Bæjarins besta - 15.01.2003, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003
Ársskýrsla Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar 2002
Mikið eignatjón á liðnu
ári vegna eldsvoða, slysa
og óhappa
– sjö létu lífið í tveimur umferðarslys-
um og einum eldsvoða
Á nýliðnu ári voru 12 útköll
vegna elds hjá Slökkviliði Ísa-
fjarðarbæjar. Oftast kviknaði
í vegna þess að fólk fór frá
eldamennsku. Ennig er nokk-
uð um að kvikni í þvottavélum
og þurrkurum. Útköll vegna
umferðarslysa, mengunar-
óhappa og ýmiskonar björg-
unarstarfa og aðstoðar við al-
menning voru 19 á árinu en 2
útköll voru vegna brunakerfa.
Auk þessa annaðist Slökkvi-
lið Ísafjarðarbæjar 250 sjúkra-
flutninga á árinu, þar af 50
neyðarflutninga.
Þetta kemur fram í skýrslu
Þorbjörns Sveinssonar
slökkviliðsstjóra fyrir liðið ár.
Slökkviliðsstjóri segir að
eignatjón á árinu hafi verið
mikið vegna bruna, umferðar-
slysa og atvika í höfnum þar
sem bátur sökk og annar stór-
skemmdist.
Fjórir létust á árinu í tveim-
ur umferðarslysum á svæði
Slökkviliðs Ísafjarðarbæjar. Í
inngangi að skýrslu sinni segir
slökkviliðsstjóri að árið hafi
ekki byrjað vel, en þá varð
hörmulegur stórbruni á Þing-
Slökkvistöðin á Ísafirði.
eyri þar sem þrír létust.
Slökkviliðið gerði átak í því
að koma upp reykskynjurum
á heimilum þar sem slökkvi-
liðsmenn gengu í hús og buðu
reykskynjara til kaups og að-
stoðuðu við uppsetningu.
„Mönnum var alls staðar vel
tekið og þjónustan þökkuð“,
segir Þorbjörn Sveinsson.
Nokkrir slökkviliðsmenn
komu sér upp köfunarbúnaði
á árinu og nýttist hann að sögn
slökkviliðsstjóra vel til björg-
unarstarfa.
Veðurblíðan virðist farin að rugla fleiri í ríminu en Vestfirðinga
Erlendur bakpokamaður tjald-
ar á Ísafirði sem hásumar væri
Veðurblíðan virðist vera far-
in að rugla fleiri í ríminu en
Vestfirðinga sjálfa og farfugla
himinsins, því að á miðviku-
dag í síðustu viku bárust
spurnir af erlendum bakpoka-
manni, Ralph Wehner frá
Sviss sem var búinn að tjalda
Efling atvinnulífs í Ísafjarðarbæ
Fyrsta skrefið stigið að
stofnun eignarhaldsfélags
Á nokkrum stöðum á
landinu hafa verið stofnuð
svæðisbundin eignarhalds-
félög til eflingar atvinnulífs,
þar sem heimamenn hafa
lagt fram 60% af stofnfé
gegn 40% mótframlagi
Byggðastofnunar. Getur
stofnunin veitt allt 120 millj-
óna króna framlag til hvers
landsfjórðungs vegna slíkra
verkefna.
Ísafjarðarbær hefur í fjár-
hagsáætlun fyrir árið 2003
tekið frá 20 milljónir króna í
þessu skyni. „Það má segja
að þetta sé fyrsti vísirinn hjá
okkur í átt að stofnun eignar-
haldsfélags Ísafjarðarbæjar.
Næsta skref er að láta reyna á
það hvort að við fáum mót-
framlag frá Byggðastofn-
un“, segir Halldór Halldórs-
son bæjarstjóri í Ísafjarðar-
bæ.
„Þessi vinna er á frum-
stigi. Við eigum eftir þróa
málið frekar“, segir Elías
Guðmundsson, formaður at-
vinnumálanefndar.
Dæmdur fyrir akstur undir áhrifum lyfja
Sektaður og sviptur ökurétti
Maður hátt á þrítugsaldri
var í síðustu viku dæmdur í
Héraðsdómi Vestfjarða til
greiðslu 50 þúsund króna
sektar, ökuleyfissviptingar
í sex mánuði og til greiðslu
alls sakarkostnaðar fyrir
akstur undir áhrifum lyfja.
Maðurinn var ákærður og
sakfelldur fyrir að hafa í haust
ekið bifreið frá Bolungarvík
og sem leið lá inn á Ísafjarð-
arflugvöll með verulegt magn
amfetamíns í blóði, auk róandi
lyfja.
Niðurstöður blóðrannsókn-
ar leiddu lyfjanotkunina í ljós,
auk játningar hins ákærða.
Hátterni mannsins við kom-
una á Ísafjarðarflugvöll var
undarlegt og með þeim
hætti, að vitni kallaði lög-
reglu á vettvang.
Erlingur Sigtryggsson
dómstjóri kvað upp dóm-
inn.
fyrir neðan veg í Króknum á
Ísafirði og sat hann í náðum í
fjörunni við bóklestur þegar
blaðamaður leit til hans.
„Ég ætlaði að ganga á
skíðum úr Landmannalaugum
og yfir Kjöl til Akureyrar en
það var enginn snjór“, segir
Ralph. Þess vegna afréð hann
að ferðast fótgangandi um
Vestfirði í staðinn. Ralph seg-
ist kunna þessu ferðalagi
prýðisvel. Honum þykir gott
að vera á ferð þegar fáir aðrir
ferðamenn eru á kreiki þó að
erfiðara sé um vik þar sem
ýmis þjónusta liggur niðri á
þessum árstíma.
„Ég rek reiðhjólaverkstæði
í Sviss og því er ég umkringd-
ur fólki og í miklum skarkala
stærstan hluta ársins. Á vet-
urna er minna að gera og því
nota ég þennan tíma til að
taka mér frí og hlaða batter-
íin“, segir Ralph Wehner.
Fyrsti bakpokamaður ársins fyrir utan tjald sitt í Króknum
á Ísafirði.
Íþróttafélagið Ívar í Ísafjarðarbæ
Stofnun borðtennisfélags
á Ísafirði í undirbúningi
Íþróttafélagið Ívar í Ísa-
fjarðarbæ stendur þessa dag-
ana fyrir átaki til að kynna
borðtennisíþróttina með það
að markmiði að stofna opið
borðtennisfélag. Harpa
Björnsdóttir, formaður Ívars,
sem er íþróttafélag fatlaðra,
segir margar vanræktar borð-
tenniskempur leynast á svæð-
inu. Margir hafi spilað borð-
tennis í félagsmiðstöðinni en
eftir það hafi þá skort vettvang
til æfinga og því hætt spili.
Í síðustu viku voru í heim-
sókn hér vestra þeir Jóhann
R. Kristjánsson, sem er í
landsliði fatlaðra í borðtennis,
og Helgi Þór Gunnarsson
landsliðsþjálfari. Á föstudag
fóru þeir í heimsóknir í skóla
til að kynna íþróttina m.a. í
Grunnskólann á Ísafirði og
Menntaskólann á Ísafirði.
Harpa Björnsdóttir segir
ætlunina að setja á stofn borð-
tennisfélag sem sé opið öllum,
bæði fötluðum og ófötluðum
Jóhann R. Kristjánsson á kynningunni í Menntaskólanum
á Ísafirði.
02.PM5 18.4.2017, 10:1410