Bæjarins besta


Bæjarins besta - 15.01.2003, Side 11

Bæjarins besta - 15.01.2003, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 2003 11 Íbúð til sölu! Til sölu er 4ra herbergja íbúð á 3. hæð að Stórholti 7. Íbúðin er 117m² í góðu ástandi. Mjög fallegt útsýni. Upplýsingar í símum 456 4643 og 899 0743. Hjartalæknir Davíð Arnar sérfræðingur í hjartasjúkdóm- um verður með móttöku á Ísafirði dagana 21. - 24. janúar. Tímapantanir í síma 450 4500, á milli kl. 08:00 og 16:00 alla virka daga. Í sumar er von á fjórtán skemmtiferðaskipum með samtals um 4000 farþega inn- anborðs til Ísafjarðar. Þetta er fjórum skipum og liðlega þús- und farþegum fleira en var á nýliðnu ári. Fjöldi skipa og farþega hefur verið nokkuð breytilegur á milli ára en í heildina er greinilegt er að stefnan hefur verið upp á við. Til samanburðar má nefna að sumarið 1995 komu til Ísafjarðar 6 skip með um 1700 farþega. Hefur því fjöldi skipa og farþega meira en tvöfaldast á síðastliðnum 8 árum. Rúnar Óli Karlsson, ferðamálafull- trúi Ísafjarðarbæjar, segir að hafnirnar í Reykjavík, á Ísa- firði og á Akureyri hafi átt langt og farsælt samstarf við aðila í ferðaþjónustu um kynningu þeirra erlendis og ætlunin sé að auka það sam- starf enn frekar. Nú stendur yfir undirbún- ingur fyrir komandi sumar og verið er að vinna að hugmynd- um um móttöku ferðamann- anna. Rúnar Óli segir Ísafjarð- arbæ hafa fengið góða um- sögn frá farþegum skemmti- ferðaskipa fyrir skemmtilegt og líflegt viðmót. Jafnan hefur verið staðið fyrir sérstökum uppákomum í tilefni af komu skipanna, gestunum og íbúum bæjarins til mikillar ánægju. Einnig segir Rúnar að verið sé að vinna að því að bæta merkingar í bænum þar sem ábendingar hafi borist þess efnis, að ferðamenn sem skoði bæinn eigi erfitt með að finna áhugaverða staði á borð við Sjóminjasafnið og Sundhöll- ina. „Það er mjög virtur ráðgjafi að meta frammistöðu hafn- anna þriggja í móttöku far- þega. Hann hefur metið það svo að hér sé vel staðið að skipulögðum ferðum sem far- þegarnir notfæra sér. Þeir sem kjósi að skoða bæinn upp á eigin spýtur lendi hins vegar í vandræðum með rata á rétta staði“, segir Rúnar Óli Karls- son. Guðmundur Kristjánsson hafnarstjóri á Ísafirði segir mikinn hug í mönnum og stefnt sé á frekari sókn á vettvangi skemmtiferðaskip- anna. Segir hann áðurnefndar þrjár hafnir hafa unnið saman í átta ár og nú sé unnið að frekara samstarfi í víðari skilningi. Ætlunin sé að tengj- ast hagsmunaðilum í ferða- þjónustunni enn frekar og segir Guðmundur unnið að því með Ferðamálaráði og fagað- ilum að þróa þetta samstarf. „Við stefnum að því að starfa saman undir einu vörumerki enda eru hafnirnar ekki að keppa innbyrðis“, segir Guð- mundur Kristjánsson. Komur skemmtiferðaskip- anna skila umtalsverðum tekj- um til Ísafjarðarhafnar. Guð- mundur segir þann kostnað sem höfnin leggi út vegna markaðssetningar skila sér margfalt í tekjum af skipun- um. Meðal þeirra skipa sem væntanleg eru í sumar er 800 farþega skip frá félaginu Hol- land - American Cruise Line. Fulltrúar þess komu til Ísa- fjarðar á liðnu hausti til að skoða aðstæður og létu mjög vel af þeim. Von er á 14 skemmti- ferðaskipum í sumar Komum skemmtiferðaskipa til Ísafjarðar fjölgar Skemmtiferðaskip við legu á Skutulsfirði. Norðvesturkjördæmi Prófkjör D-lista gilt en ágallar harmaðir Ekki er forsenda til að ógilda prófkjör Sjálfstæðis- flokksins í Norðvesturkjör- dæmi, að mati stjórnar kjör- dæmisráðs. Stjórnin harmar hins vegar ágalla á fram- kvæmd prófkjörsins. Fram kom í fréttum Ríkisútvarps- ins að stjórnin fjallaði um bréf Vilhjálms Egilssonar al- þingismanns sem hafnaði í 5. sæti í prófkjörinu en hann fór fram á ógildingu þess. Stjórn- in þakkar Vilhjálmi samstarfið liðin ár og óskar honum vel- farnaðar á nýjum vettvangi. Vilhjálmur hefur formlega sagt af sér þingmennsku frá og með 16. janúar. Adolf H. Berndsen, framkvæmda- stjóri á Skagaströnd, tekur sæti á Alþingi í hans stað. Adolf tekur sæti í efnahags- og viðskiptanefnd og sjáv- arútvegsnefnd í stað Vil- hjálms Egilssonar, alþingis- manns. Allt sjúkrahússorp af höfuðborgarsvæðinu Flutt til eyðingar á Ísafirði? Útlit er fyrir að allt sjúkra- hússorp af höfuðborgar- svæðinu verði flutt með gámum til Ísafjarðar og því eytt í sorpbrennslustöðinni Funa. Með hugtakinu „sjúk- rahússorp“ er átt við sérstak- an úrgang frá heilbrigðis- stofnunum sem hefur í för með sér meiri sýkingar- hættu og hættu á meiðslum en annar úrgangur. Til þessa flokks heyrir sóttmengaður úrgangur, lík- amsleifar, hvassir hlutir, lyfjaúrgangur og frumu- breytandi efni, sem geta haft stökkbreytingar í för með sér. Sorpeyðingarstöð Suð- urnesja hefur til þessa fargað sorpinu en heilbrigðiseftirlitið hefur krafist þess að því verði hætt. Í svari umhverfisráð- herra til Einars K. Guðfinns- sonar á Alþingi í haust kom fram, að Sorpbrennsla Suður- nesja tók á móti 280 tonnum af sjúkrahússorpi árið 2001. Í Svæðisútvarpi Vest- fjarða kom fram, að sam- kvæmt upplýsingum um- hverfisráðherra blasi við, að besta úrræðið sé að flytja þetta sorp í Funa meðan ekki er til fullkomnari aðstaða á höfuðborgarsvæðinu eða á Suðurnesjum. Sorpbrennslustöðin Funi í Engidal. 02.PM5 18.4.2017, 10:1411

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.