Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.01.2003, Blaðsíða 3

Bæjarins besta - 15.01.2003, Blaðsíða 3
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 3 Lausasöluverð Bæjarins besta hækkar úr 200 í 250 krónur Verð blaðsins hefur verið óbreytt í fimm og hálft ár – mikið vantar á að verð blaðsins fylgi kostnaðarhækkunum og almennum verðhækkunum Verð Bæjarins besta hef- ur nú verið hækkað í annað sinn frá því að farið var að selja blaðið árið 1990 eða fyrir þrettán árum. Á miðju ári 1997 var lausasöluverð- ið hækkað úr 170 krónum í 200 krónur. Það verð hefur verið óbreytt í fimm og hálft ár en fer nú í 250 krónur. Því fer fjarri að þessar tvær hækkanir fylgi al- mennum verðhækkunum og gríðarlegum hækkunum á pappír og öðrum aðföng- um til vinnslu blaðsins á þessu tímabili. Þannig hefur launavísitala hækkað rétt um 100% frá 1990. Síðan var virðisaukaskattur lagð- ur á söluverð blaða en áður voru þau undanþegin hon- um. Útsöluverð Bæjarins besta var ekki hækkað við tilkomu virðisaukaskatts- ins. Póstburðargjöld hafa einnig hækkað gríðarlega á þessu tímabili. Söluverð blað- sins hefur ekki verið hækkað í takt við þær heldur hefur blaðið sjálft tekið þær hækk- anir á sig. Hækkun lausasöluverðsins úr 200 í 250 krónur er 25%. Hefði verið tekið mið af launa- vísitölu frá síðustu verðhækk- un árið 1997 hefði lausasölu- verðið átt að hækka núna um 69% eða í 338 krónur. Ef tekið er mið af hækkun launavísi- tölu og tilkomu virðisauka- skatts frá því að byrjað var að selja blaðið árið 1990 ætti lausasöluverðið að vera 382 krónur. Ef hækkun póstburð- argjalda væri tekin með í reikninginn ætti verðið að vera nokkuð á fimmta hundr- að krónur. Jafnframt því sem lausa- söluverð blaðsins er hækkað er óhjákvæmilegt að hækka einnig áskriftarverð. Eins og áður er veittur afsláttur ef greitt er með gíróseðli og nokkru meiri afsláttur ef greitt er með greiðslukorti. Einnig er elli- og örorkulífeyrisþeg- um í áskrift veittur verulegur aukaafsláttur eins og verið hefur. Póstburðargjald fyrir Bæj- arins besta var 4 krónur árið 1990. Fyrir síðustu áramót var gjaldið 24 krónur fyrir ein- takið innan Vestfjarða og 34 krónur utan Vestfjarða. Gjald- ið hjá Íslandspósti hækkaði núna um áramótin og varð þá jafnframt hið sama hvort sem er innan Vestfjarða eða utan fjórðungsins. Gjaldið fer síð- an stighækkandi allt þetta ár þangað til það verður komið í 50 krónur á eintak í árslok. Það er vel yfir tífalt meiri hækkun en sem nemur hækk- un launavísitölu sl. 13 ár. Flest héraðsfréttablöð landsins kosta nú 250 krónur í lausasölu og hafa sum gert það lengi, jafnvel þótt þau séu mörg hver smærri í sniðum, efnisminni og veigaminni en Bæjarins besta. Núna eftir áramótin voru þrjú ár liðin frá því að frétta- vefurinn bb.is hóf göngu sína. Aðgangur að honum kostar ekki neitt og aðgangur að öllu efni hans frá upphafi er einnig ókeypis. Rekstur bb.is hefur aldrei staðið undir sér pen- ingalega enda var ekki við því búist í upphafi. Þegar vefurinn hóf göngu sína var það ekki síst til gamans gert. Aðstand- endur hans og Bæjarins besta gerðu sér enga grein fyrir því hversu mjög vefurinn myndi vaxa og eflast. Tilvist hans hefur valdið því að eitthvað hefur dregið úr sölu Bæjarins besta. Hins vegar er góð sala á blaðinu ein af forsendum þess að hægt sé að halda vefn- um úti. Undirtektir þeirra sem lesa og nota bb.is hafa verið með þeim hætti, að áfram hefur verið haldið á sömu braut. Auglýsingatekjur bb.is eru ekki í neinu samræmi við hina geysimiklu notkun hans og ekki heldur í neinu samræmi við það sem ger- ist hjá öðrum stórum vefj- um hérlendis. Lítilsháttar tekjur hafa öðru hverju fengist frá auglýsendum á landsvísu. Nánast einu tekjurnar hafa verið frá að- ilum í heimabyggð sem hafa verið