Bæjarins besta - 15.01.2015, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 2015 11
HLÍÐARVEGUR, ENDURGERÐ GATNA,
FRÁVEITU- OG VATNSLAGNA
Ísafjarðarbær óskar eftir tilboðum í verkið
„Gatnagerð á Ísafirði, Hlíðarvegur, endur-
nýjun götu, holræsalagna, gangstétta og
götulýsingar.“
Verkið felst í að endurgera Hlíðarveg,
lagnir, uppúrtekt, fyllingar, neðra- og efra
burðarlag, gangstéttir og lýsingu. Í götunni
er einfalt holræsakerfi og skal leggja tvö-
fallt kerfi.
Helstu stærðir eru:
Gröftur í götustæði 4.100 m³
Holræsalagnir 1.200 m
Vatnslagnir 500 m
Hellulögn 600 m²
Verkinu skal vera að fullu lokið 1. októ-
ber 2015.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu á kr.
3.000.- hjá Ísafjarðarbæ, Hafnarstræti 1,
400 Ísafirði frá og með 16. janúar 2015.
Tilboðin verða opnuð hjá Ísafjarðarbæ í
Stjórnsýsluhúsinu, 2. hæð, 5. febrúar 2015
kl. 11:00 að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
Óskast til leigu
SFR - stéttarfélag óskar eftir íbúðum og/eða
sumarhúsum til leigu fyrir félagsmenn sína
sumarið 2015, á sunnanverðum Vestfjörðum.
Einungis fullfrágengið húsnæði í góðu ásig-
komulagi kemur til greina, auk þess sem hús-
næðið þarf að vera fullbúið húsgögnum og
búnaði. Lóðir þurfa einnig að vera fullfrágeng-
nar.
Áhugasamir sendi upplýsingar til Önnu Dóru
Þorgeirsdóttur, verkefnastjóra SFR á netfang-
ið dora@sfr.is fyrir 27. janúar nk. Allar almenn-
ar upplýsingar verða að koma fram s.s. verð,
almennt ástand eignarinnar, staðsetning, stærð,
möguleikar á fjölda gesta, aldur eignar, að-
staða (heitir pottar og slíkt), lýsing á útivistar-
möguleikum og afþreyingu í næsta umhverfi,
o.s.frv. auk mynda.
Öllum tilboðum verður svarað.
Önnu Lilju Sigurðardóttur
Aðalstræti 24, Ísafirði
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu
Erlingur Tryggvason
Reynir Erlingsson
Sigurður Jóhann Erlingsson Ragnhildur Einarsdóttir
Sólveig Erlingsdóttir Halldór Karl Valsson
og barnabörn
Þegar flutningabílar eða trillur
renna að bryggjunni á Flateyri
tekur Janusz Butkiewicz oftar en
ekki á móti þeim á lyftara frysti-
hússins. Janusz sem er glaðvær
og snaggaralegur, tekur á móti
öllum með spjalli og bros á vör,
og afgreiðir fiskinn hratt og vel.
Janusz hefur unnið hjá Artic
Odda og fengið uppsagnarbréf
þaðan eins og aðrir starfsmenn.
Hvað verður í framhaldinu er
óvíst en Janusz var þó ekki svart-
sýnn þegar bb.is hafði samband
við hann, kannski er það honum
ekki eðlislægt.
„Ég er með þriggja mánaða
uppsagnarfrest ólíkt flestum sem
eru bara með einn mánuð, svo ég
mun vinna út mars. Ég hef unnið
í frystihúsinu í rúmlega átta ár,
og búið jafnlengi á Flateyri, en
kem upphaflega frá Suwalki í
Póllandi. Bærinn er um 300
kílómetra frá Varsjá og þar búa
um 70-80 þúsund manns,“ segir
Janusz og hlær. „Það veit enginn
hvert framhaldið verður og við
verðum bara að hugsa það þegar
þar að kemur. Ætli ég fari ekki
og tali við Vinnumálastofnun í
apríl. Þeir eru með námskeið sem
mig langar á, ef það verður ekki
áframhaldandi vinna.“
Janusz á konu og tvö lítil börn
og konan hans er nýbyrjuð að
vinna á leikskóla á Ísafirði. „Kon-
an mín er með samning næsta
hálfa árið í nýja starfinu og ef ég
verð ekki kominn með vinnu fyrir
það förum við hugsa okkar gang.
Kannski munum við búa áfram á
Flateyri, kannski Ísafirði eða fara
til Reykjavíkur því þar er meiri
atvinna, jafnvel þó húsnæðisverð
þar sé mjög hátt. En við ætlum
að búa á á Íslandi, verðum bara
að skoða hvar þegar þar að kem-
ur,“ segir þessi káti lyftaramaður.
– sfg@bb.is
„Það veit enginn hvað verður“
Janusz Butkiewicz býr á Flateyri ásamt konu sinni og tveimur börnum.
Karl Ingi tekinn við
Karl Ingi Vilbergsson tók við
embætti lögreglustjóra á Vest-
fjörðum á áramótum. Embættið
er nýtt af nálinni, og varð til um
áramótin þegar ný embætti
lögreglustjóra og sýslumanna á
Íslandi urðu til. „Starfið leggst
bara ljómandi vel í mig,“ segir
Karl sem hefur starfað sem að-
stoðarsaksóknari hjá lögreglu-
stjóranum á höfuðborgarsvæð-
inu. Á skrifstofu lögreglustjórans
á Vestfjörðum starfa auk Karls
löglærður fulltrúi og einn skrif-
stofumaður. Hann segir engar
breytingar á löggæslumálum
fylgja þessu nýja embætti.
„Það eru engar breytingar í
sjálfu sér í starfi lögreglunnar.
Það er verið að færa lögregluna
frá sýslumanni og innra skipulag
lögreglu verður óbreytt,“ segir
hann. Þessa dagana er hann að
koma sér fyrir í nýju starfi og í
nýju húsi. „Ég er einn til að byrja
með og svo kemur fjölskyldan
með vorinu,“ segir Karl.
Karl Ingi Vilbergsson, lögreglustjóri á Vestfjörðum.