og niðinn í Hnífsdalsánni, en algjöra kyrrð að öðru leyti. Það er eigin- lega alveg sama hvað dagurinn hefur verið erfiður, maður finnur hvernig batteríin hlaðast. Eftir að við fengum okkur hund, þá rölti ég líka með hann inn í dalinn minn á kvöldin og við horfum á stjörnurnar og norðurljósin í al- gerri kyrrð. Mér finnst það dá- samlegt. Mér gremst það mjög þegar ég heyri fólk segja, að ef við ætlum að efla Ísland í samkeppni við önnur lönd, þá verðum við að efla höfuðborgina. Ef ég gæti ekki búið á stað eins og þeim sem ég bý á, þá myndi ég bara alls ekki búa á Íslandi. Ef ég þyrfti að flytja til Reykjavíkur, þá myndi ég miklu frekar vilja búa í sam- bærilegri smáborg á hinum Norð- urlöndunum, nú eða í alvöruborg eins og Kaupmannahöfn. Ég held að við þurfum nefnilega ekki síð- ur að styrkja byggðirnar úti á landi ef við ætlum að halda land- inu í byggð, og jafnvel frekar. Sem betur fer hugsa ekki allir eins og ég, en ég spyr mig: Hvað í ósköpunum getur Reykjavík boðið upp á sem Kaupmannahöfn getur ekki gert betur?“ Hnífsdalur er einn af fimm byggðakjörnum Ísafjarðarbæjar, þó að undarlega margir haldi að þeir séu aðeins fjórir. „Mér finnst þetta fjölkjarna fyrirkomulag vera eitt af því sem gerir Ísafjarðarbæ að því sem hann er. Því finnst mér ótrúlega sorglegt þegar ég heyri einhvern tala niður til einhvers af kjörnun- um okkar. Hérna viljum við helst vera, hér líður okkur óskaplega vel. Það er langt síðan ég fór að líta á mig sem Hnífsdæling og Vestfirð- ing,“ segir Jónas. Umboðsmaður fyrir allt nema Moggann – Hvers vegna varð lyfjafræðin fyrir valinu? „Ég vissi eiginlega ekki hvað ég vildi verða þegar ég yrði stór, eins og ég hef orðað það. Þegar ég fór í framhaldsskólann á Sauð- árkróki byrjaði ég á hagfræði- braut. Ég hef alltaf haft áhuga á einhverju tengdu bísniss. Þegar við félagi minn vorum guttar á Hvammstanga vorum við um- boðsmenn fyrir Tímann, Þjóð- viljann, Dag, Dagblaðið og Alþýðublaðið ... – Sumsé nánast allt nema Moggann ... „Allt nema Moggann! Ég hafði snemma gaman af einhverju svona stússi, einhverju rekstrar- tengdu. Já, ég byrjaði á hagfræði- braut, en ég hef alltaf verið stærð- fræðiþenkjandi og fór líka á nátt- úrufræðibraut, langaði að fara í eitthvað tengt stærðfræðinni. Svo vissi ég ekki hvað í veröldinni ég ætti að gera í framhaldinu, hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að læra, og fór þess vegna í áhuga- sviðspróf hjá námsráðgjöfinni í Háskóla Íslands. Það varð til þess að ég skellti mér í lyfjafræðina, því að þar skoraði ég hátt. Þar gæti ég hugs- anlega verið í einhverju rekstrar- tengdu jafnframt því sem ég væri í efnafræði og líffræði, auk þess að vera í samskiptum við fólk. Þetta sameinaði eiginlega allt sem ég hafði áhuga á, svo fram- arlega sem maður er í apóteki en ekki í lyfjaverksmiðju eða á rann- sóknastofnun. Lyfjafræðingur í apóteki er bæði í efnafræðinni og samskiptum við fólk. Ég hafði strax mjög gaman af þessu og hef enn.