með fastar aug- lýsingar á forsíðu bb.is og tengingar í heimasíður sín- ar. Þessir aðilar eru og hafa verið undirstaðan. Það er þeim að þakka að bb.is er yfirleitt til í dag, að minnsta kosti í núverandi mynd. Og án hinna fjölmörgu tryggu kaupenda Bæjarins besta væri hvorki blaðið né vefurinn til í dag. Sæmundur Kr. Þorvaldsson framkvæmdastjóri í Dýrafirði mun gegna starfi aðalfulltrúa Samfylkingarinnar í bæjar- stjórn Ísafjarðarbæjar fram í miðjan maí. Á fundi bæjarstjórnar í síðustu viku var lagt fram bréf frá Bryndísi G. Friðgeirsdótt- ur bæjarfulltrúa, þar sem hún óskaði tímabundinnar lausnar vegna anna. Við síðustu kosn- ingar fékk Samfylkingin tvo bæjarfulltrúa kjörna en Sæ- mundur sem skipaði þriðja sætið á lista flokksins er fyrsti varamaður. Hann var aðal- maður í bæjarstjórn á liðnu kjörtímabili og hefur mikla reynslu af bæjarmálum. Sæmundur Kr. leysir Bryndísi af Ísafjarðarbær Sæmundur Kr. Þorvaldsson. Útgerðarfélagið Hlunnar og Fiskverkun E.G. á Flateyri Hjá systurfyrirtækjunum Fiskverkun E.G. og útgerðar- félaginu Hlunnum á Flateyri, sem starfrækja beitningaskúr, línuútgerð og harðfiskverkun, eru 7 af 9 starfsmönnum kon- ur. Þær beita, fara á sjóinn, verka fisk og ganga í hvað eina sem til fellur. Einu karl- mennirnir hjá fyrirtækjunum eru Birkir Einarsson skipstjóri á bátnum Blossa ÍS og fram- kvæmdastjórinn Einar Guð- bjartsson sem unir hag sínum vel. Hann segir þetta bara hafa atvikast svona að mikill meiri- hluti starfsfólksins skuli vera konur. Einar á og rekur fiskverk- unina í félagi við Guðrúnu Pálsdóttur eiginkonu sína en útgerðina reka þau í félagi við son sinn, skipstjórann Birki. Segjast þau mjög sátt við kynjahlutfallið en fyrst og fremst ánægð með að hafa á að skipa svo öflugu starfs- fólki. Kristín Ágústsdóttir beitir og segir enga sérstaka kvenna- menningu vera ríkjandi í skúr- num. Það sé þó mjög fínt að vinna með eintómu kvenfólki og andinn góður. Aðspurð seg- ist hún ekki kannast við að kvenfólkið sé betri starfskraft- ur en karlpeningurinn. „Það eru eintómir karlar hérna í næsta skúr og þeir eru þræl- duglegir. Það er kannski held- ur minna kæruleysi í kven- fólkinu. Annars er það liðin tíð í beitningunni að menn séu að mæta bara einhvern tíma og einhvern tíma. Þetta er bara vinna og fólk tekur það alvarlega“, segir hún. Allmargir beitningarskúrar eru á Flateyri og stendur skúr þeirra EG-manna (kvenna) hjá tveimur öðrum. Kristín segir að það sé nokkur samgangur á milli skúra og beitningar- mennirnir beri saman bækur sínar í pásum. Aftur segir hún enga samkeppni eða meting á milli skúra. „Nei, ekkert svo- leiðis. Þetta fer allt fram í friði og spekt. Annars er það liðin tíð að það séu einhverjir heil- miklir kaffitímar og kjafta- gangur“, segir Kristín. Hún segir þó að ekki verði hjá því komist, að þar sem beitningar- skúrar eru annars vegar fari sögur á kreik, margir líti inn og ýmislegt fljúgi um þjóð- málin og náungann. „Já, menn koma og spjalla. Annars held ég að það sé miklu meira hjá köllunum. Þeir eru miklu meiri kjaftakerlingar“, segir hún. Kristín unir hag sínum vel í beitningunni og segir mjög gott að vinna hjá Fiskverkun E G. Hún kveðst hafa skroppið á grásleppu með Einari en öðru leyti hafi hún ekki í hygg- ju að leggja fyrir sig sjósókn. „Ég var einu sinni kokkur á stóra Gylli í gamla daga en ég held að ég sé of sjóveik fyrir þessa litlu koppa“, segir hún. Sjö af níu starfsmönnum eru konur Kristín Ágústsdóttir (nær) og Margrét Kristjánsdóttir (fjær) slá ekki slöku við í beitningarskúrnum á Flateyri. Með þeim er Ingibjörg Heba Halldórsdóttir sem beitir með þeim þó að hún hafi ekki verið að vinna þegar myndin var tekin. 02.PM5 18.4.2017, 10:143

x

Bæjarins besta

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.