Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.01.2003, Page 13

Bæjarins besta - 15.01.2003, Page 13
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 13 NINGIN Útnefning Íþróttamanns Ísafjarðarbæjar fyrir árið 2002 Ólafur Th. Árnason kjörinn í annað sinn Kristín Gísladóttir, móðir Ólafs Th. Árnasonar, Íþróttamanns Ísafjarðarbæjar 2002 og Katrín systir hans tóku við viður-kenningunum. Á milli þeirra er Birna Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar. Íþróttamaður Ísafjarðarbæj- ar árið 2002 var útnefndur í hófi sem Afreks- og styrktar- sjóður Ísafjarbæjar og Hér- aðssamband Vestfirðinga héldu í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði á laugardag. Að þessu sinni var valinn Ólafur Th. Árnason skíðagöngumaður á Ísafirði en hann átti miklu gengi að fagna á árinu. Áður var hann útnefndur íþrótta- maður Ísafjarðarbæjar árið 1999 en Katrín Árnadóttir, skíðagöngukona og systir Ólafs, var útnefnd fyrir árið 2000. Ellefu íþróttamenn voru til- nefndir af aðildarfélögum HSV og hlutu þeir allir viður- kenningu. Auk þeirra hlaut Lárus Daníelsson sem keppir utan félaga viðurkenningu en hann sigraði á Þrekmeistara- móti Íslands á síðasta ári. Auk Ólafs Th. Árnasonar fengu fjórir íþróttamenn styrk úr Afreks- og styrktarsjóði Ísa- fjarðarbæjar og nam hann 100.000 krónum fyrir hvert þeirra. Skíðamennirnir Ólafur Th. Árnason, Jakob Einar Jak- obsson og Markús Þór Björns- son hlutu styrk en þeir æfa allir fyrir Vetrarólympíuleik- ana í Tórínó árið 2006. Heiðar Ingi Marinósson sundmaður og Hjördís Erna Ólafsdóttir júdókona hlutu einnig styrk en þau hafa verið valin í hóp þeirra íþróttamanna sem keppa munu á Ólympíuleik- unum í Aþenu árið 2004. Skíðafélag Ísafjarðar fékk 25 þúsund króna styrk úr Afreks- og styrktarsjóði en venjan er að það félag sem stendur að baki Íþróttamanni Ísafjarðar- bæjar hljóti einnig viðurkenn- ingu með þeim hætti. Katrín Árnadóttir, systir Ól- afs Th. Árnasonar, og Kristín Gísladóttir, móðir hans, tóku við útnefningunnni og því sem henni fylgdi fyrir hans hönd úr hendi Birnu Lárus- dóttur forseta bæjarstjórnar. Ólafur er staddur við æfingar í Noregi og gat ekki tekið við viðurkenningunni. Eftirtalið íþróttafólk hlaut tilnefningar og viðurkenning- ar vegna kjörs Íþróttamanns Ísafjarðarbæjar 2002: Allan Már Newman (Ksf. Hörður), Baldur Ingi Jónasson (KFÍ), Friðrikka Árný Rafns- dóttir (Hestamannafélagið Stormur), Indriði E. Hilmars- son (Hestamannafélagið Hending), Jónas K. Lyngmo (Skotíþróttafélag Ísafjarðar- bæjar), Lárus M.K. Daníels- son (vegna Þrekmeistaramóts Íslands), Ólafur Th. Árnason (Skíðafélag Ísfirðinga), Sig- urður Fannar Grétarsson (Golfklúbbur Ísafjarðar), Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir (Íþróttafélagið Ívar), Svein- björn Hrafn Kristjánsson (Sæfari, félag áhugamanna um sjósport), Þór Sveinsson (Sundfélagið Vestri), og Þórð- ur Rafn Bjarnason (BÍ). Íþróttamennirnir og fulltrúar þeirra sem tilnefndir voru af félögum innan HSV vegna kjörs Íþróttamanns Ísafjarðarbæjar. Þessir ungu knattspyrnumenn fengu viðurkenningar frá Boltafélagi Ísafjarðar fyrir góðan árangur. Sundfélagið Vestri á Ísafirði heiðraði sitt fólk fyrir góðan árangur á árinu 2002. Á myndinni eru einnig þeir Ingi Þór Ág- ústsson, þjálfari sundfólksins og Gestur Elíasson, formaður Vestra. Fjölmenni var við útnefninguna sem haldin var í Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði. AUGLÝSING UM DEILISKIPULAG Í ÍSAFJARÐARBÆ Deiliskipulag Sætúns og Túngötu á Suðureyri. Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga er hér með auglýst til kynningar á ný, tillaga að deiliskipulagi Sætúns og Túngötu, með breytingu frá eldri tillögu. Deiliskipulagstillagan var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Ísafjarðarbæjar 5. desember 2002. Helstu breytingar frá fyrri tillögu eru að Sætún og Túngata verða tvístefnu- akstursgötur. Tillagan verður til sýnis á bæjarskrifstofu á Ísafirði og Suður- eyri frá 16. janúar til og með 14. febr- úar 2003. Skriflegum athugasemdum við tillöguna skal komið á framfæri við undirritaðan fyrir 28. febrúar nk. sem veitir jafnframt allar nánari upp- lýsingar. Ísafjarðarbæ, janúar 2003, Skipulags og bygginarfulltrúi. 02.PM5 18.4.2017, 10:1413

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.