Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.01.2003, Side 1

Bæjarins besta - 15.01.2003, Side 1
Allir tilbúnir að gera góðan bæ enn betri! Miðvikudagur 15. janúar 2003 • 2. tbl. • 20. árg. ÓHÁÐ Á VESTFJÖRÐUMFRÉTTABLAÐ Stofnað 14. nóvember 1984 • Sími 456 4560 • Veffang: www.bb.is • Netfang: bb@bb.is • Verð kr. 250 m/vsk – sjá viðtal við Einar Pétursson, nýráðinn bæjarstjóra í Bolungarvík á bls. 4. Sveinbjörn kjörinn íþróttamaður ársins Kajakræðarinn Sveinbjörn Hrafn Kristjánsson var út- nefndur íþróttamaður ársins 2002 í Bolungarvík í hófi sem haldið var í Víkurbæ á sunnu- dag. Sveinbjörn er aðeins 19 ára gamall og er í allra fremstu röð kajakræðara á landinu um þessar mundir. Hann er mjög vel að titlinum kominn en hann vann öll þau mót sem stóðu kajakræðurum á Íslandi til boða á síðasta ári. Sjá nán- ar frétt á bls. 9. 3X-Stál á Ísafirði gerir stórsamning í Kanada Leiðandi í stærri verkefnum í kanadískum rækjuiðnaði Tæknifyrirtækið 3X-Stál á Ísafirði, sem sérhæfir sig í vinnslulausnum fyrir sjávar- útveg, hefur undirritað sölu- samning við kanadíska sjáv- arútvegsfyrirtækið Fishery Product International um endurbyggingu tveggja rækjuverksmiðja. Fyrir- tækið er eitt hið stærsta á austurströnd Kanada og rek- ur fjölþætta starfsemi í Nova Scotia, á Nýfundnalandi og á Labrador. 3X-Stál hefur tekið umtals- verðan þátt í hönnunarferli þessarra verksmiðja og nýttist þar mikil reynsla fyrirtækisins í hönnun og smíði á vinnslu- línum fyrir rækjuverksmiðjur, bæði hér heima og í Kanada. „Það má segja að þessi samningur staðfesti enn ár- angur okkar í rækjuiðnað- inum í Kanada. Við höfum verið leiðandi vélabúnað- arframleiðandi og hönnuðir í flestum stærri verkefnum sem unnin hafa verið í kana- dískum rækjuiðnaði frá því að uppbygging hans hófst um 1998“, segir Jón Páll Hreinsson markaðsstjóri. Höfuðstöðvar 3X-Stál við Sindragötu á Ísafirði. 02.PM5 18.4.2017, 10:141

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.