“ Ísafjörður á gamla og glæsta sögu – Þið kona þín voruð búin að krækja hvort í annað löngu áður en þú komst vestur. „Já, löngu áður. Við kynntumst í fjölbrautaskólanum á Króknum. Hún var þar í grunnnámi fyrir gæðastjórn og verkstjórn í frysti- húsum áður en farið væri í Fisk- vinnsluskólann sjálfan. Þetta grunnnám var og er óvíða í boði, en það var í boði í skólanum fyrir norðan. Við flytjum svo saman til Reykjavíkur og höldum þar bæði áfram í námi.“ Núna vinnur Anna Katrín á Hlíf á Ísafirði og gegnir þar nokk- rum ólíkum störfum í sama hús- inu, eða í mötuneytinu, í verslun- inni sem er opin klukkutíma á dag, og í ræstingum. Á sínum tíma vann hún í Gamla bakaríinu og hefur síðan gripið þar í af- leysingar af og til. „Ísafjörður á gamla og glæsta sögu og þar er Gamla bakaríið ekki ómerkast,“ segir Jónas. Uppalinn á eldrauðu heimili Í samræmi við úrslit í prófkjöri skipaði Jónas Þór annað sætið á lista Sjálfstæðisflokksins við bæjarstjórnarkosningarnar í Ísa- fjarðarbæ á liðnu vori, næstur á eftir Daníel Jakobssyni. Hann er einn af þremur bæjarfulltrúum flokksins og einn af fjórum bæj- arfulltrúum sem skipa minnihlut- ann, þar af einum frá Framsókn- arflokki, en Í-listinn fékk fimm menn kjörna og þar með hreinan meirihluta. – Varstu eitthvað búinn að koma við sögu í pólitíkinni áður? „Já, ég gekk í Sjálfstæðisflokk- inn fyrir bæjarstjórnarkosning- arnar 2002 og var þá í sjötta eða sjöunda sæti á lista flokksins. Frá þeim tíma hef ég starfað nokkuð í grasrótinni, búinn að vera í stjórn Sjálfstæðisfélags Ísafjarðar í allmörg ár og for- maður í nokkur ár, hef setið í fulltrúaráðinu og eitthvað slíkt. Ég hef alltaf haft áhuga á póli- tík. Ég er alinn upp á mjög póli- tísku heimili, en eldrauðu! Fóst- urpabbi minn sem ól mig upp er Húnvetningur og var mikill Al- þýðubandalagsmaður. Mamma var nú ekki eins pólitísk. Hún var fyrst framsóknarkona en var svo orðin Alþýðubandalags- manneskja eins og pabbi. Það var mikið rætt um pólitík á mínu heimili alveg frá því að ég man eftir mér. Það er svo merkilegt, að systkini mín urðu öll á þessari vinstri línu, en ég var það aldrei. Hinn pabbi minn, sá pabbi minn sem bjó mig til, eins og ég segi, sem ég kynntist ekki fyrr en ég var kominn undir tvítugt, hann er aftur á móti sjálf- stæðismaður. Mér finnst þetta dálítið sérkennilegt og jafnvel spaugilegt. Ég ætla nú samt ekki að halda því fram að pólitískar skoðanir séu genetískar!“ Fær flakkara tvisvar í mánuði Jónas segir að hann hafi verið búið að hálflanga nokkrum sinn- um að fara í prófkjör en aldrei séð fram á að hann hefði tíma í þetta. „Ég vil ekki fara út í neitt svona ef ég hef ekki tíma til að sinna því.“ – En hvað varð þá til þess að þú gerðir það núna? Var það að eigin frumkvæði eða var ýtt á þig að gera það? „Eiginlega hvort tveggja. Ég var reyndar hvattur til að fara í prófkjör. Ég ræddi við stjórn- endur Lyfju og fékk þá til að auglýsa eftir lyfjafræðingi með mér. Þegar ég var búinn að fá samþykki fyrir því ákvað ég að

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.